Tíminn - 15.08.1982, Blaðsíða 22
SUNNUÐAGUR 15. ÁGÚST 19*2
22
Wimwrn
■ Afríka er óróleg heims-
álfa. Byltingar, byltingar-
tilraunir, uppreisnir og stríð
eru nær daglegt brauð einhvers
staðar í álfunni. Leiðtogar,
sem sjálfir komust flestir til
valda eftir byltingar, lifa í
stöðugum ótta við gagnbylt-
ingu og síðan útlegð eða
dauðadóm. Kannski þeir
slappi samt af næstu árin.
Brjálaði Mike hefur verið
dæmdur í 20 ára fangelsi í
Suður-Afrfku, því landi sem
undanfarna tvo áratugi hefur
vemdað hann gegn óteljandi
óvinum.
Hver Brjálaði Mike er?
Hann heitir Hoare og kallar sig
ofursta, er alveg efunarlaust
frægasti málaliði heims, og
starfar auk þess sem ráðgjafi
ýmissa uppreisnar- og and-
spyrnuhreyfinga. Brjálaði
Mike vinnur reyndar ekki fyrir
hvern sem er. Hann er vandur
að virðingu sinni og ræður sig
aðeins í þjónustu þeirra sem
ekki geta talist sósíalistar á
neinn hátt. Nú hefur hann
verið dæmdur fyrir flugrán í
nóvember á síðasta ári, eftir að
hann hafði, ásamt 44 félögum
sínum, gert tilraun til að
steypa stjórninni á Seychelle-
eyjum, sem eru á Indlands-
hafi, ekki langt undan vestur-
strönd Afríku. Tilraunin fór út
um þúfur, og Brjálaði Mike og
málaliðar hans komust undan
með því að ræna flugvél frá
Indian Airlines, og fljúga
henni til Durban í Suður-
Afríku. Par var hann hand-
tekinn og nýlega lauk loksins
réttarhöldunum í máli hans,
en þau cru hin umfangsmestu
sem haldin hafa verið í sögu
Suður-Afríku. Meðan á réttar-
höldunum stóð gerðu fjölmörg
Afríkuríki kröfu til að fá
Brjálaða Mike framseldan en
rétturinn virti þær kröfur að
vettugi. Hann var sem fyrr
segir dæmdur í 20 ára fangeisi,
en þar af eru 10 ár skilorðs-
bundin, vegna þess að hann
vildi endilega taka tillit til
aldurs Brjálaða Mike (en hann
Japanir endurrita söguna:
„Innrás" verður að
„liðsflutningum"
■ Kínverjar eru þrautþjálf-
aðir í að endurrita söguna.
Þegar menningarbylting hófst
breyttist fortíð Kína skyndi-
lega mjög verulega, og eftir að
Maó Zedong lést hefur hann
jafnvel verið máður út af
Ijósmyndum. Því þóttu ofsa-
fengnar ásakanir Kínverja, um
að nágrannaþjóðin Japanir
væru að endurskrifa söguna, í
fyrstu koma úr hörðustu átt -
eða þar til farið var að athuga
málið betur. Það vill svo til að
í apríl á næsta ári mun koma
út í Japan endurskoðuð útgáfa
mannkynssögubókar fyrir
menntaskólanema, og þar er
vikið svo rækilega frá hefð-
bundinni söguskoðun að ekki
aðeins Kínverjar hafa mót-
mælt, heldur flestar þjóðir
Asíu. Dæmi:
Fjöldamorðin í Nanking
1937 hefur hingað til verið lýst
sem fjöldamorðunum í Nank-
ing 1937, þar sem Japanir hafa
„myrt, rænt og brennt“ uns 200
þúsundir Kínverja lágu dauð-
ir. í nýju bókinni er þetta alls
ekki kallað fjöldamorð. Tölu
látinna hefur verið sleppt og
látið er í veðri vaka að
japönsku hermennirnir hafi
aðeins verið að hefna félaga
sinna.
Innrás japanska hersins í
Mansjúríu áður en síðari
heimsstyrjöldin hófst hefur til
þessa verið nefnd „innrás",
„árás“ og „heimsvaldastefna".
Nú heitir þessi atburður
„sókn“ og „liðsflutningar".
Búið er að þurrka út allar
málsgreinar sem sögðu frá
þrælkunarvinnu kórenskra
fanga í Japan meðan á stríðinu
stóð, og tala kínverskra fanga
í sömu „vinnu“ hefur verið
lækkuð um 20%, eða niður í
40 þúsundir, án þess að vitað
sé um ný gögn sem styðji þessa
lækkun.
Uppreisn í Kóreu
óskipulögð uppþot
æsingamanna?
Uppreisn Kóreubúa gegn
nýlendurherrum Japans árið
1919 hefur allt fram á þennan
dag verið talin nokkuð mikil-
vægur atburður í sögubókum,
japönskum sem öðrum. Nýja
útgáfan gefur í skyn að um hafi
verið að ræða óskipulögð
uppþot æsingamanna. Alls
ekki er getið um þær sjö þús-
undir sem Japanir myrtu í
kjölfar uppreisnarinnar, né
heldur um allar þær kóreönsku
kirkjur sem þeir brenndu til
grunna.
„Leiðréttingar" af þessu tagi
hafa valdið því að stjórnirnar
í Norður- og Suður-Kóreu
hafa sent yfirvöldum í Japan
harðorð mótmæli, og mörg
ríki í Suðaustur-Asíu sömu-
leiðis. Viðbrögð Kínverja eru
þó lang harkalegust enda eiga
margir enn um sárt að binda
síðan Japanir fóru hamförum í
Kína á árunum 1933-45. Kín-
verjar hafa rifjað upp stríðs-
rekstur Japana í landinu í
löngu máli og birt myndir af
hrottalegum hermdarverkum,
meðal annars af kínverskum
föngum sem notaðir voru sem
fórnarlömb í æfingum jap-
er orðinn 63ja ára, kallinn) og
„and-marxískra sjónarmiða
hans.“. Réttarhöldin snérust
fyrst og fremst um flugránið en
hann var ekki einu sinni
ákærður fyrir valdaránstil-
raunina á Seychelle-eyjum.
■ Brjálaði Mike. Fé hefur
verið lagt til höfuðs honum í
fjölmörgum Afríkuríkjum.
Eina ákæran sem hugsanlega
laut að þeim atburði var sú að
hann hefði stofnað lífi annarra
í hættu. Og það er alveg
óumdeilanlegt - Brjálaði Mike
hefur lítið annað gert í lífinu
en stofna öðrum í hættu.
Frægur í
Kongó-stríðinu
Thomas Michael Bernard
Hoare, sjálfskipaður ofursti,
fæddist á frlandi og lærði til
hermanns í síðari heims-
styrjöldinni, en þá var hann í
breska hernum og barðist
meðal annars gegn Japönum í
Búrma. í rúman áratug fór
fáum sögum af honum en árið
1960 varð hann víðfrægur og
hataður, málaliði í borgara-
stríðinu sem braust út í Kongó
(síðar Zaire), er landið fékk
sjálfstæði frá Belgíu. Mála-
liðar komu mjög við sögu í
þessu borgarastríði, sem stóð í
mörg ár eða þar til hersveitir
Sameinuðu þjóðanna sóttu inn
í héraðið Katanga og skildu
stríðsaðilana að.
Teiknimyndasaga
um páfann!
■ Jóhannes Páll páfi hefur
einhvern veginn haft lag á því
að gera sig hjartfólginn mann-
kyninu. Þessi Pólverji, sem
upphaflega hét Karol Wojtyla,
hefur á ýmsan hátt farið aðrar
leiðir í starfi en títt var um
fyrirrennara hans, og af sjálfu
sér leiðir að honum er öðruvísi
tekið. Eða skyldi einhverjum
hafa dottið í hug að gera
teiknimyndasöguhetju úr hin-
um stranga Páli páfa sjötta?
Aldeilis ekki. En nú er
Jóhannes Páll orðinn slík
„kartún" hetja - í Ameríku
auðvitað, þar sem útgáfufyrir-
tækið Marvel Comics hefur
sett á markað 64ra síðna hefti
sem ber heitið Líf Jóhannesar
Páls páfa annars. Fyrirtæki
þetta hefur hingað til verið
þekktast fyrir að gefa út sögur
um „Jötuninn ógurlega" og
aðra slíka, en nú hefur páfinn
sem sé bæst í hópinn. Það segir
sig sjálft að páfinn hefur lagt
blessun sína yfir þessa útgáfu.
Ævi hans hefur reyndar verið
að mörgu leyti viðburðarík, en
að hún skyldi vera talin
„komix-stöff“ - það grunaði
okkur ekki...
Brjálaði Mike
Stríð þetta þótti mjög
grimmdarlegt og mörg hryðju-
verk framin af báðum aðilum,
og það var þarna í Kongó sem
T.M.B. Hoare fékk nafnið
Brjálaði Mike. Sögumar um
afrek hans em afar litríkar, en
alveg áreiðanlega orðum aukn-
ar. Það er vitað að hann
bjargaði fjölda Evrópubúa frá
hefndaræði Afríkumanna, en
hitt er líka vitað að mennirnir
í liði hans vom alræmdir fyrir
að skilja eftir sig slóð nauðg-
ana og rána, hvar sem þeir
fóm.
Eftir að stríðinu í Kongó
lauk settist Brjálaði Mike að í
Suður-Afríku og gerðist end-
urskoðandi! En það er illt að
kenna gömlum hundi að sitja
og oft hvarf hann á braut frá
heimabæ sínum Pietermaritz-
burg, og kom af stað bylting-
um, uppreisnum eða smáskær-
um hér og hvar í Afríku. Nóg
af slíku í álfunni undanfarið og
margir sem töldu sig þurfa á
þjónustu „sérfræðings" eins og
Brjálaða Mike að halda. Nú er
svo komið að fé er lagt til
höfuðs honum í fjölda ríkja í
Afríku, en hann hefur jafnan
átt sér bakjarl, þar sem er
stjórnin í Suður-Afríku. Eins
og fyrr greindi berst Brjálaði
Mike aðeins gegn þeim sem
hann sjálfur stimplar sósíalista
og það fellur ráðamönnum í
Pretoriu ágæta vel í geð.
Oftast hafa þeir því lokað
augunum þegar Brjálaði Mike
fer í stríð, en þess eru líka
dæmi að hann hafí fengið
vopn, hermenn og peninga frá
stjórninni.
Dæmdur tíl dauða
í Súdan
Stjómin í Suður-Afríku tók
líka þátt í ævintýri einu sem
snerti Brjálaða Mike óbeint.
■ Brjálaði Mike í gamla daga, þegar hann stjórnaði sveit málaliða í her Tsjombes.