Tíminn - 15.08.1982, Side 17
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
17
að segja henni frá því. Þeir telja að
þannig sé auðveldara að venja hana
smátt og smátt af lyfinu. „En þá heldur
konan að hún sé aðeins að glíma við
valíumneyslu sína, þegar hún er ekki
einu sinni byrjuð,“ segir Prentice.
Leiðin til þess að hætta benzódíazepín
hlýtur því að gera það smátt og smátt,
án þess að önnur lyf komi í staðinn.
Lader telur einn mánuð hæfilegan tíma,
þó það sé vissulega einstaklingsbundið,
en hann leggur áherslu á að þetta ætti
að gerast undir eftirliti lækna. Sú athygli
sem beindist að valíum fyrir nokkrum
árum gerði það að verkum að það komst
í tísku að vera á móti þeim, og þeir sem
eru háðir lyfinu tóku að þjást af
sektarkennd ofan á allt annað. „Það er
engin ástæða til að hafa sektarkennd,11
segir Hilary Prentice, „vegna þess að
fólkið hóf lyfjaneysluna í góðri trú. Það
vissi ekki hvað myndi gerast.“.
Tvær breskar konur, Dorothy og
Marion, hafa nýlega sett upp hjálpar-
miðstöð fyrir þá sem eru að reyna að
hætta valíum-neyslu, en þær eru báðar
fyrrverandi valíum-sjúklingar. Svo
margar hjálparbeiðnir bárust til þeirra,
bæði gegnum síma eða bréfleiðis, að þær
eru nú að reyna að koma á fót fleiri
slíkum miðstöðvum um landið allt, í
samvinnu við Release. „Það er mikil-
vægt að fólk geri sér grein fyrir því að
fráhvarfseinkennin geta haldist í langan
tíma,“ segir Dorothy. „Ég þekki nokkur
dæmi um tilfelli þar sem fráhvarfsein-
kennin hurfu ekki fyrr en eftir tvö ár,
og var neyslunni þó hætt smátt og smátt.
Eitt helsta vandamálið er þó það að fyrir
flesta tekur langan tíma að manna sig
upp í að hætta. Það hjálpar mikið að
hafa einhvern til að ræða við um þetta
vandamál."
Hvers vegna
nær eingöngu konur?
Það eru nú tvö ár síðan Dorothy át
valíum í síðasta sinn, en undir lokin var
hún farin að neyta 70 milligramma á dag,
eða rúmlega tvöfalds lágmarksskammts.
Hún segir: „Maður verður að læra að
það er hægt að bregðast við vandamál-
um öðruvísi en að fá sér pillu. Það hefur
hvert áfallið af öðru dunið yfir mína
fjölskyldu en þá hef ég staglast á því við
sjálfa mig að morgundagurinn hljóti að
verða skárri en dagurinn í dag.“
Náttúrlega getur þetta verið afar erfitt,
en verra er þó að gleypa töflu af valíum,
sem aldrei var hugsað sem allsherjar-
lausn á persónulegum vandamálum.
Lader segir að fólk verði umfram allt að
takast á við vandamál sín, viðurkenna
stresseinkennin og reyna að þola þau,
og Hilary Prentice segir að besta leiðin
sé að veita öllum tilfinningum sínum
einhverja útrás. „Að skjálfa getur verið
leið til að losna við ótta,“ segir hún, „og
grátköst losa um sársauka." Áðumefnd
Dorothy leggur á hinn bóginn áherslu á
að vandamál séu rædd, svo að fjölskylda
og vinir þess sem er illa á sig kominn
skilji hvað um er að vera.
En hvernig stendur á því að hér hefur
nær eingöngu verið rætt um konur?
Hvers vegna er svo mikill meirihluti
valíum-neytenda konur? Er það vegna
þess að samkvæmt hefðinni verða konur
að sjá um heimilið og stress ræðst því
harkalegar að þeim en körlum, eða er
það vegna þess að karlar eiga auðveld-
ara með að fá útrás með drykkju? Eða
skiptir hér máli við hverju karlar búast
af konum? Joanna Murray hefur
undanfarið unnið að rannsókn á félags-
legum þáttum í neyslu róandi eða
örvandi lyfja hjá sálfræðistofnun Lun-
dúna. Hún spyr: „Getur það verið að
konur hafi fleiri sálfræðileg vandamál en
karlar, eða getur skýringin verið sú að
læknar, sem flestir eru karlar, hneigjast
til þess að álíta að svo sé? Það má líka
spyrja hvort konur séu einfaldlega færari
um að lýsa tilfinningum sínum en karlar.
Konur geta áttað sig á því að verkurinn
í öxlinni stafar af stressi, en karlar segja
aðeins að þeim sé illt á þessum og
þessum stað.“ Hver svo sem ástæðan er,
þá er það altént ljóst að þessi vandi er
raunverulegur, ekki ímyndaður. Konur
taka miklu meira af valíum en karlar.
Heilaskemmdir?
Malcolm Lader, prófessor, segir að
þrátt fyrir stóraukna umræðu um
afleiðingar af notkun valíum og skyldra
lyfja, þá sé enn margt órannsakað, og
raunar hafi yfirborð vandamáls enn
varla verið nema léttilega gárað. „Hvert
það lyf sem hefur áhrif á heilann í meira
en fimm ár verður að taka alvarlega,"
segir hann. „Heilinn hefur ekki enda-
laust viðnámsþol.“ Nýjar rannsóknir
hans hafa gefið til kynna heilaskemmdir
hjá þeim sjúklingum sem lengst höfðu
tekið lyfið, svipaðar þeim heilaskemmd-
um og gera vart við sig hjá áfengissjúkl-
ingum, en að vísu á lægra stigi. Lader
leggur áherslu á að þessa hlið málsins
hafi hann enn ekki kannað nógu
nákvæmlega til að taka af skarið um
orsök eða afleiðingu, en þessi tíðindi
virðast mjög alvarleg.
Allir þeir sem rætt var við í þessari
grein tóku fram að það væri ekkert
athugavert við að taka benzódíazepín-
lyf um skamma hríð. Þau geta bæði verið
eins konar bauja til að ná taki á stórsjó,
eða róað stressaða manneskju nægilega
mikið til að hún geti síðan sjálf glímt við
erfiðleika sína. En séu lyfin notuð sem
hækja er illt í efni, því sú hækja þolir
ekki þyngd sjúklingsins. Fyrr eða síðar
hlýtur hann að detta og fallið getur orðið
slæmt. Fáir geta víst búist við því að
sleppa jafn vel og Barbara Gordon sem
dansaði eins hratt og hún gat, og hafði
á endanum upp úr því metsölubók og
kvikmynd. En þeir sem vilja berjast
gegn lyfjanotkun sinni geta að minnsta
kosti haft hugfast að morgundagurinn
hljóti að verða skárri en dagurinn í dag.
- ij endursagði.
■ Jiil Clayburgh leikur aðalhlutverkið í myndinni I’m Dancing As Fast As I Can,
þar sem fjallað er um vandamál konu sem reynir að hætta valíum-neyslu, og tekst
það eftir ógnvænlega baráttu. Myndin er byggð á sjálfsævisögu Barböru Gordon,
en fjöldi kvenna hefur svipaða sögu að segja.
BÆNDUR - SUMARBÚ STAÐAEIGENDUR
FOSS — ROTÞRÆH
Nú er rétti tíminn til að notfæra sér
auðvelda lausn á skólpvandamálinu.
FOSS — ROTÞRÆR
eru úr trefjaplasti
og því níðsterkar.
FOSS — ROTÞRÆR
þola mikinn þrýsting
og hafa langa endingu
FOSS — ROTÞRÆR
eru tilbúnar til notkunar,
léttar í meðförum og
auðvelt að setja þær niður
FOSS — ROTÞRÆRNAR
eru framleiddar i mörgum
stærðum, sem henta sumar-
bústöðum, bændabýlum og stærri sambýlum.
$ SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
r . i r s t i rt i /\ i\ i r\ r ri r» a » i t 1 'i i t\ /i » »1 w i
si JÐURLAN DSBRAU T J? SIMI8/U3-1
OG KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT
HVAÐ
MEÐ
ÞIG
||U^FEROAR
Við erum
til á lagernum
Þess vegna bjóöum viö þrjá Bedford Körfubíla, sem eftir eru á sérlega hagstæöu veröi:
Aöeins kr. 102.350 stykkiö.
Greiðsluskilmálar eru ekki síöri:
33% útborgun (33.775 kr) og eftirstöövar á 12 mánuðum.
Bílarnir eru árg. '70/ ‘71, nýsprautaöir og nýuppgerðir.
Þeir eru meö Simon 28-körfuútbúnaöi, sem lyftir 170 kg upp í 8,5 m vinnuhæö.
pnunn/on &vnu/on
Klapparstíg 16 Símar: 91-27745 — 27922