Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 12
12 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Styrkir til þingmanna í prófkjöri Stjórnarliðar sem og stjórnarandstæðingar hafa undanfarin misseri rætt um nauðsyn þess að opin umræða eigi sér stað í þjóðfélaginu þar sem allt sé uppi á borðum. En hversu tilbúnir eru þeir að leysa frá skjóðunni þegar spurt er um fjármálatengsl þeirra? Fréttablaðið spurði alla þingmennina um þau tengsl og var dræmlega svarað. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra hefur sagt að afnema beri bankaleynd til þess að rannsaka bankahrunið. Ágúst Ólafur Ágústs- son, þingmaður Samfylkingar og formaður viðskiptanefndar, hefur einnig látið hafa eftir sér að það væri æskilegt. Geir H. Haarde forsætisráðherra hefur einnig sagt að mikilvægt væri að umræð- an í þjóðfélaginu væri opin, öll spil lögð á borð svo að grafa megi undan tortryggni sem mikið hefur borið á að undanförnu. Þegar kemur að því að upplýsa um tengsl stjórnmálamanna við fyrirtæki, félög og einstaklinga virðast þeir hins vegar hafa minni áhuga á upplýsingaflæðinu. Aðeins 25 af 63 þingmönnum svöruðu Fréttablaðinu um það hverjir studdu þá í prófkjörsbaráttunni fyrir síðustu kosningar. Allir þing- menn Vinstri grænna svöruðu en aðeins tveir af 25 þingmönnum Sjálfstæðisflokks. Flestir neita að svara Jón Magnússon Kostnaður: Enginn Styrktaraðilar: „Þannig að persónulega tók ég ekki við neinum peningum eða hafði aðra milligöngu en þá að benda á framkvæmdastjóra.“ Kristinn H. Gunnarsson Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn VINSTRI GRÆNIR ALLIR 9 SVARA Atli Gíslason Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn Álfheiður Ingadóttir Kostnaður: „Ekki mikill.“ „Útgjöld mín takmörkuðust því við hóflegar úthringingar frá heimili mínu, ef frá er talinn ca 2.000 kr. efniskostnaður við hráköku sem ég lagði til á kökubasar Vinstri grænna.“ Árni Þór Sigurðsson Kostnaður: 30-40.000 Styrktaraðilar: Enginn Jón Bjarnason„Það var uppstilling á vegum uppstillingarnefnd- ar sem lagði tillögur fyrir kjördæmisráðsfund og því ekki um prófkjör að ræða.“ Katrín Jakobsdóttir Kostnaður: 60.000 Styrktaraðilar: Enginn Kolbrún Halldórsdóttir Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn Steingrímur J. Sigfússon Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn Þuríður Backman Kostnaður: - Styrktaraðilar: Enginn Ögmundur Jónasson „Enginn studdi prófkjörsbaráttu mína fjárhagslega enda kostaði hún mig ekkert.“ tökum notuð barnaskíði og skó upp í ný SKÍÐASKIPTIMARKAÐUR SAMFYLKING 7 SVARA, 11 SVARA EKKI FRÉTTASKÝRING JÓN SIGURÐUR EYJÓLFSSON jse@frettabladid.is SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR 2 SVARA, 23 SVARA EKKI FRJÁLSLYNDI FLOKKURINN 2 SVARA, 2 SVARA EKKI Birkir J. Jónsson Kostnaður: „Óverulegur“ Styrktaraðilar: Enginn „Ég gaf út einn bækling til kynningar á sjálfum mér. Ég kostaði framboðið alfarið sjálfur, ekkert fyrirtæki studdi mig fjárhags- lega. Engin var kosningaskrifstofan. Hins vegar unnu stuðn- ingsmenn mínir mikið starf hvarvetna í kjördæminu til að afla framboði mínu stuðnings. Enginn þáði fjármuni fyrir það.“ Helga Sigrún Harðardóttir Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn Magnús Stefánsson „Kostnaður sem féll til vegna prófkjörs hjá mér var greiddur úr eigin vasa.“ Siv Friðleifsdóttir Ekkert prófkjör Valgerður Sverrisdóttir „Fyrir síðustu kosningar var ég ein í framboði til fyrsta sætis á lista Framsóknarflokksins í NA-kjör- dæmi. Það var því engin kosningabarátta háð um fyrsta sætið. Engu síður var ég með opna kosningaskrifstofu á Akureyri síðustu vikuna fyrir kjördæmisþingið þar sem nokkur hundruð manna röðuðu á listann. Kostnaðinn vegna þessa greiddi ég úr eigin vasa.“ FRAMSÓKNARFLOKKUR 5 SVARA, 2 SVARA EKKI Árni Páll Árnason Kostnaður: 3.351.274 Styrktaraðilar: „Þegar prófkjörið fór fram voru í gildi viðmiðunarreglur Samfylkingarinnar um að upplýsa skyldi um nafn og kennitölu ef framlög lögaðila væru umfram 500.000 kr. Flest fjárframlög til minnar baráttu voru nokkur þúsund krónur og öll voru þau innan þeirra viðmiðunarmarka sem Samfylkingin setti á þeim tíma um upplýsingaskyldu. Ég fór eftir þessum reglum við öflun fjár til framboðsins og get því ekki orðið við beiðni Fréttablaðsins um nöfn þessara aðila og rofið þannig trúnað við þá nú.“ Björgvin G. Sigurðsson „Fjöldi aðila studdi prófkjörsbaráttu mína með ýmsum hætti. Flestir með vinnuframlagi og margs konar aðstoð. Prófkjörsbaráttuna borgaði ég að stærstum hluta sjálfur með mínu eigin fé og framlögum stuðningsmanna minna.“ Einar Már Sigurðarson „Þáði hvorki styrki né önnur framlög í prófkjörsbaráttu fyrir síðustu kosningar.“ Ellert B. Schram Kostnaður: 0 Styrktaraðilar: Enginn Gunnar Svavarsson Kostnaður: Svarar ekki. Styrktaraðilar: Enginn „Enginn styrkur, beinn eða óbeinn, var þeginn – frambjóðand- inn sá um að greiða allan kostnað.“ Helgi Hjörvar Kostnaður: 5.000.000 Styrktaraðilar: „Einstaklingar og fyrirtæki studdu framboðið með styrkjum en um einstaka styrkveitingar var á þeim tíma trúnaður. Um styrktaraðila má þó almennt segja að sá hluti þeirra sem eru hagsmunaaðilar voru einkum bankar, fjármálafyrirtæki, eignarhaldsfélög og fjárfestar í slíkum fyrirtækjum.“ Þórunn Sveinbjarnardóttir Kostnaður: 1.500.000 Styrktaraðilar: Gefur þá ekki upp. „Þegar prófkjörið fór fram voru í gildi viðmiðunarreglur Samfylkingarinnar um að upplýsa skyldi um nafn og kennitölu ef framlög lögaðila væru umfram 500.000 kr. Öll framlög til baráttu minnar voru undir þessum mörkum og því innan þeirra viðmiðunarmarka sem Samfylkingin setti á þeim tíma um upplýsingaskyldu. Ég fór eftir þessum reglum við öflun fjár til framboðsins og get því ekki orðið við beiðni Fréttablaðsins um nöfn þessara aðila og rofið þannig trúnað við þá.“ Kjartan Ólafsson „Prófkjör mitt var frekar hófstillt að umfangi. Sá kostnaður sem til féll var að langmestu leyti greiddur úr eigin vasa sem mér sýnist vera tæplega 90 prósent. Annar stuðningur kom frá fjölskyldu og vinum.“ Sturla Böðvarsson „Vegna fyrirspurnar þinnar skal upplýst að ég hafði engan kostnað af prófkjöri fyrir síðustu kosningar og naut þess vegna engra styrkja.“ Svara: Svara ekki: Arnbjörg Sveinsdóttir Ármann Kr. Ólafsson Árni Johnsen Árni M. Mathiesen Ásta Möller Birgir Ármannsson Bjarni Benediktsson Björk Guðjónsdóttir Björn Bjarnason Einar K. Guðfinnsson Geir H. Haarde Guðfinna S. Bjarnadóttir Guðlaugur Þór Þórðarson Herdís Þórðardóttir Illugi Gunnarsson Jón Gunnarsson Kristján Þór Júlíusson Ólöf Nordal Pétur H. Blöndal Ragnheiður Ríkharðsdóttir Rósa Guðbjartsdóttir Sigurður Kári Kristjánsson Þorgerður K. Gunnarsdóttir Grétar Mar Jónsson Guðjón A. Kristjánsson Svara: Svara ekki: Ágúst Ólafur Ágústsson Ásta R. Jóhannesdóttir Guðbjartur Hannesson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Jóhanna Sigurðardóttir Karl V. Matthíasson Katrín Júlíusdóttir Kristján L. Möller Lúðvík Bergvinsson Steinunn Valdís Óskarsdóttir Össur Skarphéðinsson Svara ekki: Svara: Svara: Svara ekki: Eygló Harðardóttir Höskuldur Þórhallsson Svara: Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru tilkynntar fyrir viku en úrslitin verða tilkynnt í janúar. ■ Hvað eru Íslensku bókmenntaverðlaunin gömul? Íslensku bókmenntaverðlaunin hafa verið veitt árlega síðan 1989. Verðlaun eru veitt í flokki fagurbókmennta og fræðibóka, fimm bækur í hvorum flokki. ■ Hvað um önnur bókmenntaverðlaun? Hagþenkir, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, veitir árlega viðurkenningu. Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana eru veitt í desember á hverju ári af Félagi starfsfólks bókaverslana. Félagsmenn tilnefna þrjár bækur sem þykja skara fram úr í sjö flokkum. Þá veitir Reykjavíkurborg ár hvert Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir óprentað handrit að ljóðabók. Ljóðstafur Jóns úr Vör eru árleg ljóðlistarverð- laun sem hófu göngu sína árið 2001. Íslensku þýðingarverðlaunin hafa verið afhent á degi bókarinnar, 23. apríl, frá 2005. Verðlaunin eru veitt af Bandalagi þýðenda og túlka með stuðningi Rithöf- undasambands Íslands og Félags íslenskra bókaútgefenda. ■ En barnabókaverðlaun? Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð fyrir rúmu ári af Velferðarsjóði barna en þeim er ætlað að veita viðurkenningu árlega til höfundar sem þykir hafa skarað fram úr. Þá má nefna Íslensku barnabókaverðlaunin. Ármann Kr. Einarsson rithöfundur og fjölskylda hans stofnuðu verðlaunasjóð íslenskra barnabóka árið 1985 í samvinnu við bókaútgáfuna Vöku – Helgafell. Íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt árlega fyrir nýja og áður óbirta skáldsögu fyrir börn og unglinga. Á sumardaginn fyrsta velja líka almenningsbóka- söfn landsins Bókaverðlaun barnanna. FBL-GREINING: BÓKMENNTAVERÐLAUN Fjölbreytt flóra „...fyrst á visir.is“ ...ég sá það á visir.is FRÁ ALÞINGI Alls 38 þingmenn neituðu að svara því hverjir studdu þá í prófkjöri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.