Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 48
17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
Ilmandi súpa, gott brauð og notalegar samræður verða í boði
á fyrstu samverustund fyrir ekkla og ekkjur sem haldin verð-
ur í Ráðgjafarstöð Krabbameinsfélagsins. Áherslan verður
á jákvæðni enda ekki um sorgarstund að ræða. Á fundinum
getur fólk með svipaða lífsreynslu rætt saman og sótt styrk í
hvað annað. Samverustundin hefst klukkan 18 í Skógarhlíð 8
en ætlunin er að halda slíka stund einu sinni í mánuði.
Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur kemur á fundinn og ræðir
um hvað sé eðlilegt að ganga í gegnum líkamlega, tilfinninga-
lega og félagslega við það að missa maka. „Fólk fer mjög ólík-
ar leiðir við að vinna úr sorg og það er einnig margt ólíkt með
kynjunum,“ segir Bragi, sem á seinni árum hefur verið í dokt-
orsnámi þar sem hann rannsakar sérstaklega ekkla á Íslandi.
„Karlar eru með miklu minna stuðningsnet vina í kringum sig
og eiga fáa karla að trúnaðarvinum. Hins vegar eiga þeir tölu-
vert bakland í fjölskyldu sinni og börnum.“
Á fundinum í kvöld mun Bragi fara yfir hin eiginlegu
sorgarviðbrögð. „Margir þeirra sem upplifa sorgina eru ekki
viðbúnir því hvaða áhrif hún hefur,“ segir Bragi og tekur fram
að sorgin sé ferli sem fylgi miklar sveiflur, bæði tilfinninga-
legar og andlegar. „Hún getur líka komið fram í alls konar
líkamlegum viðbrögðum,“ segir hann og meinar með því að
ónæmiskerfið verði fyrir heilmiklum áhrifum þegar fólk sé í
sorg og það fái mikið af umgangspestum og jafnvel sterkari
einkenni sem geti snert hjarta og öndun.
Bragi segir mikla hættu á að fólk einangrist við lát maka og
eigi það við bæði kynin. „Þó síður ekkjur því konur eru með
mun sterkara félagsnet.“ Inntur eftir því hvernig fólk geti
best tekist á við lát maka segir Bragi: „Í fyrsta lagi þarf að
taka sorg sína alvarlega. Það er vissulega mikilvægt að halda
sínu striki en einnig að gefa sorginni tíma,“ segir Bragi og
telur mikilvægt að fólk sé móttækilegt fyrir jákvæðum stuðn-
ingi úr umhverfinu. solveig@frettabladid.is
EKKLAR OG EKKJUR: JÁKVÆÐ SAMVERA
STYRKUR OG
STUÐNINGUR
SJÚKRAHÚSPRESTUR Samverustund ekkla og ekkna á jákvæðum
nótum verður haldin í Skógarhlíð 8 í kvöld. Bragi Skúlason ræðir um
hvað sé eðlilegt að ganga í gegnum líkamlega, tilfinningalega og
félagslega við það að missa maka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MILLA JOVOVICH LEIKKONA
ER 33 ÁRA Í DAG.
„Ég elska að leika í óháð-
um kvikmyndum og vil
halda því áfram það sem
eftir er lífs míns.“
Milla Jovovich var þekkt
fyrirsæta og hefur vakið at-
hygli fyrir leik í kvikmyndum
á borð við The Fifth Element
og Jóhönnu af Örk.
timamot@frettabladid.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður Sigurðardóttir
frá Melavöllum, Bakkafirði,
lést á Sundabúð, Vopnafirði, aðfaranótt 9. desember.
Jarðsett verður frá Skeggjastaðakirkju fimmtudaginn
18. desember kl. 14.00.
Jónas P. Gunnlaugsson
Hólmfríður A. Gunnlaugsdóttir
Kristinn B. Gunnlaugsson Anna María Helgadóttir
Helgi S. Gunnlaugsson Guðný Benediktsdóttir
Aldís E. Gunnlaugsdóttir
Matthildur G. Gunnlaugsdóttir
Unnur E. Gunnlaugsdóttir Indríði Þóroddsson
Sigrún B. Gunnlaugsdóttir Björgvin Sveinbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Sigurðsson
fyrrv. veitingamaður, Gnoðarvogi 60,
Reykjavík,
verður jarðsunginn í Dómkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 18. desember kl. 11.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast
hans er bent á styrktarsjóð Félags nýrnasjúkra, kt.
670387 1279.
Stefanía Guðrún Þorbergsdóttir
Sigurður Þ. Sigurðsson Steinunn Sæmundsdóttir
Jórunn Anna Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug öllu því góða fólki sem
sýnt hefur okkur samúð, hlýhug og vin-
semd við fráfall og útför ástkærrar eigin-
konu, móður, tengdamóður og ömmu,
Jónu Ólafsdóttur
Heiðarvegi 31, Vestmannaeyjum.
Már Jónsson
Dröfn Ólöf Másdóttir Gunnlaugur Grettisson
Markús Orri Másson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, dóttir, systir og amma,
Sigríður Eyfjörð
Hreiðarsdóttir
Reykjasíðu 22, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, fimmtu-
daginn 4. desember. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir fyrir veittan
stuðning og vináttu.
Einar Guðbjartsson
Soffía Einarsdóttir Bjarni Jónsson
Eva Einarsdóttir Valur Freyr Albertsson
Hreiðar Eyfjörð Jónsson Soffía Jóhannsdóttir
Jóhann Eyfjörð Hreiðarsson Hreiðar Eyfjörð Hreiðarsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Tómasar Þorvaldssonar
Gnúpi, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Víðihlíð í
Grindavík.
Eiríkur Tómasson Katrín Sigurðardóttir
Gunnar Tómasson Rut Óskarsdóttir
Stefán Þorvaldur Tómasson Erla Jóhannsdóttir
Gerður Sigríður Tómasdóttir Jón Emil Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær systir mín og frænka okkar,
Vigfúsína (Sína)
Bjarnadóttir
Hrafnistu, Reykjavík, áður Vífilsgötu 20,
Reykjavík,
sem lést 10. desember, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. desember kl. 11.00.
Fyrir hönd annarra ættingja,
Ingibjörg Bjarnadóttir
Elsa Margrét Níelsdóttir
Guðmundur Elías Níelsson
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
Örn Clausen
hæstaréttarlögmaður
Blikanesi 3, Garðabæ,
sem andaðist að kvöldi 11. desember, verður jarðsung-
inn föstudaginn 19. desember kl. 13.00 frá dómkirkj-
unni í Reykjavík.
Guðrún Erlendsdóttir
Ólafur Arnarson Sólveig Sif Hreiðarsdóttir
Guðrún Sesselja Arnardóttir Jóhann Sigurðarson
Jóhanna Vigdís Arnardóttir Þorsteinn Guðbjörnsson
og barnabörn.
Samverustund vegna fráfalls ástkærrar
konu minnar, móður okkar, stjúpu,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Önnu Margrétar Jónsdóttur
Þórhólsgötu 1, Neskaupstað,
sem lést föstudaginn 5. desember á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað, verður í kirkju óháða
safnaðarins fimmtudaginn 18. desember kl. 15.00.
Gísli Sævar Hafliðason
Jón Rafn Högnason Hansína B. Einarsdóttir
Jóna Rebekka Högnadóttir Þorgeir A. Þorgeirsson
Pétur Hafsteinn Högnason Vivienne Högnason
Katrín Sól Högnadóttir Jón Hjörtur Jónsson
Kristján Tryggvi Högnason Fjóla Karlsdóttir Waldorff
Margrét Högnadóttir Ríkarð Ó. Snædal
Anna Sigurborg Högnadóttir Michael Dahl Clausen
Sigríður Högna Högnadóttir Hjálmar Hjálmarsson
Elín Guðrún Jóhannsdóttir
Rósa Kristín Gísladóttir Georg J. Júlíusson
Ólöf Anna Gísladóttir Grétar Hallur Þórisson
Hafdís Hrund Gísladóttir Pétur Húni Björnsson
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
Lára Kristín Sigurðardóttir
Laugateigi 54, Reykjavík,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 9. desember, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. desember klukkan
13.00.
Skúli Þór Magnússon Guðrún Jóhannesdóttir
Árni Magnússon
Jóhanna Magnúsdóttir Óskar Margeirsson
Trausti Magnússon
veitingamaður
andaðist á Hrafnistu Hafnarfirði 2. desember. Útförin
hefur farið fram.
Auður Traustadóttir
Sigrún Magnúsdóttir
Trausti Gylfason Snjólaug Jónsdóttir
Gísli Rúnar Gylfason Agnes Ýr Sigurjónsdóttir
Kristín Margrét Gylfadóttir Baldur Vigfússon
og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Jónheiðar Bjargar
Guðjónsdóttur
Krummahólum 6, Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru til starfsfólks á Landspítala
Háskólasjúkrahúss B7 og Heimahjúkrunar fyrir alúð
og umhyggju henni til handa.
Steinar Ásgrímsson Patricia Otman
Egill Ásgrímsson Svava Svavarsdóttir
Jón Þór Ásgrímsson Arnleif Alfreðsdóttir
Guðjóna Ásgrímsdóttir Jón Magni Sigurðsson
Ólafur Ásgrímsson Hanna Erlingsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.