Fréttablaðið - 04.01.2009, Page 38
22 4. janúar 2009 SUNNUDAGUR
Íslensk skáldverk voru í mikilli
útrás á árinu sem var að líða. Bóka-
útgefendur gerðu vel á annað
hundrað útgáfusamninga við
erlendar útgáfur og því ættu aðdá-
endur íslenskrar bókmenntahefðar
að geta nálgast íslensk skáldverk
með fremur auðveldum hætti í
útlöndum. Ólíkt því sem menn
kynnu að halda er hér ekki um að
ræða einsleitan hóp nágrannaþjóða
heldur voru gerðir samningar við
fjarlæg lönd á borð við Kóreu, Kína
og Indland.
Kristján Kristjánsson hjá Upp-
heimum gerði samning við þýska
forlagið btb um útgáfu á tveimur
bókum glæpasagnahöfundarins
Ævars Arnar Jósepssonar. Annars
vegar Sá yðar sem syndlaus er og
hins vegar Land tækifæranna sem
kom út fyrir þessi jól. Kristján
segir þýska útgefendur vera sér-
lega áhugasama um íslenskar
bækur um þessar mundir og vitað
er af áhuga þeirra á öðrum rithöf-
undum forlagsins. Kristján taldi
hins vegar ekki tímabært að opin-
bera hverjir þeir væru.
Pétur Már Ólafsson hjá Veröld
stóð í ströngu allt síðasta ár vegna
útgáfumála Yrsu Sigurðardóttur á
erlendum vettvangi. Nýjasta bók
Yrsu, Auðnin, var seld til þýska for-
lagsins Fischer Verlag auk þess
sem samið var um útgáfurétt til
erlendra aðila á nokkrum af hennar
eldri bókum. „Til gamans má geta
að Þriðja táknið kemur út í kilju í
Bretlandi nú í byrjun janúar,“ segir
Pétur en Veröld gekk frá alls sjö
útgáfusamningum á bókum Yrsu á
árinu sem var að líða.
Stærsta forlag landsins, Forlagið,
stóð í stórræðum þetta árið. Gengið
var frá 130 útgáfusamningum við
erlend forlög á árinu 2008. Lang
fyrirferðarmestur á þeim lista er
Arnaldur Indriðason en alls voru
gerðir 36 samningar um hvers kyns
útgáfu á bókum hans. Þar má meðal
annars nefna hljóðbækur á þýsku,
stafrænt niðurhal og útgáfu á
bókum rithöfundarins fyrir
sjóndapra. Af öðrum stórum samn-
ingum má nefna að samið var fyrir
hönd rithöfundanna Auðar Jóns-
dóttur og Guðrúnar Evu Mínervu-
dóttur við þýska risann btb um
útgáfu á bókum þeirra Vetrarsól og
Skaparinn. Þar að auki má nefna að
þýska forlagið Bloomsbury Kind-
erbuch Verlag tryggði sér útgáfu-
réttinn að barna-og unglingabók-
inni Garðurinn eftir Gerði Kristnýju
og franska forlagið Métalié keypti
útgáfuréttinn að bók Árna Þórar-
inssonar, Dauða trúðsins.
freyrgigja@frettabladid.is
HVAÐ SEGIR MAMMA?
ÍSLENSKIR RITHÖFUNDAR: Á ANNAÐ HUNDRAÐ ÚTGÁFUSAMNINGAR ERLENDIS Á SÍÐASTA ÁRI
Rithöfundar eru nýju útrásarvíkingarnir
„Það var nú kvartað undan því á
mínu heimili að Kjartan [Guðjóns-
son] hefði mátt vera bragglegri og
myndarlegri. En annars var ég
mjög sáttur við Skaupið; það besta
í áraraðir,“ segir Ólafur F. Magn-
ússon, borgarfulltrúi Frjálslynda
flokksins. Ólafur segist ekki hafa
undirbúið sig eitthvað sérstaklega
undir Skaupið, hann sé með fínt
sjálfstraust og samviskuna í lagi á
nýju ári.
Eins og frægt er orðið var Ólaf-
ur ákaflega ósáttur við umfjöllun
Spaugstofunnar um sig og sína
persónu í frægum þætti um borg-
arstjórnarmálin. En nú var annað
uppi á teninginum og Ólafi þótti
Skaupið alveg ótrúlega gott. Og þá
sérstaklega sá kafli sem laut að
borgarstjórnarmálunum en hann
var nefndur „Gauragangur í borg-
inni“. „Ég er nú vanur því að vera
sýndur sem einhver fáráðlingur
en þarna fannst mér skína í gegn
hverjir væru hinir raunverulegu
fáráðlingar,“ segir Ólafur og vísar
þar í Sjálfstæðisflokkinn.
Og borgarstjórnarfulltrúinn
telur Skaupið hafa verið gert af
meiri fagmennsku en mörg und-
anfarin ár. „Þarna voru fantagóðir
leikarar og augljóslega mikið lagt
í verkið. Og þegar upp er staðið
þá skilaði ádeilan sem alltaf fylgir
gríni því að fólkið í borginni sá að
Sjálfstæðisflokkurinn er hinn
raunverulegi fáráðlingur,“ segir
Ólafur. - fgg
Ólafur himinlifandi með Skaupið
FLOTT GRÍN Ólafur var ákaflega sáttur með Skaupið; fjölskyldan hefði þó viljað sjá
Kjartan aðeins bragglegri og myndarlegri. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÝJA ÚTRÁSIN
Rithöfundar eru ef til vill hinir nýju útrásavíking-
ar en hátt á annað hundrað útgáfusamninga
voru gerðir á árinu sem var að líða. Um 36
samningar voru gerðir um hvers kyns útgáfu
á bókum Arnaldar Indriðasonar og hinn
þýski armur Random House, btb, tryggði sér
útgáfuréttinn að þremur nýjum íslenskum
skáldverkum; Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur,
Skaparanum eftir Guðrúnu Evu
Mínervudóttur og Landi
tækifæranna eftir
Ævar Örn Jós-
eps-
son.
Hvað er að frétta? Allt flott að frétta. Var að fá 27 ljósmyndir birt-
ar á þremur síðum í VICE Magazine við ljóð um Ísland eftir Eileen
Myles og árið 2009 leggst afspyrnuvel í mig.
Augnlitur: Gráblár.
Starf: Grafískur hönnuður hjá Jónsson & Le’macks og The Reykja-
vík Grapevine, ljósmyndari öllum öðrum stundum.
Fjölskylduhagir: Barnlaus og bíllaus.
Hvaðan ertu? Fæddur í Reykjavík, getinn í París.
Ertu hjátrúarfullur? Já.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Hörð samkeppni milli Dexters,
Mad Men og Californication.
Uppáhaldsmatur: Gottapylsur og roastbeef-samlokur à la Júmbó.
Fallegasti staðurinn: Hrísey er perla Eyjafjarðar og Manhattan
Akureyrar.
Ipod eða geislaspilari? Spilastokkurinn er ágætur.
Hvað er skemmtilegast? Að ferðast og skemmta sér í góðra vina
hópi.
Hvað er leiðinlegast? Að bíða á rauðu ljósi.
Helsti veikleiki: Filmur, framköllun og óstundvísi.
Helsti kostur: Jákvæðni.
Helsta afrek: Að hafa komist fram fyrir röðina á David
Attenborough-fyrirlesturinn í Salnum í Kópavogi.
Mestu vonbrigðin: Að hafa misst af Justice og
félögum spila í Madison Square Garden vegna þess
að ég mætti á „íslenskum“ tíma.
Hver er draumurinn? Að lifa eins og James Bond,
með leyfi til að skjóta … myndir.
Hver er fyndnastur? Gummi bróðir með byss-
urnar sínar.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Áhrifafólk á
Íslandi sem kann ekki að skammast sín og axla
ábyrgð á mistökum. Fjármálaóveðrið kom ekki
með Golfstraumnum.
Hvað er mikilvægast? Allt annað en peningar.
HIN HLIÐIN JÓHANNES KJARTANSSON, GRAFÍSKUR HÖNNUÐUR OG LJÓSMYNDARI
Allt annað en peningar er mikilvægast
09.01.
1983
„Ég er náttúrulega að springa
úr stolti. Hann hefur alltaf verið
efnilegur. Alveg frá því hann
var fjögurra ára ætlaði hann að
vera eins og Giggs í United en
núna er hann kominn í Liver-
pool og það er ekkert verra.“
Ásta Marta Róbertsdóttir, móðir Guðlaugs
Victors Pálssonar, sem hefur verið seldur
til enska knattspyrnuliðsins Liverpool.
Fréttablaðið birti í
gær frétt um að hátt
í tuttugu stórstjörnur
hafi ruðst inn í stúd-
íó Rásar 1 þar
sem verið var að
taka upp ára-
mótaþátt Orð
skulu standa í
umsjá Karls
Th. Birgisson-
ar. Þarna voru,
að sögn Karls,
Kári Stefánsson, Ármann Jakobs-
son, Bubbi, Megas, Björn Jörundur,
Egill Ólafsson og Jakob Frímann
auk þeirra Guðbergs Bergssonar
og Þórarins Eldjárns – svo aðeins
fáeinir séu nefndir. Karli láðist að
taka það fram að þarna voru eftir-
hermurnar Karl Örvarsson og Freyr
Eyjólfsson sem brugðu sér í allra
kvikinda líki og eru lesendur beðnir
velvirðingar á því. En það má víst
flest um áramót.
Í Skaupinu fór Jón Gnarr með
hlutverk reiðs manns sem gerir
skilti með áletrunni Helvítis fokking
fokk! Fyrirmynd þessa mótmæl-
anda heitir Gunnar og hefur oft
sést með hið skorinorða skilti sitt
í mótmælahrinunni í miðbænum.
Gunnar segir að hugarheimur Jóns
Gnarrs í atriðinu hafi ekki verið
fjarri sínum eigin þegar hann
bjó til skiltið. Gunnar
hefur mörg járn í
eldinum fyrir
utan snaggara-
lega skiltagerð
og hefur búið
til sérstakt
Haarde-
vodka. Það
er rótsterkt
og vel til
þess fallið að styrkja
baráttuandann, en
aðeins útvaldir fá
að dreypa á því.
- jbg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI