Tíminn - 15.08.1982, Qupperneq 6
spurningaleikur
SUNNUDAGUR 1S. ÁGÚST 1982
,ÞENNAN FJÖRÐ NAM ÞURÍÐUR RYMGYLTA9
■ Eftir nokkurra vikna hlé - af
ástæðum sem við hirðum ekki um að
fara út í - hefst spurningaleikurinn hér
að nýju. Form hans ætti að vera cðið
gamalkunnugt, en ef nýir lesendur hafa
bæst í hópinn skulum við skýra það í
fáeinum orðum.
Við erum að fiska eftir einhverju
tilteknu atriði: manni, ártali, bók, landi,
þjóð, náttúrufyrirbæri etc. etc., en í stað
þess að spyrja hreint út gefum við
nokkrar vísbendingar. Skal aðeins ein
þeirra Iesin í einu. Hitti lesandi á rétta
svarið strax við fyrstu bendingu getur
hann gefið sjálfum sér fimm stig. Hafi
hann ekki rétt svar kynnir hann sér þá
næstu, og kveiki hann þá á perunni eru
fjögur stig gefin. Og svo koll af kolli,
þriðja vísbending gefur þrjú stig, sú
fjórða tvö stig og sú fimmta - en þá ætti
málið að liggja ljóst fyrir - eitt stig.
Þannig er mest hægt að fá fimmtíu sig
fyrir rétt svör í öllum tilfellum, strax við
fyrstu vísbendingu, en enginn skyldi láta
sér bregða þótt hann nálgist það mark
ekki að ráði.
Lesendum til viðmiðunar höfum við
fengið ýmsa valinkunna menn til að
spreyta sig á keppninni, tvo í hvert sinn,
og heldur sá áfram keppni sem sigrar.
Um þessar mundir er það Oddur
Ólafsson, ritstjórnarfulltrúi hér á
Tímanum, sem stendur sig best: við
sjáum hér neðst á síðunni hvernig
honum reiðir af nú.
Svör finnast við hlið krossgátunnar.
Fyrsta vísbending Önnur vísbending Þriðja vísbending Fjórda vísbending Fimmta vísbending
1. spurning Þennan Ijörð nam Þuríður rymgylta. Þar höfðu Hollendingar á fyrri öldum skipalægi og Norðmenn síldarverkun á Langeyri. Þar er bærinn Svarthamrar, þar sem mesti ferðalangur á Islandi á 17. öld fæddist. Hér stjómaði Hannibal Valdimarsson fyrsta verkafalli sínu. Þar er kauptúnið Súðavík.
2. spurning Þegar hrygning nálgast gerir hængur þessarar Tisktegundar sér kúlu úr slýþráðum, sem hann límir saman með efni úr nýrum sér og festir kúluna í botni. Gýtur hrygnan í hreiðr- ið. Algengur hér við land í ferskvatni og sjó, en er ekki eftirsóttur af öðrum vegna gaddanna. Aldur físksins er um þrjú ár. Hann er mjög gráðugur og er fæðan egg físka og seiöi, smá krabbadýr og ormar. Þessi fískar ganga í torfum og em eftirsóttir af börnum á lækjarbökkum og tjama. Málsháttur er til sem endar á nafni físksins en byrjar svona: „Syndum við Rskamir sögðu “
3. spurning Það er spurt um kvikmynda- gerðarmann: hann teiknaði í eina tíð skopmyndir undir nafninu „Sir Gay“ Dcilur hans við rithöfundinn Upton Sinclair urðu afdrifarík- ar. Ein af mörgum frægum mynd- um hans var lauslega byggð á frásögn John Reeds, Tíu dagar sem skóku heiminn. Hann lést eftir mjög storma- sama ævi árið 1948, aðeins fímmtugur að aldri. Langfrægasta mynd hans er auðvitað Beitiskipið Pótem- kin.
4. spurning Eitt fyrsta hljúðfxri af þessu tagi, sem barst til íslands, mun Magnús Stephensen hafa eign- ast árið 1799. I sögu eftir Einar Hjörleifsson frá 1880 var það m.a. nefnt „leikaraspil“... ...en algengasta nafn þess er dregið af gríska orðinu yfír „verkfæri“ Mozart kallaði tól þetta „drottningu hljóðfæranna"... ...enda hefur það stærst tón- svið allra hljóðfæra.
5. spurning Jurt þessi er talin vera upp- runnin í héraði einu í suðvestur hluta Eþíópíu. Múslimar urðu fyrstir manna til að nýta hana, en sums staöar var hún bönnuð, þar cð afurðir hennar þóttu versta dóp... Hún barst til Evrópu á 16. og 17. öld og varð fljótt geysivin- sæl. Núoröið mun mest ræktað af jurtinni í Brasilíu... ...og þar, sem annars staðar, er framleiddur úr henni afar útbreiddur drykkur.
6. spurning Þetta eru verðlaun sem fyrstir fengu þeir Jean H. Dunant frá Sviss og Frédéric Passy frá Frakklandi. Carl von Ossietzsky fékk þessi verðlaun meðan hann sat í fangelsi. Meöal annarra sem hafa feng- ið þau eru Fridtjof Nansen, Albert Schweitzer, Banda- ríkjaforsctarnir Teddy Roose- welt og Woodrow Wilson, og George C. Marshall, hers- höfðingi. Á stríðstímum eru þessi verð- laun helst ekki veitt, nema þá Rauða krossinum. Andrei Sakarov komst fyrst í ’ann krappann eftir að hann hlaut þau.
7. spurning Síðasti konungur þessa lands dó í útlegð á Englandi árið 1932. Þar sem ríki þetta er nú herjuðu Lúsitaníumenn til forna gegn Rómverjum. Það var um hríð eitt mesta nýlcnduveldi heims. Nafn landsins er sagt vera dregið af rómverskri höfn, Portus Cale... ...og þar étinn saltfískur og dmkkið portvín!
8. spurning Faðemi hans er nokkuð á reiki... ...en móðirin hins vegar vel metin kona Tólf ára þótti hann svo vel að sér að fróðustu menn gátu ekki kennt honum neitt. I allfrægri könnun sem gerð var fvrir nokkrum ámm taldist hann þriðji áhrifamesti maður sögunnar - og þótti lítið! Á sínum tíma voru fylgismenn strádrepnir í Róm - „fremur fyrir andfélagslegt athæfí en íkveikjur," segir Tacitus.
9. spurning Hann er sagður fremur lág- vaxinn og feitlaginn, auk þess kallaður bestinjósnari i heimi. Hann fékk eitt sinn kveikjara að gjöf frá konu sinni... ...en konan sú, Ann að nafni, reyndist honum löngum þung í skauti Sömuleiðis sovéski njósnarinn Karla. Hann er skjólstæðingur Breta nokkurs, sem nefnir sig frönsku nafni.
10. spurning Fyrrverandi ástkona þessa fræga tónlistarmanns var mjög umdeild - sumir töldu að dauðinn fylgdi henni... Hann er talinn eiga mestan þátt í einhverju vinsælasta dxgurlagi síðari tíma, þó tveir séu skrifaðir fyrir því. Án efa er hann eini tónlistar- maðurinn sem dreginn hefur verið fyrir dóm og dæmdur til að halda ókeypis konsert fvrir blinda... ...en þá hafði hann verið handtekinn fyrir að hafa heró- ín í fórum sínum, en lagt hart að sér til að hætta neyslu þess. Hann spilar á gítar í einni frægustu rokkhljómsveit sem um getur.
Egill hlóð Oddi
■ í gær lögðu þeir skipum sínum til
orrustu Oddur Ólafsson, sem af mestum
fræknleik hefur borið sigur af féndum
sínum í þessari spurningakeppni að
undanförnu og kumpánn hans í blaða-
mannastétt, Egill Helgason, sem lesend-
ur Helgar-Tímans munu kannast við.
Varð fundur þeirra við Ásvallagötu, þar
sem báðir eiga óðul sín og varð
viðureignin hörð, sem vænta mátti af
berserkjum úr blaðamannastétt, sem
lengi hafa legið í víkingu á langhundum
sínum og herjað á lesendur. Vörðust
stafnbúar beggja af bogfimi og hreysti í
öndverðri orrustunni, en svo fór að Egill
kom krókum á skip Odds og hlóð honum
í afturstafni um síðir og voru það
ármenn Egils þeir George Smiley og
Keith Richards sem veittu honum sárin.
Það var reyndar Egill sem í upphafi
stofnaði til þessarar spurningakeppni og
hefur nú sjálfur sannað hve íþróttum
búinn hann er á þessum vettvangi.
Fyrsta spurning: Hvorugur þekktu þeir
Egill eða Oddur Álftafjörð við ísafjarð-
ardjúp og 0 stig hjá báðum.
Onnur spurning: Þeir reyndust betur
heima í náttúrufræðinni og hvor um sig
hlýtur fimm stig.
Þriðja spurning: Oddur bar ekki kennsl
á Eisenstein fyrr en í síðasta skoti, en
Egill var gleggri. Oddur eitt stig, en Egill
þrjú.
Fjórða spurning: Oddur hafði næmara
tóneyra og þekkti orgelið við fyrsta tón
þess, en Egill ekki fyrr en í þríundinni.
Oddur fimm stig og Egill þrjú.
Fimmta spurning: Oddur var meiri
kaffimaður en Egill og þekkti jurt þessa
strax, en Egili við þriðju tilraun. Oddur
fimm stig en Egill þrjú enn aftur.
Sjötta spurning: Oddur var seinni til
sátta og friðar en Egill og bar kennsl á
friðarverðlaun Nóbels í annarri tilraun,
en Egill í fyrstu. 5-4 fyrir Egil.
Sjöunda spurning: Enn var það landa-
fræðin. Oddur tók land í Portúgal á
þriðja degi, en Egill á fimmta. 3-1 fyrir
Odd.
Áttunda spurning: Báðir þekktu Hvíta-
Krist að bragði og hvor fær fimm stig.
Níunda spurning: Hér hallar óðfluga á
Odd. Flugumaðurinn Smiley kemst að
■ Egill Helgason
honum að óvörum og Oddur fær ekkert
stig. Egill fær fimm.
Tíunda spuming: Hér nær Egill að binda
gítarstreng Keith Richards í boga sinn.
■ Oddur Ólafsson
- Oddur fær ekkert stig, en Egill fær
fjögur.
Sem sagt: Oddur fær 28 stig, en Egill
34.