Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 4
4 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
13°
7°
3°
5°
5°
5°
4°
3°
5°
6°
19°
16°
7°
27°
1°
5°
10°
4°
Á MORGUN
3-10 m/s
-2 FÖSTUDAGUR
5-10 m/s v-til
annars 3-8 m/s
-2
-4
-5
-4
-4
-2
0
0
-4
3
4
4
3
3
5
3
3
4
4
0
-2 -6
-8
-11
2
2
SVIPAÐ VEÐUR
ÁFRAM
Það verður keimlíkt
veður á landinu
næstu daga. Yfi rleitt
hægur vindur og frost,
síst þó með strönd-
um. Éljaloft verður
viðloðandi sunnan og
vestanvert landið fram
á laugardag en þá
léttir til syðra og má
búast við éljum norð-
austan til. Á sunnudag
verður svo éljaloft
við suðurströndina á
nýjan leik. Áfram frost.
3
-1 -6
-8
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
ÁLFTANES Kristján Sveinbjörnsson
sagði af sér embætti forseta
bæjarstjórnar Álftaness í gær og
dró sig í hlé sem bæjarfulltrúi. Í
yfirlýsingu hans er vísað í
persónuleg mál.
„Með afsögn minni vonast ég til
að friður skapist um starfsemi
bæjarstjórnar Álftaness og það
góða starf sem þar er unnið undir
stjórn Álftaneshreyfingarinnar,“
segir í yfirlýsingunni.
„Ég ætla ekki að gefa út
yfirlýsingu um eitt eða neitt í bili,
það koma tímar. Ég vísa á Sigurð
G. Guðjónsson lögmann. Hann er
minn ráðgjafi,“ sagði Kristján í
samtali við Fréttablaðið. - kóp
Forseti bæjarstjórnar hættir:
Kristján segir af
sér embætti
SEGIR AF SÉR Kristján vísar í lögmann
spurður um afsögn sína sem forseti
bæjarstjórnar og bæjarfulltrúi.
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í sex mánaða skilorðs-
bundið fangelsi í Héraðsdómi
Norðurlands eystra fyrir að setja
gúmmíbolta í leggöng stúlku.
Einnig fyrir að hóta tveimur
lögreglumönnum lífláti. Hann var
ákærður fyrir að stofna lífi eða
heilsu stúlkunnar í augljósan
háska, er hann í kynmökum við
hana setti boltann, sem hún taldi
vera kynlífsleikfang, upp í
leggöng hennar. Boltann skildi
maðurinn eftir án vitneskju
hennar. Þrem vikum síðar þegar í
ljós kom að boltinn var enn í
leggöngum var stúlkan komin
með bólgur og alvarlega sýkingu í
leggöng. Þurfti að fjarlægja
boltann með skurðaðgerð. - jss
Dæmdur til refsingar:
Setti gúmmí-
bolta í leggöng
EFNAHAGSMÁL Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, neitar því
að Alf Skjeset, blaðamaður
norska dag-
blaðsins Klasse-
kampen, hafi
haft rangt eftir
sér í viðtali,
eins og skilja
mátti af
fréttum í
fyrrakvöld.
Þetta kom fram
í viðtali Vísis.is
við Þorgerði í
gær.
Þorgerður segir þýðingu
Ríkisútvarpsins á frétt Klasse-
kampen, þar sem því var haldið
fram að hún teldi einu lausnina í
okkar málum almennt séð vera
innganga í Evrópusambandið,
ekki vera rétta. Það sem snúi að
peningamálastefnunni, að evra
þýði inngöngu í ESB, hafi hins
vegar verið haft rétt eftir sér. - kg
Þorgerður Katrín:
Evra þýðir inn-
göngu í ESB
SVEITASTJÓRNIR „Þeir eru að kalla
eftir endurkosningu á þeirri sem
fór fram um deiliskipulagið 2007,“
segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, sem í gær tók við
undirskriftum 5.014 íbúa sem vilja
láta kjósa að nýju um stækkun
álversins í Straumsvík.
Lúðvík segir að í samþykktum
bæjarstjórnar séu skýr ákvæði um
að annars vegar geti bæjarstjórn
sent mál til kosningar meðal íbúa
og hins vegar að undirskriftir fjórð-
ungs kjósenda þurfi til að efna verði
til íbúakosningar um tiltekin mál.
Skriður hafi komist á söfnun undir-
skrifta vegna álversstækkunarinn-
ar eftir að kreppan hófst í haust.
Bæjarráðið hefur nú falið bæjar-
lögmanni að yfirfara undirskrifta-
listana með nöfnunum 5.014. Um
4.700 manns duga að sögn Lúðvíks
til að knýja fram kosningarnar.
Áður en ákvörðun verður tekin um
þær muni bæjaryfirvöld þó kanna
hvort Rio Tinto Alcan hafi enn hug
á stækkuninni sem felld var naum-
lega í íbúakosningu vorið 2007.
Upplýsingafulltrúi Rio Tinto
Alcan segir fyrirtækið hins vegar
líta svo á að íbúakosningin sé nú
þegar í höndum bæjaryfirvalda í
Hafnarfirði eftir að tilskilinn fjöldi
undirskrifta hefur borist. Fyrirtæk-
ið muni ekki eiga frumkvæði í mál-
inu að þessu sinni.
„Eftir að stækkuninni var hafnað
tók fyrirtækið annan kúrs. Við
getum ekki lagt í það átak að kanna
hvort skynsamlegt sé að fara aftur
inn í þennan fasa nema þá að það
liggi fyrir að það muni ekki aftur
stoppa – að þetta sé ekki bara blind-
gata númer tvö. Fyrirtækið vill hafa
það á hreinu að þetta sé vilji bæjar-
búa áður en það leggur út í allt ferl-
ið.“
Nú er verið að undirbúa aukningu
á framleiðslugetu álversins í
Straumsvík úr 185 þúsund tonnum í
225 þúsund. Það er gert með tækni-
legum breytingum en ekki beinni
stækkun. Að sögn Ólafs Teits myndi
framleiðslan hins vegar aukast
margfalt meira, eða upp í 460 þús-
und tonn gengju fyrri áform um
stækkunina eftir.
Aðspurður kveðst Lúðvík Geirs-
son ekki vilja svara til um það á
þessu stigi hvort hann myndi styðja
eða hafna stækkun álversins. „Ég
svara því þegar þar að kemur. Það á
eftir að koma í ljós hvort verður
kosið eða ekki,“ segir bæjarstjór-
inn.
gar@frettabladid.is
Ný íbúakosning um
álverið í Straumsvík
Safnað hefur verið nægum fjölda undirskrifta til að kosið verði öðru sinni um
stækkun álversins í Straumsvík. Bærinn vill viðbrögð Rio Tinto Alcan en fyrir-
tækið vill ekki lenda í annarri blindgötu og vill niðurstöðu íbúakosningar fyrst.
ÁLVERIÐ Í STRAUMSVÍK Deiliskipulag fyrir stækkun álversins í Straumsvík upp í 460 þúsunda tonna framleiðslugetu var fellt í
íbúakosningu vorið 2007.
HJÁLPARSTARF Lokafrestur til að
sækja um jólaaðstoð frá Fjöl-
skylduhjálp Íslands er fimmtu-
dagurinn 18. desember frá
klukkan 13.00 til 16.00. Tekið er
við umsóknum hjá Fjölskyldu-
hjálp Íslands að Eskihlíð 2 til 4.
Fjölskylduhjálp Íslands er
líknarfélag sem var stofnað í
september 2003. Félagið aðstoðar
fólk af öllu landinu, óháð kyni og
aldri. Markmiðið er að hjálpa og
létta undir með einstaklingum og
fjölskyldum sem eiga í tíma-
bundnum erfiðleikum. Allt starf
félagsins er unnið í sjálfboða-
vinnu. - kg
Fjölskylduhjálp Íslands:
Lokafrestur fyr-
ir jólaaðstoð
LÖGREGLUMÁL Átján ára Pólverji
var í gær úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 22. desember vegna
rannsóknar á smygli á þúsundum
e-taflna. Fjórir landar piltsins
voru úrskurðaðir í farbann í
mismunandi langan tíma, lengst í
fjórar vikur. Það var í lok síðustu
viku sem tollgæslan tók póstsend-
ingu frá Póllandi sem innihélt
efnin.
Fjórir piltar og ein stúlka, voru
handtekin samtímis í gær á
höfuðborgarsvæðinu. Fólkið er
um tvítugt.Rannsókn málsins er á
frumstigi og ekki liggur fyrir
hvort þessi hópur tengist fleiri
fíkniefnasendingum. - jss
Fimm ungir Pólverjar:
Grunaðir um
e-töflusmygl
STÓRIÐJA Ljóst er að samningar á
milli Norðuráls og orkufyrir-
tækja, Orkuveitu Reykjavíkur og
Hitaveitu Suðurnesja, eru brostn-
ir. Þær kröfur, sem samkvæmt
þeim átti að uppfylla fyrir áramót
um fjármögnun, munu ekki nást,
hvorki hjá orkufyrirtækjunum né
Norðuráli. Því þarf annaðhvort að
breyta samningunum eða gera
nýja.
Ágúst Hafberg, tengiliður hjá
Norðuráli, segir að verið sé að
vinna að fjármögnun álversins
með nokkrum erlendum bönkum.
Sú vinna taki nokkra mánuði í
viðbót. „Það er fyrst og fremst
fjármögnunin sem er tímafrek.
Þegar henni er lokið fer allt á
fullt.“
Norðurál hefur kynnt hugmynd-
ir um 360 þúsund tonna álver, í
stað 250 þúsund tonna, í fjórum 90
þúsund tonna áföngum. Ágúst
segir enga ákvörðun hafa verið
tekna um það. Ljóst er að nýtt
umhverfismat þarf fyrir slíka
framkvæmd.
Eiríkur Hjálmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Orkuveitu Reykjavík-
ur, segir að fyrir slíka framkvæmd
þurfi þriðja orkufyrirtækið,
Landsvirkjun, að koma að orkuöfl-
un. Verið sé að vinna að fjármögn-
un verkefnisins. „Fjármögnunin
er almennt í frosti nú, en við von-
umst til að það ástand batni með
hækkandi sól. Menn eru að ræða
saman um hvort samningum verð-
ur breytt eða nýir gerðir.“ - kóp
Unnið að fjármögnun við álver í Helguvík og orkuöflun:
Samningar um orku brostnir
HELGUVÍK Nýtt umhverfismat þarf ef
álverið verður stækkað í 360 þúsund
tonn og Landsvirkjun þarf þá að koma
að orkuöflun.
ÞORGERÐUR
KATRÍN
GUNNARSDÓTTIR
GENGIÐ 16.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
202,9084
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,37 114,91
174 174,84
156 156,88
20,936 21,058
16,483 16,581
14,265 14,349
1,2681 1,2755
175,23 176,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR