Fréttablaðið - 29.12.2008, Blaðsíða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Landsprent
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er mánudagurinn 29.
desember, 364. dagur ársins.
11.21 13.30 15.39
11.37 13.14 14.53
Viltu giftast
mér, ástin mín?
Vinur minn hefur í töluverðan tíma íhugað að biðja sér konu.
Ekki þó bara einhverrar kven-
sniftar, heldur hinnar einu og
sönnu. Reyndar hafa þau tvö
prufukeyrt hjónalífið í heilan ára-
tug með býsna vel heppnaðri sam-
búð og uppeldi tveggja barna, svo
varla hefur hann að ráði óttast
hryggbrot. En framkvæmdina
þurfti samt að hugsa í þaula og
ekki flana að neinu því þetta eina
bónorð ævinnar skyldi vera full-
komið.
AF EINHVERJUM ástæðum
hafði formleg hjónavígsla lítið
borist í tal hjá skötuhjúunum en
um hríð hafði heitmeyna grunað
af kvenlegu innsæi einhverjar
ráðagjörðir. Jafnvel var hún í aðra
röndina farin að bíða eftir að unn-
ustinn léti til skarar skríða, til
dæmis við rómantíska máltíð á
veitingahúsi og hugboð hennar
var rétt; dag og nótt smíðaði hann
í huganum allskyns flókin plott en
lét svo ekki verða af. Fannst þegar
á hólminn var komið eitthvað
asnalegt að lauma trúlofunarhring
í desertinn eða láta bláókunnugt
fólk verða vitni að stóru stundinni.
Kannski var hann einu sinni eða
tvisvar á nippinu með að láta vaða,
með hringinn í vasanum og allt.
Einhvern veginn var bara aldrei
rétti tíminn.
VEKJARAKLUKKAN sveik
þegar síst skyldi, á aðfangadags-
morgun. Í stað þess að vakna í
bítið til að ljúka síðustu verkunum
áður en jólin skyllu á, klára tiltekt
og skreppa út eftir grænum baun-
um og gjöfinni sem gleymdist að
kaupa, svaf fjölskyldan kirfilega
yfir sig. Húsmóðirin – unnustan,
altso – hrökk upp með andfælum
um miðjan morgun og í æsingi
yfir tímahrakinu vakti hún afgang-
inn af fjölskyldunni með miklum
látum. Á undraskömmum tíma
sviptist heimilið úr ljúfum svefn-
rofum í dauðans uppnám yfir því
að jólin væru ónýt og engar græn-
ar baunir til í kotinu. Stóra barnið
flýtti sér að kveikja á sjónvarpinu
og stilla á hæsta styrk til að yfir-
gnæfa gjammið í móður sinni sem
úfin á náttkjólnum gaf fyrirskip-
anir hægri vinstri en litli barn-
unginn æpti og hrein og vildi fá
morgunverðinn framreiddan ekki
síðar en strax.
EINMITT þá var töfrastundin
runnin upp. Með stírurnar í aug-
unum seig biðillinn niður á hnén í
sængurvöndulinn á gólfinu og
fastnaði sér umbúðalaust hönd
unnustunnar við háværan undir-
leik sjónvarpsins og litla svanga
gríssins. Lifi þau hamingjusöm til
æviloka.
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Uppbúið rúm
í svefnpokaplássi
kr. 2.000 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is