Fréttablaðið - 04.01.2009, Page 14

Fréttablaðið - 04.01.2009, Page 14
2 Fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með sunnudagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Sigríður Björg Tómasdóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Kristín Eva Þórhallsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365.is Sigríður Tómasdóttir skrifar BARNVÆNT Ég byrjaði í hestunum og hætti svo eftir að hafa verið hent nokkrum sinnum af baki og byrjaði svo aftur,“ segir Erna Guðrún 19 ára, dóttir Björns Magnússonar og Brynju Viðars- dóttur aðspurð hversu lengi hún hafi sinnt hestamennskunni. Hún stendur ásamt foreldrum sínum í velútbúinni kaffistofu hesthússins hjá Andvara á Kjóavöllum sem er í eigu fjöskyldunnar. Brynja móðir hennar eignaðist hest þegar hún fermdist og þá varð ekki aftur snúið og hefur hún drifið þetta áhugamál fjölskyldunnar áfram ásamt Magnúsi, en sonur þeirra hefur ekki sýnt því eins mikinn áhuga þótt þau segi hann vera að vakna. „Það er nú varla hægt að kalla þetta áhugamál, þetta er bara lífsstíll,“ segir Magnús og bætir við að oft heimsæki fólk þau frekar í hesthúsið en heim. „Í hestamennskunni eru allir vinir, þar skiptir engu hvaða stöðu fólk gegnir, öllum er mætt á jafn- ingjagrundvelli og hestar eru óþrjótandi umræðuefni,“ segir Magnús. „Hér er ekk- ert krepputal,“ bætir Erna við. Hestunum þarf að sinna daglega, án undantekninga. „Við erum hér öllum stund- um og kvöldmaturinn er oft snæddur hérna,“ segir Brynja og Magnús og Erna taka undir það brosandi. Á kaffistofunni er gluggi svo hægt sé að horfa á hestana í stí- unni á neðri hæðinni, enda engin þörf fyrir sjónvarp á kaffistofunni, en þar er rafmagnshella og þægilegt sófasett. „Við gætum alveg búið hérna,“ segir Brynja hlæjandi. Fjölskyldan röltir niður og kynnir hest- ana fyrir blaðamanni. Brynja geng- ur að uppáhaldshestinum sínum, Erni, og kjáir við hann. Magnús segir hann vera sérstakan ljúfling sem Ernir staðfest- ir með því að nudda sér vinalega upp við eigend- ur sína og augljóst er að hestarnir eru hluti af fjölskyldunni. Brynja segist sannfærð um að hestarnir hafi þjappað fjöl- skyldunni saman. „Án hestanna væri Björn alltaf að vinna, Erna alltaf með vinum sínum og ég ein heima að horfa á sjónvarpið,“ segir Brynja og hlær að því hversu fjarstæður sá veruleiki er. - keþ Kvöldmaturinn snæddur í hesthúsinu Hjónin Brynja Viðarsdóttir og Björn Magnússon verja nánast öllum stundum utan vinnu í hesthúsinu ásamt dóttur sinni Ernu Guðrúnu Björnsdóttur. Þau segja hestamennskuna þjappa fjölskyldunni saman. Þau segja alla á jafningjagrundvelli í hestamennskunni. Hestafjölskyldan Brynja Viðarsdóttir, Erna Guðrún Björnsdóttir og Björn Magnússon ásamt hestunum sem eiga hug þeirra allan. MYND/ANTON Árbæjarlaugin Börnum þykir alltaf gaman að busla og í Árbæjarlauginni eru næg tækifæri til þess. Einn helsti kostur laugarinnar er að á köldum dögum þarf enginn að hlaupa úti í kuldanum. Innilaugin er staðsett beint fyrir utan fataklefana og oftar en ekki eru þar boltar og kútar sem hægt er að leika sér með. Innilaugin hentar sértaklega fjölskyldum með ungbörn. Leiðin út í heita pottinn, vatnsrennibraut- ina, grunnu laugina og djúpu laugina er samfelld svo engin þörf er á að fara upp úr vatninu til að fara á milli staða. Vatnsrennibraut- in er alveg upp við húsið og stiginn ágætlega einangraður sem ver börnin fyrir kulda og roki. Á ísköldum dögum er afar notalegt að sitja í heita pottinum og fylgjast með gufunni stíga upp. Fossar og vatnsbunur eru víða um laugina og eru endalaus uppspretta leikja. Í fataklefunum er gert ráð fyrir ungbörnum, og er þar að finna háa stóla með belti og bala til að baða börnin fyrir og eftir sundferð. Fyrir ekki svo mörgum árum hefði mér aldrei dottið í hug að ég ætti eftir að láta mig dreyma um frí þar sem ekkert annað væri á dag- skránni en að sofa. Hljómar ekki mjög spennandi, en eftir miklar svefntruflanir í nær eitt og hálft ár þá finnst mér stundum að ég geti talað endalaust um svefn, en ekki um neitt annað. Mér líður eins og heilastarfsemin hafi hreinlega lamast af umræddu svefnleysi. Fjórtán mánaða dóttir mín sem er mesti ljúfling- ur á daginn hefur nefnilega þann galla að vera svefnlétt mjög og afar hörð í samningum við aldraða foreldra sína. Bróðir hennar, þremur árum eldri, vaknaði oft á nóttunni á meðan hann var á brjósti en um leið og hann var vaninn af því fór hann að sofa alla nóttina. Sú ranga ályktun var því dregin á heimilinu að stúlkubarnið myndi haga sér eins, og það þrátt fyrir að augljóst væri að upplag þeirra væri ekki hið sama. Hún fetaði vissulega í fótspor hans og vaknaði samviskusamlega upp nokkrum sinnum á nóttu til að fá sér hressingu. Máttleysislegar tilraunir til að ala barnið upp fóru fyrir lítið en svo þóttist ég nú aldeilis eiga von á góðu þegar loks var ákveðið að venja ungann af brjósti vel rúmlega ársgamlan. Þá tók við margra daga næturstríð föðursins við lilluna á meðan mamman svaf í sófanum. Loks þóttumst við vera búin að venja hana af því að vakna, en óhætt er að segja að við höfum hrósað happi of snemma. Iðulega vaknar sú litla, lætur sér stundum nægja að reka upp gól, en stundum þykir henni sem mál sé að leika og skemmta sér um miðja nótt svo tímum skiptir. Óþarfi er að taka fram að útliti foreldranna hefur hrakað mikið, nálægt fertugsaldri fer ekki vel á því að sofa örfáa tíma á nóttu, kaffidrykkja hefur að sama skapi aukist, sykurát, hreyfingu erum við hins vegar alltaf of þreytt til að stunda. Nú bind ég vonir við að svefnhagur minn vænkist á nýju ári, sú litla uppgötvi dásemdir nætursvefns og eitthvað af ótal ráðum sem ég hefi kynnt mér fari að virka á dömuna. Á dagskránni er nefnilega að láta hana fara að sofa í barnaherberginu en ekki hefur verið talið óhætt að demba henni þangað inn á meðan hún er sívaknandi. Stóri bróðirinn er auðvitað spenntur yfir því að fá félagsskap í herbergið, en það er kannski ekki svo spennandi að hann fari að vakna upp á nóttunni í næturstuð yngri systur. Sú stutta vaknar iðulega með bros á vör, ég vona að það sama eigi við mig innan ekki of langrar tíðar, það er takmarkað spennandi að vera svefngengill með bauga svo mánuðum skiptir. SVEFNLAUSAR NÆTUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.