Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 30.12.2008, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Landsprent Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Páls Baldvins Baldvinssonar Í dag er þriðjudagurinn 30. desember, 365. dagur ársins. 11.21 13.30 15.40 11.35 13.15 14.55 Söngfuglarnir sungu úr sér lungun síðustu daga þessa árs. Það er þrældómur að syngja í kór en aldrei finnst kórafólki jafn gaman og þegar raddirnar eru þandar kvöld eftir kvöld til und- irbúnings desembertörninni. Þá leggjast allir á árarnar og veikt og sterkt er sungið, hátt og lágt. Fram undan eru útgáfutónleikar, stórvirki kórbókmenntanna og síðan allt messuhaldið. Það er hin andlega spekt sem heldur utan um kóralífið að mestu þótt margt sé furðu veraldlegt í kórastarfi. LANGAR mig í kór? Í gleðskap fyrir fáum árum eftir nokkur lög fór fullorðinn maður á hnén og bað mig að leggja hluta af lífinu í kórstarf. Hégómleikinn greip mig örskamma stund, en svo hvolfdist yfir mig stundataflan og seta undir misvondum predik- unum: Vík frá mér, freistari. Nei, takk. KÓRINN er smáþorp í sjálfu sér, hreppur þar sem félagar hjálpast að, styðja hver annan, þar takast á ólíkir persónuleikar, keppendur um fagrar raddir, þeir lötu og svifaseinu koma í ljós, rétt eins og þeir kappsömu og framagjörnu. Kvennaljóminn fær sinn sess og piltagullin glansa. Svo hleypur dáraskapur í höfuð og nára og bestu menn breytast í hjónadjöfla. Fátt er erfiðara góðu kórstarfi en hjóna- skilnaðir. Radddeildir riðlast og stjórnandinn verður að taka á honum stóra sínum til að halda hljómnum hreinum. SAGAN af kvennagullinu í kirkjukórnum kemur því alltaf upp í hugann: hún var rifjuð upp þegar hann var allur. Trúr þeirri kenningu að alltaf væri einn gikk- ur í hverri veiðistöð hafði sá herra leikið lausum hala í kórn- um á kirkjuloftinu og gert sér dælt við allar kvenraddir í kórn- um, í nokkrum tilvikum með full- nægjandi árangri, en alltaf skilið efir sig brotin hjörtu klæddur sínum skrautlegu skyrtum. Hann hélt þó lífinu í kórnum sögðu kerlingarnar í plássinu þegar hann hrökk upp af. FÓRNIN í kórstarfinu er gjöf, gjaldið greiða aðrir vandamenn: kór fylgja fjarverur á hátíðadög- um, steikur kúra í ofnum, sósur sitja á hlóðum og kólna, meðlætið mallar. En svo er hlaupið heim og allt er hitað upp: lífið heldur áfram í nýrri viku, nýju ári, nýju lífi í vissu eða von um farsæld. Kórfélagi hitar upp sósu Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Uppbúið rúm í svefnpokaplássi kr. 2.000 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.