Fréttablaðið - 17.12.2008, Side 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar Proppé
Í dag er miðvikudagurinn 17.
desember, 352. dagur ársins.
11.19 13.23 15.29
11.35 13.05 14.42
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Dagur rís á ný og ég bý mig undir verkefni dagsins. Þar sem ég er
í ríkisstjórn er annasamur dagur
fram undan. Það er fundur á eftir
og við þurfum að fara betur yfir
fjárlagafrumvarpið. Hvar eigum
við að skera niður í þessari ólgutíð?
Þótt við höfum sagst ætla að efla
menntun í kreppunni er nú ansi
mikið sem fer í þann málaflokk og
alls staðar verður að skera niður.
Og hvað með Vatnsveginn upp á 110
milljónir? Nei, hann verður að vera.
Úff, ýmist er maður skammaður
fyrir að skera niður á Landspítalan-
um, sagður vega að rekstri hjúkrun-
arheimila háskólans. Jæja Þjóð-
kirkjan er í það minnsta sæmilega
sátt. Best að fara að koma sér. Mikið
vona ég að ekki verði mikið af fólki
við Tjarnargötuna með þessi ótætis
hróp. Það er þó alltaf hægt að nota
bakdyrnar.
DAGUR rís á ný og ég bý mig undir
verkefni dagsins. Það er ríkisstjórn-
arfundur í dag og við í lögreglunni
verðum að vera til taks. Allir eru
reiðir og líklega verður mótmælt
þar aftur. Skelfilegt hvað þetta unga
fólk er reitt. Það verður að skilja að
ákveðnar reglur gilda í samfélag-
inu. Án þeirra ríkti stjórnleysi. Ég
skil samt vel að fólk sé reitt. Afborg-
anirnar af húsinu mínu hafa tvö-
faldast og hvernig á ég að borga af
bílnum um næstu mánaðamót? Og
ekki veit maður hvað verður í mál-
efnum lögreglunnar, það er enginn
öruggur. Nú á meira að segja að
fara að loka yfirfullum fangelsum.
Ætli eigi að setja fangana líka á
atvinnuleysisbætur? Jæja, best ég
komi mér svo við mætum á undan
ráðherrunum.
DAGUR rís á ný og ég bý mig undir
verkefni dagsins. Ekki að þau séu
mörg. Það er borin von að ég fái
aðra vinnu í bráð, ekki eins og
ástandið er. Nú verða þessir ráða-
menn að fara að gera eitthvað.
Hvernig stendur á því að menn
keyra í gegn hækkanir á hinum og
þessum álögum en allt sem heitir
stuðningur við almenning velkist
um innan kerfisins dögum saman
og bíður afgreiðslu? Þetta er ekki
hægt. Ég vona að það mæti margir á
eftir. Eina leiðin til að ráðamenn
skilji þetta er að þeir heyri það
milliliðalaust frá okkur. Frá fólk-
inu. Og kannski sýður upp úr, reiðin
er slík. Ekki að það sé ætlunin. En
það er eins og ekki allir átti sig á að
þetta er vandinn okkar. Mikið væri
því gaman ef hlustað væri á okkur.
Jæja, best ég drífi mig svo við
komum á undan löggunum.
MISJÖFN eru morgunverkin í
kreppunni.
Misjöfn eru
morgunverkin