Fréttablaðið - 17.12.2008, Blaðsíða 50
22 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Almáttugur!
Þetta er
konan mín!!
Fljót, farðu
úr fötunum!
Pondus!
Svona nú,
þetta er búið!
Nei! Slepptu mér! Ég skal
ná að fýra upp í einum
borgara! Og kannski einni
eða tveimur pulsum!
ÉG
VISSI
ÞAÐ!
(Ahem!)
Nú skulum
við ræða um
kynlíf...
Hvað gæti verið
betra en það!?!
Hugleiðingar
úr dýraat-
hvarfinu
Kisi og
bróðir
hans
Kisi bróðir minn
hefur verið
ættleiddur!
Pabbi, viltu
spila damm
við mig?
Ókei,
ekkert
mál.
DAMM!
DAMM!
Ég fæ að
spila
damm!
DAMM! DAMM!
DAMM! DAMM!
Ókei Solla,
þetta er tilbúið.
Þú byrjar.
Þetta er
leiðinlegt.
Samsæriskenningar lifa góðu lífi á Íslandi. Þeirra er sviðið þessa dagana. Ég fagna því. Ég hef þá loksins fundið
frjóan jarðveg fyrir kenningu mína um
bankahrunið og efnahagsvandræðin. Hún
kann að þykja í ætt við kenningar Dan
Brown. Hugsanlega verður mér líkt við
Jerry Fletcher úr Conspiracy Theory. Mér
er sama; sannleikurinn verður að koma
fram.
Kenningin er þessi: Í febrúar á
þessu ári kom hingað til lands ítalski
verkfræðingurinn og dulmálssérfræð-
ingurinn Giancarlo Gianazza. Hann
taldi sig hafa vitneskju um að hinn
heilagi kaleikur sem Jesús Kristur notaði
við síðustu kvöldmáltíðina væri í Hruna-
mannahreppi, sveit Ísólfs Gylfa Pálmason-
ar. Gianazza hafði á réttu að standa. Eins og
sýnt var skýrt og skilmerkilega í
Indiana Jones-myndinni The Last
Crusade þá öðlast sá sem drekkur af
kaleiknum eilíft líf. Valdamikla aðila
dreymdi um þann munað og þess vegna var
fréttinni um fundinn stungið undir stól.
Ekkert hefur spurst til Giancarlo síðan
þá. Giancarlo er sagður vera á eyju í
Karíbahafinu samkvæmt mínum heimild-
um. Nafnið kann að hljóma kunnuglega;
Tortola. Gripurinn er hins vegar geymdur
undir þiljum skrifstofunnar sem hýsir
ráðgjafarfyrirtæki Sigurjóns Árnasonar,
fyrrum bankastjóra Landsbankans.
Ráðandi öflum var því eðlilega í mun að
stoppa frétt DV um Sigurjón. Leigumorð-
inginn Silas hefði nefnilega farið á stjá.
Litla fréttin var í raun heimsfrétt sem
breytt hefði veraldarsögunni, hin ráðandi
öfl vildu ekki deila eilífa lífinu með
almúganum. Og kaleikurinn verður
kirfilega falinn fyrir umheiminum. Á
Íslandi.
Alveg eins líklegt
NOKKUR ORÐ
Freyr Gígja
Gunnarsson
UNIVERSAL
C O N T O U R W R A P
TM
líkamsvafningur
Grennandi
Með Universal líkamsvafningi
missir þú í minnsta lagi 15 cm
í hvert skipti.
Fljótlegur árangur
sem skilar sér strax.
Hverju hefur þú að tapa?
Stórhöfða 17,
110 Reykjavík,
Sími: 577 7007
Kraftmiklar ryksugur
fyrir öll heimili
Verð frá kr.:
22.995