Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 13
Á hverju ári sinnum við á annað þúsund hjálparbeiðnum af öllum gerðum frá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum. Meðal þessara fjölmörgu útkalla má nefna aðstoð vegna óveðurs, ófærðar, sjóslysa, flóða og skipsstranda, björgun búpenings auk fjölda annarra viðvika. Björgunarsveitir okkar fjármagna starfið með margvíslegum hætti en flugeldasalan er langmikilvægust og skiptir sköpum í rekstri okkar. Einkaaðilar hafa seilst inn á þessa aðalfjáröflun okkar í von um hagnað í eigin vasa. Þetta þykir okkur slæm þróun og hvetjum við fólk til þess að hugsa fyrst og fremst um eigið öryggi og kaupa flugeldana hjá okkur. Styddu þá sem eru tilbúnir að styðja þig – kauptu flugeldana af björgunarsveitunum! Hvað er þinn flugeldasali tilbúinn að leggja á sig fyrir þig? Aðalbakhjarlar Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru: Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar aðstoða vegfaranda í aftakaveðri á Hellisheiði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.