Fréttablaðið - 04.01.2009, Page 26
6 Fjölskyldan
SAMVERA
Auðvelt er að læra að skauta. Þótt fólk eigi erfitt með að halda jafnvægi til að byrja með á ísnum og detti jafn-
vel á rassinn þá tekur ekki nokkra
stund að ná jafnvægi með örlitlum
viljastyrk. Hafi maður náð góðum
tökum á skautunum þá gleymist
kunnáttan seint, rétt eins og það að
kunna að hjóla. Að renna sér á
skautum þjálfar jafnvægið og
vöðvar í fótleggjum styrkjast.
Fólk á öllum aldri getur lært að
skauta og hér á landi er boðið upp
á kennslu fyrir börn frá fimm ára
aldri.
Vinsæl íþrótt
Skautaíþróttin á rætur sínar að
rekja til Norðurlandanna og hefur
þróast í gegnum árin sem skemmti-
leg en krefjandi vetraríþrótt.
Milljónir manna um allan heim
stunda þessa íþrótt sem skiptist í
íshokkí, listhlaup og skautahlaup.
Víða um heim rennir fólk sér á
skautum sér til ánægju og yndis-
auka án þess að stefna á verð-
launapalla.
Skautaíþróttin hefur ætíð haft á
sér rómantískan blæ, enda auðvelt
að renna sér á ísnum í félagi við
aðra. Pör, foreldrar og börn og
heilu fjöldskyldurnar geta skemmt
sér saman á ísnum, leikið sér og
notið samverunnar.
Bætir jafnvægi
Heilsufarslegir kostir skauta-
íþróttarinnar eru margir. Þeir sem
byrja morgnana við brak í hnján-
um gætu haft gott af því að fara á
skauta, þar sem liðamótin styrkj-
ast og liðkast við það að skauta.
Vöðvar í fótleggjum þjálfast
upp, þolið eykst og jafnvægið
batnar. Að lokum má nefna hina
andlega kosti sem fylgja því að
skauta en rannsóknir hafa sýnt
fram á að regluleg hreyfing dreg-
ur úr þunglyndi og kvíða.
www.skautahollin.is
www.ibr.is
www.isisport.is
www.skautafelag.is
Fjör á hálum ís
Skautaíþróttin býður upp á að fjölskyldan geti stund-
að hana saman. Ekki tekur langan tíma að læra að
renna sér á skautum og fóta sig á svellinu og smábörn
og fullorðnir geta skemmt sér saman á ísnum.
Íshokkí Íshokkí er skemmtileg keppnisgrein. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sleðaferð Fátt er skemmtilegra en að renna sér á sleða í snævi
þöktum brekkum. Mikilvægt er að allir klæði sig vel því þótt manni
hitni við að draga sleðann upp brekkuna getur snjórinn komist inn á
milli laga og bráðnað þar. Ágætt er að hafa með sér aukapar af
vettlingum og snýtipappír. Nokkrar samlokur og heitt kakó á brúsa
gerir sleðaferðina enn skemmtilegri og vatnsflaska svalar þorstanum
eftir áreynsluna.
Draugastiginn Stórskemmtilegt spil sem reynir á minnið og öll fjölskyldan getur spilað saman.
Spilið er fyrir krakka frá fjögurra ára aldri og er fyrir tvo til fjóra leikmenn. Hver leikmaður velur einn
rauðan, grænan, bláan eða appelsínugulan karl og svo er teningnum kastað. Smám saman breytast
karlarnir í drauga, einn af öðrum og líta þá allir eins út. Sá sem kemst fyrstur upp draugastigann
vinnur, en enginn veit hver sigurvegarinn er fyrr en vofunni er svipt af honum.
Skemmtiegt Á skautum eru vöðvarnir í fótleggnum styrktir og jafnvægið bætt.
Íslenskur saltfiskur
útvatnaður að hætti Spánverja
frumkvöðlafyrirtæki ársins - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood - fiskvinnsla frá árinu
Salisksteikurnar frá Ekta ski eru sérstaklega útvatnaðar fyrir
matreiðslu eins og hún gerist best við Miðjarðarhað.
466 1016
www.ektafiskur.is
pöntunarsími:
Hvolpurinn þinn á skilið
það allra besta!
Vörumerkið er eign Hill's Pet Nutrition,
© 2003 Hill's Pet Nutrition, Inc. www.hills.is
Hill’s kappkostar í hvolpafóðri sínu að mæta
fjölbreyttum þörfum hvolpsins í vexti og þroska og
stuðlar þannig að heilbrigðu lífi og fyrir vikið enn
ánægjulegri samvistum þínum við hundinn þinn.