Fréttablaðið - 29.12.2008, Síða 16
16 29. desember 2008 MÁNUDAGUR
© GRAPHIC NEWS
FRÉTTAYFIRLIT ÁRSINS 2008
Janúar
Apríl
Júlí
Október
Febrúar Mars
Maí Júní
Ágúst September
Nóvember Desember
1.-31. Yfir 800 féllu og allt
að 600 þúsund hröktust
frá heimilum sínum eftir
að alda ofbeldis braust út í
Kenía eftir deilur um niður-
stöður forsetakosninga.
9. Tata Nano, ódýrasti
fjöldaframleiddi bíll
í heimi, var kynntur
til leiks í Delí á
Indlandi.
23. Þúsundir Palest-
ínumanna flykktust yfir
landamærin til Egypta-
lands til að kaupa mat og
eldsneyti.
2. Nicolas Sarkozy Frakklandsfor-
seti giftist söngkonunni og fyrrum
fyrirsætunni Cörlu Bruni.
13. Kevin Rudd, forsætisráðherra
Ástralíu, bað innfædda Ástrala
formlega afsökunar fyrir hönd
ríkisins fyrir hina svokölluðu
stolnu kynslóð.
17. Kósóvó lýsti yfir sjálfstæði frá
Serbíu þrátt fyrir hörð mótmæli
Serba og Rússa.
2. Dmítrí Medvedev hlaut sannkall-
aða rússneska kosningu í rúss-
nesku forsetakosningunum.
Vladimír Pútín, forveri
hans í embætti, var kosinn
forsætisráðherra.
27. Þúsundir týndu far-
angri sínum og enn fleiri
töfðust á ferðalagi sínu
þegar ný flugstöðvar-
bygging á Heathrow-
flugvelli í London var
tekin í notkun.
29. Niðurstöðum forsetakosninga
í Simbabve var haldið leyndum
vikum saman. Robert Mugabe,
forseti landsins, neitaði að fara
frá völdum þrátt fyrir að stærsti
stjórnarandstöðuflokkur landsins
virtist hafa unnið sigur.
15. Silvio Berlusconi var kjörinn
forsætisráðherra Ítalíu í þriðja
skipti.
26. Lögreglan í Austurríki hand-
tók hinn 73 ára Josef Fritzl sem
játaði að hafa haldið dóttur sinni
fanginni í klefa undir húsi sínu í
24 ár, nauðgað henni reglulega
og átt með henni sjö börn.
29. Ban Ki-moon,
aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu
Þjóðanna, kom á
laggirnar starfs-
hópi til að takast
á við hækkandi
matvælaverð, eftir
óeirðir í 37 löndum
vegna matvæla-
verðs.
2. Talið er
að yfir 146
þúsund
manns hafi
látist þegar
fellibylurinn
Nargis skall á
strandhéruð-
um Búrma.
Gríðarlegt
eignatjórn
varð.
8. Ólympíueldurinn fyrir sumarólympíuleikana 2008 komst
á tind Everest-fjalls.
12. Jarðskjálfti upp
á 7,9 á Richter-skala
skók Sichuan-hérað
í Kína. Talið er að
um 87 þúsund hafi
fallið.
7. Hillary Clinton lýsti því yfir
að hún væri hætt baráttu um
útnefningu sem forsetaefni
Demókrataflokksins og lýsti yfir
stuðningi við Barack Obama.
8. Spánverjinn Rafael
Nadal sigraði Roger
Federer í franska meist-
aramótinu í tennis. Þetta
var fjórða árið í röð sem
Nadal vann mótið.
11. Fyrrverandi konungur
Nepals yfirgaf for-
setahöllina eftir
að landið
var gert að
lýðveldi.
2. Ingrid Betancourt hlaut
frelsi ásamt fjórtán öðrum
gíslum. Hún hafði verið
fangi FARC-skæruliðanna í
Kólumbíu í sex ár.
18. Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, fagnaði 90
ára afmæli sínu.
21. Bosníuserbinn
Radovan Karadzic
var handtekinn í
Serbíu eftir að hafa
verið á flótta undan
alþjóðlegri réttvísi í
tólf ár.
8. Meðal
sigurvegara á
Ólympíuleik-
unum í Kína
var bandaríski
sundmaður-
inn Michael
Phelps, sem
vann átta gull-
verðlaun, og spretthlauparinn Usain Bolt, sem setti heimsmet í
100 og 200 metra hlaupi.
8. Georgía réðst með hervaldi
gegn sjálfstjórnarhéraðinu
Suður-Ossetíu, sem varð
upphafið að
skammvinnu en
hörðu stríði við
Rússland.
18. Pervez Musharraf sagði af sér sem forseti
Pakistans, og kom þar með í veg fyrir að þing
landsins setti hann af.
10. Fyrstu tilraunir gengu að óskum
þegar risavaxinn öreindahraðall var
gangsettur í Sviss.
15. Fall Lehman Brothers orsakaði
fall stórra fjármálastofnana við
upphaf stærstu fjármálakreppu
sem heimurinn hefur þolað frá
kreppunni miklu.
26. Ofurhuginn
Yves Rossy flaug
yfir Ermarsund
með
vængi og
þotuhreyfil
á bakinu
á um níu
mínútum, á um 200
kílómetra hraða á
klukkustund.
1. Ford fagnaði því
að 100 ár voru liðin
frá því fyrsti Ford-T
bíllinn leit
dagsins
ljós.
22. Indland sendi ómannað geimfar á braut um
tunglið.
27. Harðir bardagar í
Kongó milli uppreisn-
arforingjans Laurent
Nkunda og stjórn-
arhersins leiddu til
allsherjarupplausnar í
landinu.
4. Demókratinn
Barack Obama
varð fyrsti
hörundsdökki
Bandaríkja-
maðurinn
til að
verða
kjörinn
forseti.2. Hinn 23 ára
Lewis Hamilton
vann keppni öku-
manna í Formúlu
1-kappakstrinum,
yngstur ökumanna
í sögu keppninnar.
26. Hryðjuverkamenn
myrtu í það minnsta
172 í árásum í Mumb-
ai á Indlandi. Það tók
lögreglu rúmlega 48
stundir að ráða niðurlögum byssumannanna.
3. Starfsemi á stærsta millilandaflugvelli Taílands komst á
réttan kjöl eftir átta daga mótmæli stjórnarandstæðinga.
7. Óeirðir brutust
út í Aþenu og
öðrum grískum
borgum eftir að
lögreglumaður
skaut fimmtán
ára dreng til
bana.
15. Talið er
að yfir 1.000
hafi látist af
völdum kóleru
í Simbabve, og
um 20 þúsund
til viðbótar
smitast.