Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 8
8 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
SVARTFJALLALAND Þegar Svartfell-
ingar hófu notkun evrunnar árið
2002 voru aðeins tvö ár liðin síðan
þeir skiptu endanlega út júgóslav-
neska dínarnum fyrir þýska mark-
ið. Þegar Þjóðverjar hættu að nota
markið og tóku upp evruna áttu
Svartfellingar varla aðra kosti en
að gera slíkt hið sama.
Á mánudaginn tók Olli Rehn,
stækkunarstjóri Evrópusambands-
ins, því fagnandi þegar Milan
Djukanovic, forsætisráðherra
Svartfjallalands, sótti fyrir hönd
þjóðar sinnar formlega um aðild að
Evrópusambandinu, og gerði enga
athugasemd við að Svartfellingar
hefðu einhliða tekið upp evruna
fyrir nærri sjö árum.
Staða Svartfjallalands þá var
hins vegar engan veginn sambæri-
leg við stöðu Íslands nú, því Svart-
fellingar höfðu hvorki sjálfstæða
mynt né eigin seðlabanka, enda
höfðu þeir í ríflega hálfa öld verið
hluti af Júgóslavíu og notað júgó-
slavneska dínarinn eins og aðrar
þjóðir í því landi.
Þetta fór að breytast á síðasta
áratug tuttugustu aldar, þegar
smám saman var algengara að
Svartfellingar notuðu þýska mark-
ið meðfram dínarnum.
Undir lok áratugarins ákváðu
Svartfellingar síðan að leggja niður
dínarinn þannig að þýska markið
yrði eina gjaldgenga myntin í land-
inu. Þetta var beinlínis gert til þess
að draga úr áhrifum Serba, en rúm-
leg hálfum áratug síðar sögðu
Svartfellingar síðan endanlega
skilið við Serbíu og stofnuðu sjálf-
stætt ríki.
Bæði Kosovo og Andorra brugð-
ust eins við þegar evran hóf göngu
sína í ársbyrjun 2002. Kosovobúar
höfðu eins og Svartfellingar notað
þýska markið frekar en serbneska
dínarinn, en Andorrabúar höfðu
jöfnum höndum notast við franska
frankann og spænska pesetann.
Hvorir tveggja stóðu því uppi án
myntar og áttu varla annan kost en
að taka upp evruna, og höfðu ekki
fyrir því að spyrja Evrópusam-
bandið um leyfi.
Auk þessara þriggja ríkja hafa
þrjú örríki einnig notað evruna án
aðildar að Evrópusambandinu, en
að vísu með sérstöku samþykki frá
Evrópusambandinu. Þetta eru
Monakó, sem hafði notað eigin
útgáfu af franska frankanum
meðan hann lifði, og svo Páfagarð-
ur og San Marínó, sem bæði notuðu
ítölsku líruna allt þar til hún var
lögð niður.
Ekkert þessara ríkja var því þá í
sambærilegri stöðu við Ísland, sem
hefur sína eigin mynt og sjálfstæð-
an seðlabanka.
gudsteinn@frettabladid.is
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
\
0
8
3
8
6
8
Allir sem eiga miða í desember 2009 geta átt von á sérstökum 75 milljóna
króna vinningi sem dreginn verður út í seinni útdrætti þann mánuðinn.
Númerið fer einu sinni í pottinn fyrir hvern greiddan mánuð, þannig að sért
þú með strax frá upphafi árs, getur þú tólffaldað möguleikana.
Nú fást miðar í sérstakri gjafaöskju á afmælissýningu okkar í Smáralind, hjá
aðalumboði og umboðsmönnum um allt land.
Gleddu vin og stuðlaðu um leið að uppbyggingu Háskólans. Svo getur þú
auðvitað keypt einn fyrir þig í leiðinni! Nánari upplýsingar á sölustöðum,
í síma 800 6611 eða á hhi.is.
A
T
A
R
N
A
Sverrir er kominn á geisladisk
Yndislega heillandi geisladiskur með grípandi góðum
lögum og bráðskemmtilegum smellnum textum eftir
Sverri Norland. Kassagítarinn og munnharpan góða eru
vitaskuld á sínum stað, og auk þess þriggja manna
úrvalshljómsveit og snjall bakraddaflokkur. Nú færðu á
einum diski lögin, sem Sverrir hefur undanfarið verið að
flytja út um allt við frábærar undirtektir, svo sem
Heimsins elsta ungfrú, Manni/kona, Eplasöngur, Það var
til orð, Þarf þitt þel og Hol djúpsvört nótt. Diskur handa
öllum, sem hafa gaman af vandaðri tónlist og unna góðri
textagerð á móðurmálinu eina og sanna.
Handa allri fjölskyldunni og öllum vinum nær og fjær.
Fæst í öllum helstu plötu- og bókaverslunum.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Tóku upp evruna í
stað þýska marksins
Hvorki Svartfjallaland né önnur lönd sem nota evruna án Evrópusambandsað-
ildar áttu eigin mynt áður. Svartfellingar höfðu notast við þýska markið.
HELSTU HAGTÖLUR 2007
Ísland Svartfjallaland
Mannfjöldi 313.000 625.000
Hagvöxtur 4,9 prósent 7,1 prósent
Atvinnuleysi 2,5 prósent 11,8 prósent
HEIMILDIR: ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN OG
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Landsframleiðsla Íslands
1.293 milljarðar kr.
Landsframleiðsla
Svartfjallalands
200 milljarðar kr.
Myndin sýnir landsframleiðslu
Íslands og Svartfjallalands
hlutfallslega um síðustu ára-
mót. Landsframleiðsla Svart-
fjallalands var þá um 15% af
landsframleiðslu Íslands.
1 Hvað heitir nýi þriggja
geisladiska yfirlitskassinn yfir
feril Rúnars Júlíussonar?
2 Hvað heitir ritstjóri DV?
3 Með hvaða liði í ensku
Championship-deildinni leikur
Jóhannes Karl Guðjónsson?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 34
MENNTAMÁL Einkunnir nemenda í
samræmdu prófunum í fjórða og
sjöunda bekk voru keyrðar út til
skóla á höfuðborgarsvæðinu í gær
og verða afhentar börnunum í
skólanum í morgun. Einkunnir
barna úti á landi voru settar í póst
í gær og ættu því að berast börn-
unum í dag eða á morgun.
Sigurgrímur Skúlason, sviðs-
stjóri hjá Námsmatsstofnun, segir
að úrvinnsluferlið hafi verið flók-
ið og því séu einkunnirnar minnst
tveimur vikum seinna á ferðinni
en stefnt var að. Um 15-20 prósent
nemenda í fjórða bekk fá sérstök
hefti fyrir lesblinda.
„Við erum farin að setja upp
sérstök hefti fyrir krakka sem
eiga erfitt með lestur og skólarnir
eru farnir að biðja um þetta fyrir
stöðugt fleiri nemendur. Þessi
hefti eru með sérstakri leturgerð
þar sem allir stafirnir taka jafn-
mikið pláss og það hefur sett
flækju á skönnunina. Það ferli
þarf að taka lengri tíma,“ segir
Sigurgrímur. „Svo höfum við tekið
ýmiss konar tékk á skönnunina og
það hafa komið upp vandamál svo
að við höfum þurft að senda aftur
í gegn 1.500 hefti.“
Sigurgrímur segir að ekki sé
bara verið að gefa venjulegar ein-
kunnir að þessu sinni heldur hafi
Námsmatsstofnun líka farið út í
það að gefa umsagnir, til dæmis
um það hvernig börn standa sig í
talna- og textadæmum. - ghs
SVIÐSSTJÓRI HJÁ NÁMSMATSSTOFNUN
Sigurgrímur Skúlason segir að vegna
flókins úrvinnsluferlis hafi afhending
einkunna tafist.
Sérstök hefti fyrir börn með lestrarerfiðleika töfðu samræmdar einkunnir:
Flest börn fá einkunnir í dag
STJÓRNMÁL „Það kerfi [umhverfis-
mats] sem við höfum búið við
undanfarin ár er mjög gott og ekki
hægt að kenna því um að við séum
að glata tækifærum,“ sagði Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í
svari við óundirbúinni fyrirspurn.
Fyrirspyrjandi var Jón Gunnars-
son sem spurði hvort iðnaðarráð-
herra tæki ekki undir með sér að
það þyrfti að einfalda og stytta
verkferla í umhverfismati. Borið
hefur við að frestir hafi tafist
umfram það sem heimilt er, sagði
Össur. Það ætti einnig við sitt
ráðuneyti og því hafi hann sett upp
verkferla til að koma í veg fyrir
slíkar tafir innan ráðuneytisins. - ss
Össur Skarphéðinsson:
Umhverfismat
ekki til trafala
VEISTU SVARIÐ?