Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 54
26 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR folk@frettabladid.is > BLACK Í THE OFFICE Gamanleikarinn Jack Black verður í gestahlutverki í bandarísku útgáf- unni af The Office á næsta ári. Þátturinn, sem er klukku- tíma langur, verð- ur sýndur 1. febrúar skömmu eftir Super Bowl-úrslitaleikinn í ruðningi. „Þetta er alveg ótrúlegt. Ég get ekki annað en bara brosað yfir þessu,“ segir Kristinn Gunnar Blöndal, eða Bob Justman, einn seinheppnasti tónlistar- maðurinn sem gefur út fyrir þessi jól. Fyrsta sólóplata Bob Justman, Happiness and Woe, hefur verið tíu ár í smíðum og þegar loksins leit út fyrir að hún kæmi út fyrir tveimur mánuðum skall kreppan á með öllum sínum vandkvæðum. Platan tafðist í framleiðslu úti í löndum og þegar fyrsta upplagið kom loksins til landsins fyrir skömmu var það gallað. „Diskurinn sjálfur var bilaður, það voru bara í lagi lögin frá eitt til fjögur. Þetta er stórfurðu- legt, ég hef aldrei heyrt um neitt svona áður,“ segir Kristinn. Spurður hvort einhver bölvun sé á plötunni segir hann að svo gæti vel verið. „Einu sinni vorum ég og Gunni Tynes í stúdíói að fara að mixa plötuna. Það var stormur í borginni en við fórum samt og ætluðum að klára hana. Þegar við komum segi ég við hann að ef rafmagnið fari þá sé bölvun á þessu verkefni. Fimm mínútum seinna fór rafmagnið,“ segir hann. „Svo er það þannig að bara allt sem getur komið fyrir, það kemur fyrir.“ Kristinn ætlar að fara þetta á seiglunni og er sannfærður um að platan komi út fyrir jól. „Núna er þetta úr mínum höndum. Þetta er ekki ég lengur og hætti að vera það fyrir löngu. Þetta er bara fyndið.“ - fb Bölvun á plötu Bob Justman BOB JUSTMAN Kristinn Gunnar Blöndal bíður enn eftir því að sín fyrsta sólóplata komi út. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þetta heppnaðist mjög vel, hópur- inn söng nokkur lög og seldi fullt af diskum,“ segir Ingveldur Ýr Jóns- dóttir, þjálfari og söngstjóri Blik- andi stjarna, sem fagnaði útgáfu samnefndrar plötu síðastliðið fimmtudagskvöld í Hinu húsinu. „Það mættu margir sem hafa komið að starfi hópsins á fimmtudaginn auk annarra gesta, en þar á meðal voru Edda Björgvinsdóttir og Helga Braga, systir mín,“ bætir hún við. Blikandi stjörnur hafa starfað á vegum Hins hússins síðan árið 2000 undir stjórn Ingveldar og komið víða fram, bæði hérlendis og á erlendum listahátíðum fatlaðra. Hópurinn hefur unnið til ýmissa verðlauna, þau hafa meðal annars fengið viðurkenningu Reykjavík- urborgar og atriði þeirra var valið úr hópi 40.000 atriða af Evrópu- sambandinu 2003 og hlutu þau verðlaun sambandsins í kjölfarið. „Diskurinn er svona þversnið af því sem Blikandi stjörnur hafa verið að flytja, þá aðallega þekkt íslensk dægurlög. Þau gefa út sjálf en upptökur og útsetningu annaðist Magnús Kjartansson auk valin- kunnra tónlistarmanna,“ segir Ing- veldur. - ag Blikandi stjörnur fögnuðu Lagið Really Wild af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, var á dögunum tilnefnt til Hollywood Music-verðlaunanna. Lagið náði þó ekki að bera sigur úr býtum þegar verðlaunin voru afhent í síðasta mánuði. Áður hafði lagið Getting Colder By the Year af sömu plötu hlotið tilnefningu til Los Angeles Music- verðlaunanna fyrir ári síðan. Lagið That Kinda Man með JJ Soul Band komst jafnframt í úrslit í 100% Music Songwriting- keppninni fyrr á árinu. Í þeirri keppni hlaut einnig lag Ingva Þórs Kormákssonar úr JJ Soul Band og Friðriks Erlingssonar, Tonight My Love, fyrstu verðlaun í funk/latin/reggae/world-flokki og líka þriðju verðlaun í allri keppninni óháð tegund tónlistar. Það er Guðrún Gunnars sem syngur enska útgáfu lagsins en Eivör Pálsdóttir söng íslensku útgáfuna í Söngvakeppni Sjón- varpsins árið 2003. Meðlimir JJ Soul Band eru, auk Ingva Þórs, breski söngvarinn og lagahöfundurinn JJ Soul, Eðvarð Lárusson gítarleikari, Stefán Ing- ólfsson sem leikur á bassa, trommuleikarinn Steingrímur Óli Sigurðarson og Agnar Már Magnússon á hljómborð. - fb Vekja athygli vestra JJ SOUL BAND Lög af nýjustu plötu JJ Soul Band, Bright Lights, hafa hlotið mikla athygli að undanförnu. BLIKANDI STJÖRNUR SUNGU Blikandi stjörnur tóku lagið í Hinu húsinu á fimmtu- dagskvöldið þar sem þau fögnuðu nýútkominni plötu sinni. Ingveldur Ýr var ánægð með útkomuna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Leynast Atomic skíði í þínum jólapakka? Bakpokar og gönguskór Í miklu úrvali Hitabrúsar 1L á 3.495 0,75L á 2.995 0,5L á 2.495 Göngustafapar frá 5,995.- GEFÐU HLÝJA JÓLAGJÖF ALPARNIR Íslensku F a x a f e n i 8 • 1 0 8 R e y k j a v í k • S í m i 5 3 4 2 7 2 7 • e - m a i l : a l p a r n i r @ a l p a r n i r . i s • w w w . a l p a r n i r . i s Mikið úrval af útivistar-, kulda-, skíða- og snjóbrettafatnaði á konur, karla, unglinga og börn með 20% afsl. Frá bæ r jóla tilb oð í des em ber skíðapakkar með 20% afsl. HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.