Fréttablaðið - 04.01.2009, Síða 25
Fjölskyldan 5
ru sálar
MYND/STEFÁN
RÁÐFJÖF Fjölskylda sem leitar
ráðgjafar og skýrir út fyrir börnunum
hvers konar álag við er að eiga eykur
líkur á að þau taki álag og spennu, sem
þau verða fyrir síðar á ævinni, föstum
tökum. Börn læra mikið af því hvernig
fjölskyldan bregst við streitu af öllu
tagi. Fjölskylda sem stendur af sér álag
dregur úr hættu á að börnin láti bugast
og leiti meðal annars á náðir fíkniefna
til þess að deyfa sársaukann.
á sínum nánustu að allt stæði höll-
um fæti. Vísbendingar voru um
það að börnum liði reglulega illa
því þau gerðu sér grein fyrir
ástandinu hjá sínum nánustu án
þess gera sér grein fyrir því hvað
ylli. Hópurinn vildi minna fullorð-
ið fólk á að gæta þess hvernig það
talaði í kringum börn og hvetja
það til að upplýsa börnin svo þau
hefðu ekki ástæðu til að óttast.
Þegar þessi ákvörðun var tekin
vissi maður ekki hvaða hópur yrði
verst úti og til að byrja með fórum
við af stað með átakið Hönd í hönd
og kom þessi hugmynd í framhaldi
af því,“ segir hann.
Að gæta orða sinna
Starfsfólk í viðskiptalílfinu og
bönkum hefur átt í vök að verjast í
bankakreppunni þar sem skamm-
ir hafa dunið á því. „Ég hef unnið
mikið með fólki sem er í þessum
geira og það fær á sig miklar
skammir. Við verðum að passa að
börnin fari ekki að ímynda sér að
allt fólk sem vinnur í banka sé
vont fólk. Ég veit til þess að börn
hafi verið lögð í einelti vegna þess
að foreldrar þeirra vinna í banka.“
segir Helga Þórðardóttir.
Vandasamt getur verið að
útskýra gang mála fyrir börnun-
unum og þarf að velja orð við hæfi,
en aldur og þroski barna spilar
þar stórt hlutverk. „Börnum finnst
mikilvægt að finna að þau sé með,
og finna að þau geti hjálpað til og
borið hæfilega ábyrgð. Mér finnst
svo mikilvægt að við lítum á börn-
in okkar sem sjálfstæða einstakl-
inga, með sjálfstæða hugsun, og
munum að þau eru vitur og geta
lært og tekið ábyrgð. Við getum
lært margt af þeim, því það er svo
margt viturlegt sem kemur frá
börnum og maður verður reynsl-
unni ríkari,“ segir hún. - keþ
fjölskyldustundir
verum saman úti og inni ...
ÚTIVERA Fátt er betra fjölskyldulíf-
inu en að eiga notalegar og góðar
samverustundir. Ekki þarf alltaf að bjóða
upp á mikið prógramm, góður göngutúr með viðkomu
á leikvelli getur til dæmis létt lund yngri fjölskyldumeðlima.
Fjöruferð hittir líka í mark hjá öllum aldurshópum.
bréfabindi í 8 litum
Veljum íslenskt og gerum góða hluti í leiðinni
s. 562 8500 www.mulalundur.is
Tilboð á íslenskum möppum
489 kr/stk
Tilboðið gildir út janúar mánuð.
Sérprentaðar möppur
Borðmottur með dagatali