Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 28
MARKAÐURINN 17. DESEMBER 2008 MIÐVIKUDAGUR
Ú T T E K T
4
„Þótt öll þessi mál nú séu mork-
in og rotin er ekki beint við
neinn að sakast. Samfélagið er
ekki beint spillt,“ segir Bragi
Kristjónsson, fornbókasali með
meiru. Hann segir íslenskt sam-
félag lítið, tengsl manna mörg
og náin ofan í fjölskyldubönd-
in og einkennast af því að hygla
hver öðrum.
Bragi hafði orð á því einna
fyrstur manna í Kiljunni, bók-
menntaþætti Egils Helgasonar
í Ríkissjónvarpinu fyrir fáein-
um vikum, að ríkisstjórnin ætti
að gera ráð fyrir stöðu ættfræð-
ings í teymunum sem rannsaka
hrun bankanna í október og mál
því tengdu.
„Það var jú spilling þegar Jón
Baldvin [Hannibalsson] lét Ing-
ólf Margeirsson hafa 40 flösk-
ur af rauðvíni fyrir afmælið sitt.
Þeir voru pólitískir samherjar,“
bendir Bragi á en útilokar ekki
að það hafi verið vinargjöf. „Það
er svo erfitt að þekkja mörkin,“
segir hann.
Bragi stendur enn við orð sín
um að ríkisstjórnin ráði ein-
hvern sem þekki tengslin
í samfélaginu. Hefði það verið
gert strax í upphafi hefði mátt
spara bæði tíma og peninga.
Hann bendir á rannsókn endur-
skoðunar- og ráðgjafarfyrirtæk-
isins KPMG á Glitni máli sínu
til stuðnings. KPMG er reynd-
ar umsvifamikið endurskoðun-
arfyrirtæki og skrifaði sömu-
leiðis undir reikninga Samsonar
eignarhaldsfélags, kjölfestufjár-
festis Landsbankans.
Líkt og bent hefur verið á
er Sigurður Jónsson, forstjóri
KPMG, faðir Jóns Sigurðssonar,
forstjóra Stoða (áður FL Group),
stærsta hluthafa Glitnis. Rann-
sóknin hafði staðið yfir í tvo
mánuði þegar bent var á fjöl-
skylduböndin. KPMG sagði sig
frá rannsókninni í kjölfarið.
VINABÖND OG ÖNNUR TENGSL
Líkt og Bragi bendir á liggja
tengslin víða í íslensku samfé-
lagi. Fjölskyldutengslin eru þar
nánust en á eftir koma ýmsar
aðrar leiðir, þar sem leiðir skar-
ast í lífi lykilpersóna í íslensku
banka-
og efnahagslífi því sem marg-
ir kalla Nýja Ísland. Mýmörg
dæmi eru um að viðkomandi hafi
stundað saman íþróttir í æsku og
síðar á lífsleiðinni, tekið saman
þátt í æskulýðsstarfi eða geng-
ið saman menntaveginn. Þá hafa
eðlilega margar lykilpersón-
ur í Nýja Íslandi starfað saman
hvort heldur er í bankageiran-
um í Gamla Íslandi eða á öðrum
sviðum.
Sem dæmi var Árni Tómas-
son, nú formaður skilanefndar
Glitnis, áður bankastjóri Bún-
aðarbankans. Líkt og bent var
á skömmu eftir bankahrunið í
október ávítti Fjármálaeftirlit-
ið (FME), sem nú hefur um-
sjón með vinnu hans, Árna fyrir
brot á bankalögum á vordögum
2003. Í byrjun sama árs hafði
Kauphöllin reyndar beitt bank-
ann sem Árni stýrði févíti vegna
brota á flöggunarreglum. Árni
sagði á þeim tíma að hann hefði
fylgt lögfræðiáliti. Hann hætti
störfum mánuði síðar.
Yfirlögfræðingur Búnaðar-
bankans á þeim tíma var Ár-
sæll Hafsteinsson. Hann situr
nú í skilanefnd Landsbankans.
Þar hóf hann störf í viðamiklum
fólksflutningum banka á milli
um svipað leyti og Árni hætti hjá
Búnaðarbankanum.
Ársæll gerði ásamt fleirum
starfsmönnum Landsbankans
kaupréttarsamninga, sem hann
innleysti í í mars í fyrra. Þeir
fengu hlutina á genginu 3,12
krónur á hlut en seldu á rúmlega
tíu sinnum hærra verði.
Fleiri meðlimir skilanefnda
bankanna tengjast fyrirtækj-
unum sem þeir ýmist vinna í
að gera upp eða viðskiptavin-
um þeirra með einum eða öðrum
hætti. Rúmur helmingur skila-
nefndarmanna er fyrrum starfs-
menn bankanna sem þeir sjálf-
ir vinna nú að gera upp. Aðrir
eru endurskoðendur sem tengj-
ast hluthöfum hinna bankanna,
en þó í sumum tilvikum helstu
eigenda þeirra banka sem þeir
gera nú upp.
Þá liggja greinarnar
víðar í félagsstarfi,
svo sem í tengsl-
um við íþróttaiðk-
un. Sem dæmi um
það er formannsseta Steinars
Þórs Guðgeirssonar, formanns
skilanefndar Kaupþings í stjórn
íþróttafélags Fram. Gjaldkeri
Fram er Stefán Hilmarsson,
fjármálastjóri Baugs.
KLAKSTÖÐ HÁSKÓLANS
Þá tengjast margar af lykilpers-
ónum í íslensku efnahagslífi eins
og það lítur út eftir bankahrunið
í gegnum nám, ekki síst háskóla-
pólitíkina.
Háskólapólitíkin hefur um
áratugaskeið, eða allt frá stofn-
un Háskóla Íslands, þótt ágætis
æfingasvæði fyrir þannig þen-
kjandi stúdenta sem rækta með
sér þá drauma að vilja láta að
sér kveða þegar komið er út í
hversdagsleika fullorðna fólks-
ins. Aðrir eru svo einfaldlega
framagjarnari en samnemend-
ur þeirra, nú eða bera hag þeirra
fyrir brjósti.
Mörg mektarmenni þjóðar-
innar hafa mótast á leiksviði
háskólapólitíkurinnar, svo sem
Thor Thors, einn sona Thors
Jensen, sem var formaður Stúd-
entaráðs á þriðja tug síðustu
aldar, Agnar Klemens Jóns-
son, síðar sendiherra, um ára-
tug síðar, og Geir Hallgrímsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
borgarstjóri og síðar forsæt-
isráðherra, sem vermdi
formannssæti Vöku
veturinn eftir seinni
heimsstyrjöld. Aðrir
nafntogaðir einstakl-
ingar í formannsstóli
Stúdentaráðs í seinni
tíð sem tengjast ís-
lensku efnahagslífi
í dag eru svo þau
Össur Skarphéð-
insson iðnaðar-
ráðherra sem sat
Jónas Fr.
Jónsson
Nafn Tengsl
Lárus Finnbogason Formaður skilanefndar. Yfirmaður endurskoðunarsviðs
Deloitte.
Ársæll Hafsteinsson Var áður yfirlögfræðingur Búnaðarbankans en fór
síðar yfir til Landsbankans.
Einar Jónsson
Lárentsínus Kristjánsson Var í Vöku ásamt núverandi forstjóra FME. Einn eigenda
Deloitte.
Sigurjón Geirsson Var endurskoðandi Landsbankans.
Margar og þéttar greinar í uppgjörstrénu
Lykilpersónur íslenska bankahrunsins tengjast með einum eða öðrum hætti. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson gerði tilraun til að
rýna í tengslatréð og komst að því að greinarnar eru margar, flóknar og tengjast bæði fjölskyldu- og vinaböndum.
Nafn Tengsl
Árni Tómasson Formaður skilanefndar. Fyrrverandi bankastjóri
Búnaðarbankans. Stjórnarmaður í Alfesca, félags að
stórum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar, stórs hluthafa
Kaupþings.
Heimir Haraldsson
Sverrir Örn Þorvaldsson Var framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Glitni.
Kristján Óskarsson Var framkvæmdastjóri útibúasviðs og eignafjármögn-
unar hjá Glitni.
Páll Eiríksson Var áður hjá Glitni.
S K I L A N E F N D G L I T N I S
Nafn Tengsl
Steinar Þor Guðgeirsson Formaður skilanefndar. Starfar hjá Lögmönnum
Reykjavíkur. Framkvæmdastjóri Fram. Gjaldkeri Fram
er Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs.
Knútur Þórhallsson Stjórnarmaður Deloitte og endurskoðandi Exista,
stærsta hluthafa Kaupþings. Skrifaði upp á skráning-
arlýsingu fyrir samruna Búnaðarbankans og Kaupþings
árið 2003.
Bjarki H. Diego Var áður framkvæmdastjóri útlána hjá Kaupþingi.
Guðný Arna Sveinsdóttir Var áður fjármálastjóri Kaupþings.
Guðni Níels Aðalsteinsson Var áður framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings.
S K I L A N E F N D K A U P Þ I N G S
S K I L A N E F N D L A N D S B A N K A N S
Sigurjón Þ. Árnason Hreiðar Már Sigurðsson Finnur Ingólfsson
Björgvin G.
Sigurðsson
Melódíur minninganna
Hafl iði
Magnússon
alþýðulistamaður
við ritvélina
heima á Bíldudal
á árum áður.
Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal er merkisberi alþýð-
unnar á listasviðinu. Hann fékk tónlistargáfu og
listhneigð í vöggugjöf. Þessar gáfur hefur hann
varðveitt og þroskað af stakri trúmennsku.
Jón Kr. hefur verið trúr heimahögunum alla tíð
og lagt drjúga hönd á margt sem komið hefur
samfélaginu til góða.
Söngurinn hefur ætíð átt hug hans og verið í
senn dægrastytting og hrein ástríða. Mér segir
svo hugur að þegar nafn Bíldudals ber á góma
í framtíðinni eigi margir eftir að tengja staðinn
við nafn Jóns Kr. Ólafssonar og félaga hans í
hljómsveitinni Facon, sem stimpluðu nafn Bíldu-
dals rækilega inn á tónlistarkortið á síðari hluta
20. aldar.
Jónatan Garðarsson