Fréttablaðið - 17.12.2008, Síða 58
30 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Handboltakappinn Guðjón Valur Sig-
urðsson sat á fremsta bekk í SAP Arena
síðastliðið laugardagskvöld þegar Vladimir
Klitschko og Hasim Rahman kepptu í
heimsmeistarabardaga í þungavigt.
Bardaginn fór fram á sama stað og
félag Guðjóns, Rhein-Neckar Löwen,
spilar heimaleiki sína í en þangað
fór hann í boði liðsfélaga síns,
þýska landsliðsmannsins Oliver
Roggisch.
„RTL-sjónvarpsstöðin mun sýna frá
HM í handbolta í janúar og er því að
kynna mótið eins og það getur. Liður í
kynningarstarfseminni er að setja upp
léttan sýningarbardaga á milli Roggisch
og Riddicks Bowe sem er gömul hetja í
þungavigtinni.
Hann var einmitt að keppa sama
kvöld á undan Klitschko. RTL gaf því
Roggisch tvo miða á besta stað. Konan
hans komst ekki með og því bauð hann
mér. Það var algjör snilld og hreinlega
ekki hægt að kaupa svona sæti.
Við vorum nánast upp við
hornið hjá Rahman.
Efa að ég fái að
upplifa svona box
í slíkum
sætum aftur,“
sagði Guðjón
Valur himinlifandi
en hann sat ekki með
neinum meðalmönnum.
„Við hliðina á mér var FC
Bayern-stjarnan Lukas Podolski og
við hliðina á Roggisch var síðan
Michael Buffer. Fyrir aftan okkur var
síðan kona Rahmans og á stundum hálfgrát-
andi enda verið að berja hressilega á mann-
inum hennar,“ sagði Guðjón Valur en fyrir
þá sem ekki vita er Michael
Buffer frægasti kynnir heims
sem hefur gert setninguna
„Let´s get ready to rumble“
ódauðlega.
„Þetta var afar gaman og
þeir félagar voru kump-
ánlegir og gaman að
spjalla við þá. Það var
mikið verið að mynda
okkur og ljósmyndararnir
hafa eflaust mikið spáð
í það hver þessi óþekkti
væri sem sæti hjá Podolski,“
sagði Guðjón Valur af sinni
víðfrægu hógværð.
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON: Í SANNKÖLLUÐUM STJÖRNUFANS Á BOXBARDAGA KLITSCHKO OG RAHMANS
Guðjón sat með Michael Buffer og Lukas Podolski
HANDBOLTI Skjótt skipast veður í lofti hjá Ólafi
Stefánssyni. Fyrir nokkrum vikum var hann á
leið til danska C-deildarliðsins AG Handbold.
Ekkert verður af því þar sem maðurinn sem
ætlaði að gera AG að stórveldi, Jesper Nielsen,
er hættur við þær áætlanir sínar og ætlar frek-
ar að gera Rhein-Neckar Löwen, sem Guðjón
Valur Sigurðsson leikur með, að stórveldi.
Nielsen undirstrikaði þann metnað sinn í
gær þegar hann réð handboltagoðsögnina Noka
Serdarusic sem þjálfara til næstu þriggja ára.
Serdarusic gerði Kiel að besta handboltaliði
heims þegar hann þjálfaði það í 15 ár. Nielsen
er þess utan búinn að bjóða Ólafi Stefánssyni
að koma með sér til Löwen.
„Ég tel afar líklegt að ég taki þessu tilboði
sem er fáránlega gott. Það er eiginlega ekki
hægt að hafna því og væri í raun vanvirðing.
Þetta er samningurinn sem ég átti að fá í Dan-
mörku fyrir utan að ég fæ þriggja ára launin
mín þar á tveimur árum hjá Löwen. Það væri
því hálfgert grín að segja nei. Ég er samt enn
aðeins að melta þetta,“ sagði Ólafur við Frétta-
blaðið í gær og neitaði ekki að tíðindin hefðu
komið honum aðeins í opna skjöldu.
„Ég var náttúrlega gíraður inn á að fara til
Danmerkur. Ég get það í rauninni enn ef ég vil
en það er ekkert vit í því þar sem forsendurnar
fyrir árangri eru brostnar þar. Það er vissu-
lega spennandi dæmi í gangi handboltalega séð
hjá Löwen líka. Tala nú ekki um þar sem
Serdarusic er orðinn þjálfari og von á
fleiri sterkum leikmönnum. Annars
stendur mér margt til boða. Gæti
spilað hér áfram meðal annars en
ég var búinn að innstilla mig á
breytingar og því er líklegt að ég
fari til Löwen,“ sagði Ólafur sem
gerir ráð fyrir að ákveða sig endan-
lega fyrir jól.
Hinn skrautlegi Jesper Nielsen
kom enn eina ferðina á óvart með
þessu útspili sínu í gær að hætta
við ævintýraverkefnið með
AG. Hann viðurkenndi
í kjölfarið að það hafi
verið frekar óraun-
hæft að gera AG að
stórveldi.
„Ég er að flytja
með fjölskylduna
til Þýskalands og
fékk spennandi til-
boð frá Löwen sem
erfitt var að
hafna. Ég mun
taka við sem
stjórnarformað-
ur Löwen 1. júlí
næstkomandi. Ég
mun engu síður
styrkja AG
áfram en þó í
minna mæli
en ég ætlaði
mér,“ sagði
Nielsen við
Frétta-
blaðið í
gær.
Hann
staðfesti
enn fremur
að hann væri búinn að ráða
Serdarusic og hefði gert Ólafi
freistandi tilboð.
„Ég er mjög nálægt því að
ná samningi við Ólaf. Ég vona
svo innilega að hann taki okkar tilboði og það
væri mikill heiður ef hann vill spila fyrir
okkur,“ sagði Nielsen og bætti við að
hann ætlaði sér að hafa skandinavísk
áhrif í liðinu sem hefur að hluta til
verið borið uppi af Pólverjum meðal
annars.
„Ég er í viðræðum við sterka leik-
menn frá Skandinavíu og á næstu
leiktíð teflum við fram mjög sterku
liði sem verður með skandinavískum
blæ. Það verða fleiri tíðindi frá okkur
á næstu dögum,“ sagði Nielsen að
lokum.
henry@frettabladid.is
Vanvirðing að hafna þessu tilboði
Ólafur Stefánsson segir mjög líklegt að hann taki tveggja ára samningstilboði Rhein-Neckar Löwen. Ekkert
verður af því að Ólafur fari til Danmerkur þar sem skartgripajöfurinn Jesper Nielsen er hættur við að gera
AG að stórveldi. Hann fer með peningana sína til Löwen í staðinn þar sem hann verður stjórnarformaður.
SKRAUTLEGUR Jesper Nielsen er til í að greiða Ólafi
það sama á tveim árum í Þýskalandi og hann ætlaði
að gera á þrem árum í Danmörku.
TIL GUÐJÓNS
VALS? Ólafur
Stefánsson mun
líklega spila með
Guðjóni Vali
Sigurðssyni hjá
Rhein-Neckar
Löwen næsta
vetur.
NORDIC PHOTOS/AFP
> Ísland mætir Liechtenstein
Karlalandslið Íslands í fótbolta mætir Liechtenstein
í vináttulandsleik á La Manga á Spáni 11. febrúar á
næsta ári en þetta var staðfest á heimasíðu KSÍ í gær.
Ísland hefur fjórum sinnum mætt Liechtenstein og
tvisvar sinnum unnið en í síðustu tveimur viðureignum
þjóðanna, í undankeppni EM 2008, hafði Liechten-
stein yfirhöndina með 1-1 jafntefli og 3-0 sigri. Um
alþjóðlegan leikdag er að ræða og því mun landsliðs-
þjálfarinn Ólafur Jóhannesson geta kallað
til sína bestu leikmenn í verkefnið sem
er til undirbúnings fyrir undankeppni
HM 2010 sem hefst að nýju 1. apríl á
næsta ári með leik gegn Skotlandi.
KÖRFUBOLTI Það verður stórleikur í
8 liða úrslitum Subway-bikars
karla því topplið KR dróst á
heimavelli gegn Íslandsmeistur-
um Keflavíkur. Liðin mætast
síðan aftur í deildinni skömmu
síðar. Það er líka annar úrvals-
deildarslagur þegar Grindavík
tekur á móti ÍR. Hjá konunum eru
þrír úrvalsdeildarslagir. - óój
Subway-bikarinn í körfu:
Stórleikur KR
og Keflavíkur
STUÐ Í DHL-HÖLLINNI Það má búast við
góðri mætingu á leik KR og Keflavíkur.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opið virka daga kl. 8:00 til 17:00
www.velaland.is
VESTURLANDSVEGUR
VAGNHÖFÐI
VÉLALAND
HÚSGAGNA-
HÖLLIN
TANGARHÖFÐI
BÍlDSHÖFÐI
H
Ö
FÐ
A
B
A
K
K
I
REYKJAVÍK
Vélaland - VAGNHÖFÐA 21
Sími 577-4500
Vélaland sérhæfir sig í tímareimum.
Komdu í Vélaland og fáðu ráðgjöf um skiptingu
á tímareim. Vélaland skiptir fljótt og vel um
tímareimina fyrir þig, á föstu verði.
Fáðu ráðgjöf um tímareimaskipti
Er tímareimin komin á tíma?
Fast verð hjá Vélalandi
Skoðaðu fast verð hjá Vélalandi. Hringdu
núna í síma 577-4500 og pantaðu tíma.
Verðdæmi um tímareimaskipti:
Nissan Patrol 2,8 dísil Árgerð 1992-2000
Heildarverð, varahlutur og vinna: 35.271 kr.
Toyota Land Cruiser 90 D4D Árgerð 2000-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 26.283 kr.
Toyota Corolla 1,6 bensín Árgerð 1997-2001
Heildarverð, varahlutur og vinna: 34.212 kr.
VW Golf 1,6AEE bensín Árgerð 1997-2006
Heildarverð, varahlutur og vinna: 44.555 kr.
Ford Focus 1,6 bensín Árgerð 1998-2005
Heildarverð, varahlutur og vinna: 37.109 kr.
Sjáðu hvar við erum. Hringdu núna í síma
577-4500 og pantaðu tíma.
FÓTBOLTI Stjórn Blackburn
tilkynnti í gær að félagið hafi
ákveðið að reka knattspyrnustjór-
ann Paul Ince eftir aðeins tæpa
sex mánuði í starfi. Leit að
eftirmanni stendur nú yfir en
vonast er til þess að hann verði
fundinn fyrir næstu helgi.
Archie Knox, þjálfari aðalliðs-
ins, og Karl Robinson, aðstoðar-
maður hans, stýra Blackburn
þangað til nýr knattspyrnustjóri
finnst. - óþ
Blackburn leitar að stjóra:
Ince sparkað
INCE Var í gær rekinn sem knattspyrnu-
stjóri Blackburn. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son og félagar í Rhein-Neckar
Löwen gerðu sér lítið fyrir og
slógu Flensburg úr leik í 16 liða
úrslitum þýska bikarsins í hand-
bolta í Campushalle í gærkvöld
með 26-27 sigri.
Flensburg leiddi leikinn örugg-
lega í fyrri hálfleik og var alltaf
skrefinu á undan Rhein-Neckar
Löwen en staðan í hálf-
leik var 16-13 heima-
mönnum í vil.
Í síðari hálfleik
var allt annað að
sjá til Rhein-
Neckar Löwen og
liðið náði smátt og
smátt að vinna upp
forskot Flensburg og
þegar tíu mínútur lifðu
leiks jafnaði Guðjón
Valur metin, 24-24.
Lokamínúturnar voru gríðar-
lega spennandi en á endanum
voru það leikmenn Rhein-Neck-
ar Löwen sem fóru með 26-27
sigur af hólmi.
Innkoma markvarðarins Henn-
ing Fritz vó þungt í sigri Rhein-
Neckar Löwen en hann varði
þrjú vítaköst á mikilvægum
augnablikum á lokakaflanum.
Guðjón Valur var markahæst-
ur hjá Rhein-Neckar Löwen með
fimm mörk ásamt Christi-
an Schwarzer og Uwe
Gensheimen en hjá
Flensburg var Lars
Christiansen með tíu
mörk. - óþ
Leikið var í 16 liða úrslitum þýska bikarsins í gær:
Flensburg úr leik
ÖFLGUR Uwe Gensheim-
er átti góðan leik fyrir
Rhein-Neckar Löwen í
gær. NORDIC PHOTOS/GETTY
8 LIÐA ÚRSLIT BIKARSINS:
Konur:
Skallagrímur -Hekla Haukar-KR
Fjölnir-Valur Keflavík -Hamar
Karlar:
Njarðvík-Haukar KR-Keflavík
Grindavík-ÍR ÍBV/Stjarnan-Valur