Fréttablaðið - 17.12.2008, Page 62
34 17. desember 2008 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
NÝJU JÓLASVEINARNIR
LÁRÉTT 2. mælieining, 6. samþykki,
8. framkoma, 9. rjúka, 11. skóli, 12.
neðst, 14. bátur, 16. í röð, 17. fornafn,
18. ennþá, 20. þessi, 21. velta.
LÓÐRÉTT 1. dekk, 3. hvort, 4. alls, 5.
kæla, 7. áleitinn, 10. siða, 13. tala, 15.
klúryrði, 16. húðpoki, 19. núna.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. desí, 6. já, 8. fas, 9. ósa,
11. ma, 12. lægst, 14. kajak, 16. hi, 17.
öll, 18. enn, 20. sá, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. hjól, 3. ef, 4. samtals, 5.
ísa, 7. ásækinn, 10. aga, 13. sjö, 15.
klám, 16. hes, 19. nú.
Sá sjötti, Nonni Ásgeir,
var alveg dæmalaus.
Út úr rassi Bónusgríssins
rak sinn síðhærða haus.
Er fólkið fyllti pokana
af billegum baunum og tólg
hann keypti upp hálfa Evrópu
og fór í partí með ÓRG.
Tónlistarkonan Lay Low er á lista
iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu
bestu nýliðana í flokki þjóðlaga-
tónlistar. Þetta kemur fram á
heimasíðu þessarar vinsælustu
tónlistarveitu heims, þar sem fólk
er jafnframt hvatt til að kaupa
hennar nýjustu plötu, Farewell
Good Night´s Sleep.
„Þetta er alveg frábært og
gefur góð fyrirheit fyrir árið
2009,“ segir Kjartan Sturluson,
umboðsmaður Lay Low. „Það er
tíu manna teymi hjá iTunes sem
velur þessa árslista og það þykja
víst ekki slæmar tvíbökur að
lenda á þeim, enda fara 85 prósent
af allri sölu á netinu í gegnum
iTunes.“
Um sérlega góða kynningu er að
ræða fyrir Lay Low sem hyggur á
mikið tónleikahald erlendis á
næsta ári til að fylgja plötunni
eftir. Nýverið náði hún samkomu-
lagi við Nettwerk Music Group
um þriggja platna samning og
mun hróður hennar því væntan-
lega aukast stórlega á næstunni.
Auk þess að hita upp fyrir Emilí-
önu Torrini á tónleikaferð um
Evrópu á næsta ári hefur Lay Low
ákveðið að spila í Kaupmannahöfn
í fyrsta sinn sjötta mars. Að auki
hefur hljómsveit hennar, Benny
Crespo´s Gang, verið boðið að
spila á South By Southwest-hátíð-
inni í Texas á næsta ári. - fb
Í hópi bestu nýliða á iTunes
LAY LOW Söngkonan knáa er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í
flokki þjóðlagatónlistar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er voðalega gaman. Mynd-
irnar fjalla meðal annars um
stríð, svik og sorg,“ segir Kristín
Ragna Gunnarsdóttir myndlistar-
maður sem nýverið seldi heila
myndlistarsýningu til Danmerk-
ur.
Kristín Ragna hélt í september
sýningu í Þjóðminjasafninu á
myndverkum sem eru í bókinni
Örlögum guðanna sem er eftir
Kristínu við texta Ingunnar
Ásdísardóttur. Daninn Ib Hessov
rambaði þar inn, hreifst svo mjög
af myndunum að heim kominn
setti hann sig í samband við Krist-
ínu. Kom þá á daginn að hann er
innkaupastjóri fyrir virt lista-
verkasafn í eigu spítala í Árósum
– Kunstudvalget v/ Århus Syge-
hus. Safnið einbeitir sér að
nútímalist og er virt í sinni sveit.
Hann hafði engar vöflur á og
keypti alla sýninguna.
„Já, þetta var sölusýning,“
segir Krisín Ragna sem fagnar
því að myndirnar fái að fylgjast
að. Um er að ræða 21 mynd af um
60 myndum sem prýða bókina
Örlög guðanna sem hlaut á dög-
unum tilnefningu til hinna
Íslensku bókmenntaverðlauna.
Kristín sérvaldi myndirnar á sýn-
inguna þannig að þær mynda eina
heild.
„Ég eyddi miklum tíma í að
velja myndirnar saman og texti
Ingunnar, sem nú er verið að þýða
yfir á dönsku, lýsir stemningum
þeirra. Þær byggja á sögum úr
norrænni goðafræði, fjalla um
sköpunina, þegar svo heimurinn
hefur tortímst og vonin vaknar á
ný.“
Myndirnar, sem hver um sig er
63x39 og leggja því undir sig
góðan vegg saman, hafa verið
sendar til Danmerkur og er verið
að taka þær upp þar. Kristín segir
að gaman væri að fara út til að
vera við opnunina en veit ekki
hvað verður í kreppunni. Hún
svarar ábendingu blaðamanns um
að ekki ætti að vera mikið mál
fyrir danskinn að standa undir
kostnaði vegna þess í ljósi gengis-
mála hlær Kristín og segir: „Já,
við erum víst á útsölu.“
Og ekki er hægt að segja að
þessi gullfallegu myndverk hafi
verið dýr en Kristín verðlagði
þær hverja um sig á 24 þúsund
krónur. „Með það fyrir augum að
fólk gæti eignast myndirnar,“
segir hún.
En þetta þýðir að Ib Hessov
hefur greitt fyrir verkin rúma
hálfa milljón. En líklega leggst
einhver kostnaður þar á.
jakob@frettabladid.is
KRISTÍN RAGNA GUNNARSDÓTTIR: VIÐ ERUM Á ÚTSÖLU
Seldi myndlistarsýningu
í heilu lagi til Danmerkur
KRISTÍN RAGNA Seldi heila sýningu til Danmerkur og fagnar því að verkin fái að
fylgjast að. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta var ótrúlega skemmtilegt, ég fékk að
hitta bæði liðin og spjallaði aðeins við
fyrirliðann Paul Pierce,“ segir Stefán Karl
Stefánsson leikari. Velgengni hans sem Trölli
virðist engan endi ætla að taka en leikarinn
var sérstakur heiðursgestur á leik Boston
Celtics og Utah Jazz á mánudaginn í Bank-
north Garden, heimavelli Boston. Stefán atti
kappi við lukkutröll liðsins sem hefur í fimm
ár reynt að hitta ofan í körfuna fyrir aftan bak
frá miðju. Stefán gerði sér lítið fyrir og hitti í
fyrstu tilraun. „Þakið ætlaði bókstaflega að
rifna af byggingunni,“ segir Stefán en
Banknorth Garden tekur 35 þúsund manns í
sæti.
Stefán hafði sitthvað upp úr krafsinu. Fékk
meðal annars áritaða treyju frá Pierce og var
einmitt að horfa á hana þegar Fréttablaðið
náði tali af honum. Þá varð hann þess heiðurs
aðnjótandi að máta meistarahring sem
meistarar NBA-deildarinnnar fá fyrir sigur
sinn. „Hann var ansi þungur, skreyttur með
demöntum og gimsteinum,“ segir Stefán.
Hann verður í tvær vikur til viðbótar í Boston
en síðan liggur leiðin til Los Angeles. Og þótt
Stefán vilji ekki meina að framtíðin liggi í
lukkutrölla-bransanum þá neitar hann því
ekki að óneitanlega yrði skemmtilegt að
endurtaka leikinn hjá Los Angeles Lakers en
stórleikarinn Jack Nicholson er einn heitasti
aðdáandi liðsins. „Það væri ekkert leiðinlegt
að rekast á hann,“ segir Stefán.
Stefán Karl tryllti Boston-aðdáendur
MEÐ GOÐSÖGNINNI HEINSOHN Stefán heilsaði upp á
Tommy Heinsohn, sem er goðsögn í Boston og var í
gullaldarliði liðsins á árunum 1959 til 1966.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Guðmundur Steingrímsson og
félagar hans í hljómsveitinni Ske
eru að leggja lokahönd á nýja
plötu. Meðlimir hljómsveitarinnar
hafa farið sér í engu óðslega við
gerð plötunnar, ferlið spannar yfir
tvö ár, og hafa engan áhuga á að
blanda sér í jólaplötuflóðið. Þess
í stað áforma þeir að platan komi
út um miðjan janúar og
eftir það verður blásið til
tónleikahalds. Reyndar
verður Ske svo óstarf-
hæf í kjölfarið þegar
tveir meðlimanna
eiga von á barni en
eftir það ætlar þessi
rólega hljómsveit að
láta sverfa til stáls.
STEF dreifði ávísunum í síðustu
viku til tónsmiða og textahöfunda
fyrir afrek þeirra á árinu 2007.
Einn þeirra sem brosir breitt þessa
dagana er hinn ástsæli lagahöf-
undur Örlygur Smári en tékkinn frá
STEF bjargar jólunum hjá honum
og mörgum tónlistarmanninum
öðrum. Einkum eru
það lögin sem gull-
hænan Páll Óskar
söng: Allt fyrir ástina,
International og
Betra líf sem eru
að gera sig fyrir
Örlyg en þau
tröllriðu öllu á
árinu 2007.
Reyndar, sé litið til lista sem Óli
Palli og félagar á Rás 2, sem telja
sig útverði íslenskrar nýgildrar
tónlistar, birta á síðu sinni yfir mest
spiluðu lögin ársins 2007 þá tróna
Sprengjuhallarmenn þar efst á
blaði með lagið „Verum í sam-
bandi“. Þannig að þeir eiga fyrir
jólagjöfum til vina sinna,
Snorri Helgason og
félagar, eftir tékkann
góða frá STEF. Árangur
þeirra er sérlega
eftirtektarverður því
þá komu þeir fyrst
fram á sjónar-
sviðið.
- hdm, jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Söngvar um lífið.
2 Reynir Traustason.
3 Burnley.