Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.12.2008, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 29.12.2008, Qupperneq 10
10 29. desember 2008 MÁNUDAGUR DÓMSMÁL Olíufélögin fóru fram á frest í máli þeirra gegn Sam- keppniseftirlitinu og ríkinu og boðuðu að þau legðu fram nýjar matsbeiðnir í því þegar það var tekið fyrir Héraðsdóm Reykja- víkur fyrr í mánuðinum. „Það er því fyrirsjáanlegt að málið mun halda áfram og drag- ast enn um allmarga mánuði. Leggi þau fram nýja matsbeiðni tel ég útilokað að unnt verði að flytja þetta mál fyrr en í fyrsta lagi haustið 2009,“ segir Heimir Örn Herbertsson, lögmaður stjórnvalda. Málið hefur verið rekið fyrir dómstólum síðan árið 2005. Félögin krefjast ógildingar þeirr- ar ákvörðunar að þau séu sek um samráð, en til vara að sekt þeirra verði lækkuð. Félögin voru upp- haflega sektuð um 2,6 milljarða, en áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála lækkaði hana síðar í 1,5 milljarða. Þegar félögin brugðust við sektinni og höfðuðu mál óskuðu þau eftir því að kallaðir væru til dómskvaddir matsmenn til að greina forsendur sektarinnar, segir Heimir Örn. Eftir mánaðabið hafi niður- staða borist, sem sagði að hugs- anlegt væri að félögin hefðu engan ávinning haft af samráð- inu. Þá lét Samkeppniseftirlitið kalla til yfirmatsmenn til að hnekkja niðurstöðu matsmann- anna og lagði fram svokallaða undirmatsbeiðni til að láta meta önnur atriði en olíufélögin létu meta. Niðurstaða þessa var yfirmats- gerð sem var „algjörlega ósam- mála undirmati [félaganna]“ segir Heimir Örn. Samkvæmt henni hefðu félögin hagnast á brotum sínum, langt umfram sektarupphæðina. Þetta mat hafi verið lagt fram fyrir allnokkru en málinu síðan frestað til þessa mánaðar, svo olíufélögin gætu ákveðið hvort þau vildu freista þess að hnekkja undirmatinu eða fresta flutningi málsins. Heimir Örn segir að strangt til tekið séu engin tímamörk í mála- rekstri af þessu tagi. „Það er ekkert sjálfkrafa stopp sem kemur í það og það er mikil til- hneiging til að gefa málsaðilum mikið svigrúm til að meta sjálfir hvað þeim finnst nauðsynlegt að sanna.“ Málsmeðferðin verði þó ekki endalaus. klemens@frettabladid.is Það er því fyrirsjáanlegt að málið mun halda áfram og dragast enn um all- marga mánuði. HEIMIR ÖRN HERBERTSSON LÖGMAÐUR NOREGUR Norska ríkisstjórnin ætlar að auka framkvæmdir í Noregi til að vinna gegn auknu atvinnuleysi í landinu. Á næsta ári fara milljarðar norskra króna í vegi, járnbrautaframkvæmdir, skólabyggingar, hjúkrunarheim- ili, í framkvæmdir á vegum sveitarfélaga og ríkis. „Til að koma í veg fyrir stórfellt atvinnuleysi ætlar Jens Stoltenberg forsætisráðherra að veita olíupeningum í norskt hagkerfi,“ skrifar norska dagblaðið Aftenbladet. „Við ætlum að setja fé í verkefni sem hægt er að hrinda hratt í fram- kvæmd og gefa mikla atvinnu,“ hefur blaðið eftir Stoltenberg. - ghs Kreppuvarnir í Noregi: Aukið fjármagn í framkvæmdir HEILBRIGÐISMÁL Heilbrigðisráð- herra, Guðlaugur Þór Þórðarson, undirritaði nýverið tvo samninga um sjúkraflutninga. Annan við Slökkvilið Akureyrar og hinn við Brunavarnir Suðurnesja. Heilbrigðisráðuneytið greiðir um sjötíu milljónir króna á ári fyrir hvorn samning. Þjónustusvæðið á Suðurnesjum nær til sjúkraflutninga í umdæmi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja að undanskildu svæði Heilsu- gæslustöðvarinnar í Grindavík. Þjónustusvæðið nyrðra nær til sjúkraflutninga í umdæmi heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. - hhs Samningar um sjúkraflutninga: Kosta um 140 milljónir á ári SJÚKRAFLUTNINGAMENN AÐ STÖRFUM Heilbrigðisráðherra hefur undirritað tvo samninga er varða sjúkraflutninga. LÍKNARMÁL Þremur mæðrastyrks- nefndum á höfuðborgarsvæðinu var á dögunum úthlutað samtals 309.000 krónum úr velferðarsjóði starfsmanna álframleiðslufyrir- tækisins ÍSAL. Nefndirnar sem um ræðir eru Mæðrastyrksnefndir Hafnar- fjarðar, Reykjavíkur og Kópa- vogs. Í tilkynningu segir að álíka fjárhæðum verði úthlutað í byrjun janúar og febrúar. Velferðarsjóður ÍSAL var stofn- aður í nóvember síðastliðnum. Voru aflögufærir samstarfsmenn hvattir til að leggja fram þúsund krónur af launum sínum í þrjá mánuði vegna þeirra erfiðleika sem margir standa frammi fyrir um þessar mundir. - kg Velferðarsjóður ÍSAL: Styrkir mæðra- styrksnefndir ÖRYGGISMÁL Mótun öryggissjálfs- myndar Íslands og öryggismála- stefnu er skammt á veg komin, þrátt fyrir gerbreytta umgjörð þeirra mála. Að þessari niður- stöðu kemst Silja Bára Ómars- dóttir stjórnmálafræðingur í grein í nýjasta „hefti“ vefritsins Stjórnmál og stjórnsýsla (stjorn- malogstjornsysla.is). Í rannsókninni eru vísbendingar um öryggisstefnu ríkisins greindar eins og þær birtast í gögnum á borð við nýsett varnar- málalög og lög um almannavarnir. Bent er á að nálgun Íslands að öryggi hafi byggst á hernaðarleg- um grunni með rætur í raunsæis- stefnu, en stefna annarra Norður- landa hafi frekar byggst á „nýfrjálslyndri stofnanahyggju“. Ekki sé að merkja að stefnumót- unarvaldið taki tillit til þátta á borð við efnahagslegt eða umhverfislegt öryggi. - aa Öryggissjálfsmynd Íslands: Stefnumótun skammt komin LOFTRÝMISEFTIRLIT Öryggi ríkisins snýst um fleira en hervarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR STANGVEIÐI Veiðifélag Laxár á Ásum, einnar dýrustu stangveiðiár landsins, mun á fundi milli jóla og nýárs ákveða hvort gefin verður eftir mikil hækkun á leigunni fyrir ána. Að sögn Páls Þórhallssonar, formanns veiðifélags- ins, hefur leigutaki Laxár á Ásum, Lax-á ehf, farið fram á að leigan verði lækkuð. Samningurinn við Lax-á sé verðtryggður á þrjá mismundandi vegu. „Samningurinn er að einum þriðja bundinn neysluvísitölu, einum þriðja evru og einum þriðja dollar. Þetta hefur hækkað þvílíkt að það er sjálfsagt ekki fræðilegur möguleiki að þetta standi undir sér,“ segir Páll sem kveður tillögu munu verða lagða fyrir fund veiðifélagsins um að aftengja gengisþáttinn en halda innlenda verðbólguþættinum. Samkvæmt fundarboði veiðifélagsins féllst stjórnin á að leigan fyrir Laxá yrði 21 milljón króna næsta sumar með fyrirvara um samþykki félags- manna. Páll segir að þótt strangt til tekið væri hægt að gera kröfu um efndir á samningnum hafi verið í honum útgönguleið fyrir leigutakann. „Það er ákvæði um að ef upp koma óviðráðanlegir hlutir og þar á meðal er stórkostleg fjármálakreppa. Við myndum kannski ekki geta neitað því að það gæti átt við.“ Að sögn Páls mun sala veiðileyfa fyrir næsta ár hafa gengið afar treglega fram að þessu. „Það veit enginn hver staðan verður eftir mánuð - hvað þá í vor - svo menn halda að sé höndum,“ segir Páll sem kveður marga leigutaka nú ræða við veiðiréttarhafa um breytingar. - gar Fjármálakreppan nær til eigenda réttinda í laxveiðiám: Gengishækkun aflýst í Laxá á Ásum Í LAXÁ Á ÁSUM Veiðileyfi í Laxá í Ásum er meðal þeirra aldýrustu á landinu enda aðeins veitt á tvær stangir í allri ánni. MENNING Draumasmiðjan hefur fengið styrk frá Norræna menningarsjóðnum til að halda alþjóðlega döff leiklistarhátíðina DRAUMAR 2009. Hátíðin verður haldin í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 24. til 31. maí á næsta ári. Í tilkynningu frá Draumasmiðjunni segir að fjöldi umsókna um þátttöku hafi borist. Umsóknarfrestur sé opinn til 31. desember. Val á þátttakend- um verði tilkynnt um miðjan janúar 2009. - hhs Norræni menningarsjóðurinn: Draumasmiðju veittur styrkur HEILBRIGÐISMÁL „Þetta gjald hefur ekkert að gera með kreppuna nema síður sé. Það hittist bara þannig á að fyrst núna gefst okkur færi á að fara að taka til í okkar ranni, fara yfir allt sem við erum að geyma og greiða úr þessu,“ segir Guðmundur Arason, læknir hjá tækni- frjóvgunarstöðinni Art Medica í Kópavogi. Stöðin hefur nýlega hafið að rukka menn sem geyma hjá þeim sæðisfrumur um 15.000 krónur á ári. Ekkert gjald hefur verið tekið fyrir þjónustuna síðan Art Medica tók við henni af Landspítalanum fyrir fjórum árum, þar til nú fyrir skemmstu. Guðmundur segir töluverðan kostnað og umstang fylgja geymslu á sæðisfrumum, en þær eru geymdar í fljótandi köfnunarefni. „Ástæða þess að við höfum ekki rukkað fyrr en nú er einfaldlega sú að nú höfum við tíma og mannskap til að greiða úr allri pappírsvinn- unni sem fylgir. Þetta hleðst hratt upp. Upp úr dúrnum hefur komið að margir sem við höfum sent rukkun upp á síðkastið hafa þegar eignast barn og þurfa ekki að geyma sæðis- frumur lengur. Við rukkum ekki aftur í tímann.“ Að sögn Guðmundar geyma nokkrir tugir manna sæðisfrumur hjá Art Medica. „Flestir sem geyma sæði eru á leiðinni í krabbameins- meðferð sem felur í sér lyfjagjöf sem gæti stofnað frumunum í hættu,“ segir Guðmundur Arason. - kg Ekki lengur ókeypis að geyma sæðisfrumur á tæknifrjóvgunarstöð: Kostar 15 þúsund að geyma sæði á ári ART MEDICA Tók við geymslu sæðisfrumna af Land- spítalanum fyrir fjórum árum. Olíusamráðsmálinu frestað enn um sinn Lögmaður stjórnvalda segir líklega útilokað að málið, sem hefur verið í gangi síðan 2005, verði flutt fyrr en næsta haust. Málsaðilar í slíkum málum hafa ekki, strangt til tekið, neinn hámarksfrest til að leggja fram matsbeiðnir. FORSVARSMENN OLÍUFÉLAGANNA FUNDA MEÐ SAMKEPPNISEFTIRLITI ÁRIÐ 2005 Enn er ekki fyrirséð hvenær niðurstaða fæst í mál olíufélaganna gegn Samkeppnis- eftirlitinu og ríkinu. Þau vilja ekki borga sekt fyrir samráðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bæjarbókhaldinu stolið Brotist var inn á hreppsskrifstofurnar í Ásgarði í Kjósarhreppi um hátíðarnar og þaðan stolið tölvum, sem meðal annars geymdu bókhald hreppsins. Innbrotið uppgötvaðist á annan í jólum. Svo virðist sem hurð hafi verið sparkað upp með tilheyrandi skemmd- um. Þjófurinn er talinn hafa verið einn á ferð, en hann er ófundinn. KJÓSARHREPPUR MÓTMÆLA JÓLASVEINABANNI Hundr- uð manna í Sarajevó mótmæltu því í gær að borgaryfirvöld hafi bannað jólasveinum að heimsækja leikskóla borgarinnar, sem er að meirihluta byggð múslimum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Sjúkrahús fær flatskjá og stól Sjúkrahúsið á Seyðisfirði fékk afhentar gjafir fyrir jól frá Hollvinasamtökum Sjúkrahússins á Seyðisfirði (HSSS) og Soroptimistum á Austurlandi. Það voru 40 tommu sjónvarpsflatskjár og hægindastóll, sem hvort tveggja verður nýtt á Alzheimer-deild sjúkra- hússins. SEYÐISFJÖRÐUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.