Tíminn - 17.08.1982, Page 1
Heimsókn furstahjónanna frá Monaco — bls. 10-11
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Þriðjudagur 17. ágúst 1982
185. tbl. - 66. árgangur.
Arabaríkin:
dæturnar
— bls. 2
Dást að
baráttu
PLO
— bls. 7
Okkar
á milli
— bls. 19
Mót
barnanna
- bls. 6
Framsóknarmenn fjalla um efnahagsadgerðir á löngum fundi í gærkveldi:
HUGMYNDIR UM10%
VÍSITÖLUSKERÐINGU
— eftir 1. september nk. komnar fram hjá öllum aðstandendum ríkisstjórnarinnar
■ Nýtt vísitölukerfi, sú niðurfelling
sem nauðsynleg er talin á verðbótavísi-
tölustigum, sérstök tekjuöflun og
ráðstöfun þeirra tekna í sambandi við
efnahagsaðgerðir og breyttur grund-
völlur lánskjaravísitölu eru þau atriði
sem þingmenn Framsóknarflokksins
telja kjarnaatriðin í þeim cfnahags-
ráðstöfunum sem nauðsynlegt er talið
að gera hið fyrsta.
Um þessi atriði - og fleiri - var rætt
á löngum fundi þingflokks framsóknar-
manna í gærkvöldi þar sem afstaða
flokksins til þeirra var mörkuð og
Steingrími falið að kynna hana á fundi
ríkisstjórnarinnar, sem átti að vera í
dag, en heyrðist t' gærkvöldi að
forsætisráðherra mundi hafa frestað til
miðvikudags.
Það kom. fram að framsóknarmenn
leggja mikla áherslu á að þær aðgerðir
sem koma eiga að notum í viðureign-
inni við verðbólguna verði teknar strax
og með ótvíræðum orðum, svo enginn
þurfi að vclkjast í vafa um hvcrjar þær
eru.
Menn undruðust á hinn bóginn það
bráðræði alþýðubandalagsmanna að
koma þeim tillögum sínum cr þcir
gengu frá um hclgina á framfæri í
útvarpinu áður en tími vannst til að
kynna þær fyrir ríkisstjórninni. Ýmsar
af þeim tillögum telja framsóknar-
menn fráleitar og erfitt að sjá hvaða
erindi þær sumar hverjar eiga inn í
tillögur um efnahagsaðgerðir.
Hjá öllum aðstandendum ríkis-
stjórnarinnar munu nú uppi hug-
myndir 10 prósentustiga skerðingu á
verðbótum á laun í kringium áramót.
■ Það sama virðist um þessar mundir eiga við um stjórnarþingmenn og útgerðarmenn að hvorugir munu öfundsverðir af stöðu sinni, en alltaf virðist þó
jafn cftirsótt að komast í slíkar stöður. Tímamynd Ella
Breyting á verðákvörðun gæruverðs:
VERD
GÆRUM
LÆKKfl UM NÆR 50% ?
■ Sú breyting hefur orðið á verð-
ákvörðun gæruverðs til bænda að
skipaður hefur verið starfshópur um
það en þetta var áður í höndum 6
manna nefndarinnar svokölluðu. Er
ætlunin að starshópur þessi takið mið
af heimsmarkaðsverði hverju sinni.
Samkvæmt heimildum sem Tíminn
telur áreiðanlegar mun verða lögð
fram í þessum starshóp tillaga sem
kveður á um að gæruverð í ár verði
óbreytt í krónutölu frá því sem var í
fyrra en þetta þýðir um 50% lækkun á
verði á milli áranna.
Sem kunnugt er af fréttum í
Tímanum fyrir nokkru er mikil deyfð
yfir skinna - og gærumörkuðum okkar
erlendis og horfur með sölu mjög
dökkar og ljóst að við óbreytt ástand
fer verð á þessum mörkuðum lækk-
andi fhaust.
Starfshópur sá sem finna á út
gæruverð mun gera tillögu að bráða-
birgðaverði þann 1. september n.k.
en síðan verður það leiðrétt 1.
desember. Þessi starfshópur er til-
kominn vegna þeirrar óánægju iðn-
aðarins að hafa ekki fulltrúa í 6
mannanefndinni sem ákvað áður verð
á gærum til iðnaðarins.
- FRI