Fréttablaðið - 29.12.2008, Qupperneq 4
4 29. desember 2008 MÁNUDAGUR
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
AFGANISTAN, AP Fjórtán börn á
aldrinum 8 til 10 ára létust í
sjálfsmorðsárás í Khost í Afgan-
istan í gær, samkvæmt bandaríska
hernum. Afganskur hermaður og
öryggisvörður létust einnig í
árásinni. Um sextíu manns til
viðbótar særðust.
Árásarmaðurinn sprengdi sig í
loft upp í námunda við barnaskóla
og lögreglu- og herstöð. Talið er að
hann hafi ætlað að ráðast á fund
öldunga úr Pastúna-ættbálkinum.
Á laugardag létust þrjár
unglingsstúlkur í eldflaugaárás í
Kabúl. Þá létust tveir kanadískir
hermenn og tveir Afganar í
vegsprengingu á laugardag. - þeb
Sjálfsmorðsárás í Afganistan:
Fjórtán börn
létust í árás
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
14°
2°
2°
0°
2°
1°
1°
3°
1°
3°
20°
4°
8°
25°
-4°
3°
12°
0°
5
Á MORGUN
8-13 m/s norðan og
norðvestan til, annars 3-8.
7
6
3
1
-3
4
8
8
6
1
13
13
5
5
3
5
3
5
6
10
6
GAMLÁRSKVÖLD
10-15 m/s syðst á
annesjum, annars 3-8.
-2 -1
-3
45
-1 1
-2
22
OG ENN AF ÁRA-
MÓTAVEÐRINU
Veðrið um sjálf
áramótin er nú
farið að taka á
sig nokkuð skýra
mynd. Strekkings-
vindur verður á
annesjum allra
syðst, annars
hægur vindur.
Stöku él verða á
Vestfjörðum og
annesjum nyrðra,
dálítil rigning eða
slydda suðaust-
an til, annars
úrkomulítið eða
úrkomulaust.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GAZABORG, AP Ísraelar héldu í gær
áfram loftárásum á Gazasvæðið,
sem hófust á laugardag og hafa
kostað nokkur hundruð manns
lífið. Þetta eru mannskæðustu
árásir Ísraela á Palestínumenn
síðan í stríðinu 1967.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var kallað saman í gær. Ráðið sendi
frá sér yfirlýsingu þar sem það
lýsti yfir miklum áhyggjum af
ástandinu og skorar á bæði Ísraela
og Palestínumenn að leggja niður
vopn þegar í stað.
Þá segir Navi Pillay, mannrétt-
indafulltrúi Sameinuðu þjóðanna,
að árásir Ísraelshers á Gazasvæðið
séu í engu samræmi við sprengju-
flaugaárásir Hamas-samtakanna á
Ísraela. Hún hvetur Ísraela til að
forðast hóprefsingar og beina ekki
árásum sínum að almennum
borgurum.
Palestínsk mannréttindasamtök
fullyrtu að tuttugu börn og níu
konur hefðu verið meðal um 250
látinna, sem þau höfðu aflað sér
upplýsinga um. Samtökin segja þó
erfitt að halda tölur yfir mannfall-
ið, vegna þess hve mikil ringulreið
er á sjúkrahúsum.
Árásunum hefur verið mótmælt
víða um heim. Bæði stjórnvöld og
almenningur hafa látið í ljós andúð
sína á þessum hernaði.
Í London söfnuðust um 700
manns saman fyrir utan ísraelska
sendiráðið til að sýna andstöðu
sína. Í París söfnuðust um 1.300
manns saman í Barber-hverfi, þar
sem íbúarnir eru margir hverjir
arabískir að uppruna. Einnig efndu
um 150 manns til mótmæla við
Sigurbogann.
Í Mið-Austurlöndum, allt frá Líb-
anon til Írans, hefur fólk safnast
saman þúsundum saman til að for-
dæma árásirnar. Forsætisrá
ðherra Tyrklands, Recep Tayyip
Erdogan, sagði árásirnar vera glæp
gegn mannkyni.
Í gær var árásunum einkum
beint að jarðgöngum undir landa-
mæri Gazasvæðisins og Egypta-
lands, sem meðal annars hafa verið
notuð til að smygla vopnum yfir á
Gazasvæðið, en einnig hafa íbúar á
Gaza notfært sér þessa leið til að
útvega sér brýnustu nauðsynjar,
sem ekki hefur verið hægt að flytja
inn á svæðið með öðrum hætti.
Landamæramúrinn milli Egypta-
lands og Gazasvæðis var rifinn
niður á nokkrum köflum og fólk
streymdi yfir hundruðum saman.
Sums staðar kom til átaka við
egypska landamæraverði, og
hlaust eitthvert mannfall af.
Tzipi Livni, utanríkisráðherra
Ísraels, segir að árásirnar hafi
verið gerðar vegna þess að stjórn-
endur Hamas-samtakanna væru að
smygla inn vopnum og byggja upp
„lítinn her“. Hún ítrekaði hins
vegar að markmið Ísraela væri
ekki að hertaka Gazasvæðið á ný.
Þrátt fyrir það ákvað ríkisstjórn
Ísraels í gær að kalla til 6.500
manna varalið í herinn til að undir-
búa hugsanlega árás á landi inn á
Gazasvæðið. gudsteinn@frettabladid.is
Árásir á Gaza fordæmdar
Víða um heim kom fólk saman til að fordæma loftárásir Ísraela á Gazasvæðið. Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna skorar á Ísraela og Palestínumenn að leggja niður vopn. Tugir kvenna og barna meðal hinna látnu.
Í RÚSTUNUM Særðum Palestínumanni hjálpað burt úr rústum byggingar eftir loftárás Ísraela á borgina Rafah á Gazaströnd.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Frestur til að sækja um
stöðu sérstaks saksóknara sem
rannsaka á aðdraganda banka-
hrunsins
rennur út í
dag. Björn
Bjarnason
dómsmálaráð-
herra mun
skipa í emb-
ættið frá 1.
janúar næst-
komandi.
Þegar skipað
verður í
embættið ber
sérstaka
saksóknaranum að birta
opinberlega upplýsingar um
hlutabréfaeign sína í fjármála-
fyrirtækjum og skuldir við þau.
Þá þarf hann einnig að upplýsa
um starfsleg tengsl hans sjálfs,
maka og náinna skyldmenna við
þá sem sinnt hafa stjórnunar-
stöðum í fjármálafyrirtækjun-
um. - bj
Skipun sérstaks saksóknara:
Umsóknarfrest-
ur að renna út
BJÖRN BJARNASON
Lögreglumenn reknir
Í Egyptalandi hafa 280 lögreglumenn
verið reknir og ákærðir fyrir að hafa
brotið mannréttindi í starfi. Auk þess
hafa á tólfta hundrað lögreglumanna
verið reknir fyrir að hafa brotið af sér í
starfi og misnotað völd sín. Mannrétt-
indasamtök segja pyntingar daglegt
brauð í fangelsum.
EGYPTALAND
Áfallalausar kosningar
Seinni umferð forsetakosninga í Gana
virtust hafa gengið friðsamlega og
vel fyrir sig, eftir því sem kosninga-
eftirlitsmenn og stjórnmálaskýrendur
segja. John Kuofor lætur af embætti
eftir tvö kjörtímabil, þannig að þetta
er í annað sinn sem leiðtogaskipti í
landinu fara fram með friðsamlegum
hætti.
GANA
SVARAÐ MEÐ GRJÓTI Palestínumaður
með slöngu að vopni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN, AP Geisladiskur, sem
Chip Saltsman, repúblikani frá
Tennessee, sendi félögum sínum í
landsnefnd Repúblikanaflokksins
um jólin ætlar að draga dilk á eftir
sér. Á disknum var að finna lag
grínistans Paul Shanklin, sem
þykir heldur íhaldssamur, Barack,
the Magic Negro. Í laginu, sem
sungið er við gamla hippaslagar-
ann Puff, the Magic Dragon, er
kynþáttauppruni Obama dreginn í
efa.
Saltsman sækist nú eftir útnefn-
ingu sem formaður landsnefndar-
innar. Núverandi formaður, Robert
M. Duncan, hefur sagst vera yfir
sig hneykslaður á sendingunni.
Saltsman, sem áður vann fyrir
Mike Huckabee sem sóttist eftir
útnefningu flokksins til forseta-
framboðs, hefur hins vegar varið
lagið og sagt það vera eina af fjöl-
mörgum græskulausum pólitísk-
um háðsádeilum.
„Ég trúi því í einlægni að allir
Bandaríkjamenn séu velkomnir í
flokkinn okkar og leiðin til endur-
reisnar Repúblikanaflokksins
hefjist með einingu, ekki sundr-
ungu. En ég veit að leiðtogar
flokksins eiga að standa gegn tvö-
földu siðgæði fjölmiðla og neita að
fullnægja þörf þeirra fyrir
hneyksli,“ sagði Saltsman.
Talsmaður Obama, sem tekur
við embætti í janúar, neitaði að tjá
sig um málið.
- kóp
Geisladiskur með háðsádeilu á Barack Obama umdeildur hjá repúblikönum:
Lag ýfir kynþáttaáhyggjur
OBAMA Kynþáttur hans er ekki öllum
Bandaríkjamönnum að skapi og nú
hefur lag sem fjallar um hann vakið
deilur í Repúblikanaflokknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
GENGIÐ 23.12.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,8308
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,82 124,42
183,13 184,03
173,12 174,08
23,218 23,354
17,625 17,729
15,801 15,893
1,3753 1,3833
191,00 192,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR