Fréttablaðið - 29.12.2008, Page 28
24 29. desember 2008 MÁNUDAGUR
folk@frettabladid.is
Framan af ári kom hingað
hver tónlistargoðsögnin
á fætur annarri til að
skemmta landi og þjóð.
Fréttablaðið tók saman
stærstu nöfnin sem komu
hingað en vegna efnahags-
ástandsins verður væntan-
lega einhver bið eftir því að
fleiri flytjendur af þessari
stærðargráðu reki á fjörur
Íslendinga.
Gamlar hetjur heimsóttu Ísland
WHITESNAKE David Coverdale og félagar í Whitesnake komu aftur til Íslands eftir langa bið og tróðu upp í Laugardalshöll 10. júní
við góðar undirtektir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BOB DYLAN Bob Dylan hélt sína aðra
tónleika hér á landi í Nýju-Laugar-
dalshöllinni 26. maí og stóð sig með
mikilli prýði. Einhverjir söknuðu þó fleiri
þekktra laga úr smiðju hans, enda af
nógu að taka þar á bæ.
ERIC CLAPTON Gítarhetjan Eric Clapton sýndi fingrafimi
sína á tónleikum í Egilshöll 8. ágúst fyrir framan fjölda
áhorfenda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JOHN FOGERTY Fyrrum forsprakki Creedence
Clearwater Revival hélt uppi góðri stemn-
ingu í Laugardalshöllinni 21. maí og spil-
aði öll sín vinsælustu lög, þar á meðal
Proud Mary, Down on the Corner og
Bad Moon Rising. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
PAUL SIMON Tónleikar Pauls Simon fóru fram í
Laugardalshöll 1. júlí og kunnu áhorfendur vel að
meta ómþýða tóna hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JAMES BLUNT Bretinn
James Blunt hefur notið
mikilla vinsælda
undanfarin ár, enda
var troðfullt í Laugar-
dalshöllinni 12. júní
á tónleikum hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
„Magneat er lítil græja sem er hugsuð til að halda utan
um snúrur á heyrnartólum fyrir iPoda, mp3-spilara,
farsíma og allt þetta sem fólk er að nota í dag,“ segir
Pétur Guðmundsson hönnuður. „Þetta er segull sem þú
vindur snúrunni upp á og smellir svo á þig græjunni.
Snúruflækjur eru úr sögunni.“ Pétur segir Magneat
vera sniðuga lausn á vandamáli sem margir glími við.
Snúrur séu hannaðar fyrir þá stærstu og þvælist því
fyrir þeim sem minni eru.
Auk Péturs eiga þeir Ísak Winther og Daði Agnars-
son heiðurinn að Magneat. Þeir reka saman fyrirtækið
Preggioni, sem einbeitir sér um þessar mundir
aðallega að Magneat. Að sögn Péturs hefur það tekið
þá félaga um tvö ár að hanna og láta framleiða vöruna,
sem er hægt að fá í mörgum útgáfum.
Magneat kom á markaðinn í byrjun október og hefur
rokselst, bæði í verslunum hér á landi og einnig til
útlanda í gegnum vefverslun á heimasíðunni magneat.
com. „Við höfum verið að fá ansi góða umfjöllun úti í
heimi,“ segir Pétur, en á næstunni verður farið að selja
Magneat í verslunum víðs vegar um heiminn. - þeb
Snúruflækjurnar úr sögunni
MARGAR TEGUNDIR MAGNEAT Til eru margar útgáfur af
Magneat, og sífellt er verið að hanna nýjar.
TVEGGJA ÁRA VINNA SKILAR ÁRANGRI
Þeir Pétur Guðmundsson og Ísak Winth-
er eiga heiðurinn að Magneat ásamt
Daða Agnarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Myndbandið við Wanderlust, lag
Bjarkar Guðmundsdóttur, var
valið besta myndband ársins 2008
af tónlistartímaritinu Spin. Spin
gerði lista yfir tuttugu bestu
myndböndin á árinu 2008.
Það er Encyclopedia Picture
sem gerði myndbandið, en það
eru tveir ungir leikstjórar, Sean
Hellfritsch og Isaiah Saxon.
Myndbandið er í þrívídd og allt
var það handgert. Það tók þá um
níu mánuði að gera myndbandið.
Myndband Bjarkar flottast
ÚR MYNDBANDINU Myndbandið við
lagið Wanderlust, sem er í þrívídd, var
valið besta myndband ársins af tónlist-
artímaritinu Spin.
1. Björk, „Wanderlust“
2. British Port Authority, „Toe Jam“
3. Gnarls Barkley, „Going On“
4. Weezer, „Pork and Beans“
5. Radiohead, „House of Cards“
6. MGMT, „Time To Pretend“
7. The Chemical Brothers, „Midnight Madness“
8. Le Le, „Breakfast“
9. Beyoncé, „Single Ladies“
10. Devendra Banhart, „Carmensita“
11. Thunderheist, „Jerk It“
12. Terry Lynn, „The System“
13. Utah Saints, „Somethin Good ‘08“
14. Yeasayer, „Wait for the Summer“
15. Feist, „I Feel It All“
16. Bowerbirds, „In Our Talons“
17. Bert and Ernie, „Ante Up“
18. Omaha Bitch, „Orgasmic Troopers“
19. Vampire Weekend, „Cape Cod Kwassa Kwassa”
20. Stars, „Bitches In Tokyo”
Listi Spin yfir bestu myndböndin er svona:
> BECKHAM KVEÐUR PEPSI
David Beckham hefur ákveðið að
segja skilið við gosdrykkjafram-
leiðandann Pepsi eftir tíu ára sam-
starf. Beckham hefur undanfarinn
áratug verið andlit Pepsi en hefur
ákveðið að segja skilið við þann
hluta lífs síns. Beckham
sagði í yfirlýsingu að þetta
hefðu verið góð tíu ár en
þar hefði hann meðal ann-
ars fengið tækifæri til að
leika á móti þeim Jennifer
Lopez og Beyoncé.
Michael Lohan, pabbi leikkonunn-
ar Lindsay Lohan, er æfur út í
kærustu hennar, Samönthu
Ronson, og segir hana hafa slæm
áhrif á dóttur sína. Segir Michael
Lohan að hann hafi undir höndum
mikið magn gagna sem sanni
hversu slæm Ronson sé og hótar
að gera gögnin opinber. „Hvaða
alvöru vinnu hefur Lindsay
fengið síðan hún byrjaði með
Sam? Hún ætti kannski að fylgja
fordæmi Britney og Drew og
koma úr svartnættinu inn í
ljósið,“ segir hann.
Michael er æfur vegna
bloggfærslu sem birt var á
Myspace-síðu Lindsay þar sem
hann er gagnrýndur fyrir
að eignast barn utan
hjónabands síns og
móður Lindsay. Vill
Michael meina að
Ronson hafi skrifað
bloggfærsluna. „Ég
mun leggja fram
tölvupósta, SMS og
hljóðupptökur sem
sanna munu mál
mitt. Ef Sam er til,
þá er ég til.“
Skemmir líf
Lindsay
LINDSAY LOHAN Pabbi
leikkonunnar er æfur
út í Samönthu Ronson,
kærustu hennar.
Guy Ritchie og Madonna grófu
stríðsaxirnar yfir hátíðarnar og
héldu saman jól. Reyndar eyddu
þau bara öðrum degi jóla saman
en á jóladag var Guy með
strákunum sínum David Banda og
Rocco á heimili sínu í Wiltskíri.
Mæðgurnar Madonna og Lourdes
opnuðu hins vegar pakkana
saman í glæsilegri íbúð í London
sem hún og Guy áttu saman fyrir
skilnaðinn.
Á annan dag jóla sameinaðist
fjölskyldan hins vegar í góðan
göngutúr og að sögn sjónarvotta
virtist fara nokkuð vel á með
þeim Madonnu og Guy. „Þau
virtust staðráðinn í að halda
fjölskyldunni saman yfir jólin,“
sagði einn sjónarvottur við
breska blaðið The People. „Það
var eins og þau vildu sýna
heimsbyggðinni að allar deilur
hefðu verið lagðar til hliðar og að
jólin skyldu vera gleðileg fyrir
börnin,“ bætti sjónarvotturinn
við.
Saman yfir
hátíðarnar
SAMAN Madonna og Guy stóðu við
stóru orðin og héldu saman jól.