Tíminn - 17.08.1982, Qupperneq 10
10_________________
f réttaf rásögn
■ „Furstahjónin voru afar ánxgð með
heimsóknina og þótti mikið til þess
koma, sem þau sáu hér og ég hcld að
þetta hafi allt tckist vonum framar,“
sagði dr. Sturla Friðriksson, sem hafði
veg og vanda af skipulagningu heim-
sóknar Grace Kelly og Rainiers fursta til
Islands nú um hclgina. Dr. Sturla á sxti
í heimskautanefnd Vísindamiðstöðvar
Mónakó og tók hann skipulagninuna að
sér að beiðni prófessor Louis Ray, sem
var með í förinni og annaðist skipulag
allrar ferðarinnar frá degi til dags.
„Furstahjónin sátu boð forseta ís-
lands á laugardagskvöldið", sagðidr.
Sturla „og þær móttökur fóru mjög vel
og virðulega fram. Svo hófu þau ferð
sína hér um landið í einkaerindum.
Ferðin hófst með því að komið var í
Arbæjarsafnið og það skoðað, cn þá var
rennt fyrir lax í Laxá í Kjós, þar sem
tími hafi verið tekinn frá fyrir þau. Var
það að þakka lipurð Páls Jónssonar,
framkvæmdastjóra, sem aðstoðaði
Albert prins við veiðarnar. Aðstoðar-
maður furstans var Þórólfur Magnússon.
Þau stönsuðu hjá ánni í rúman
klukkutíma og þeir furstinn og Albert
sonur hans renndu fyrir lax og scttu í
einhverja smáfiska. Þótt ekki væri miklu
landað þá höfðu þcir afskaplega gaman
af þessu og þeir voru alltaf að biðja um
fimm mínútur í viðbót, því laxinn stökk
allt í kring og veiðihugur kominn í þá.
Furstinn veiddi lax í skoskum ám á yngri
árum og kunni greinilega aðfcröirnar.
Nú var haldið yfir Kjósarskarð til
Þingvalla og þegar þangað kom skein
sólin á okkur. Brúnin lyftist náttúrlega
á mönnum, þegar kom fram á brún
Almannagjár, en ég hcld að það sé
sama með hvaða útlending maður
kemur þangað, hrifningin cr alltaf jafn
mikil. Þrátt fyrir hvassviðri fór unga
fólkið alveg fram á nasirnar, til þess að
sjá niður og furstafrúin hafði mikinn
áhuga á gjánum og sprungunum og
spurði margs um hvernig þetta heföi
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGUST 1982
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGUST 1982
■ Á Bcssastöðum. Hér skiptast þau á orðum, Rainier fursti og forseti. Við hlið furstans er sonur hans, Alberl prins, en fyrir miðju standa þxr mxðgur Grace Kelly og Karólína.
RAUÐUR HESTUR KOM I
VEISLU FURSTAHJÓNANNA
Ovænt uppá-
koma í heim-
sókn fursta-
f jölskyldunnar
frá Monaco
til Islands:
myndast og hvenær. Svo var gengið
niður gjána og staldrað viö á Lögbergi
og þar var saga staðarins rakin.
Við vorum í bílum frá Guðmundi
Jónassyni, scm Guðmundur bílstjóri af
þriðju kynslóð ók, afar clskulcgur og
traustur piltur, cins og hann á kyn til.
Blaðamenn héldu vcl loforð sitt um að
gefa okkur næði og viö hcldum nú upp
á Laugardalsvcllina, upp undir hellinn
þar, og þar var sest að borðum úti, mcð
því að mynda skjól af tjaldi og bílnum
okkar. Þarna var lax í ýmsu formi,
graflax, reyktur lax, og soðinn lax og
cnn murta, síldarréttir og meira að segja
hákarl. Máltíðinni lauk svo með því að
bornir voru fram íslcnskir ostar. Við
Sigrún Laxdal, kona mín og ég, buðum
þeim hjónum í þennan málsverð á
Laugardalsvöllum. Þetta var mjög
ánægjulcgt borðhald. Sólin skcin öðru
hverju þótt dálítill úði væri á milli. Þarna
var mjög glatt á Hjalla og gott
andrúmsloft, og sagði furstafrúin að
sjaldan hefði hún skemmt sér betur við
útiborðhald. Hér átti Sveinn Sveinsson
frá Hótel Sögu, sem aðstoðaði við
borðhaldið, sinn hlut að máli. Það setti
líka dálítið krydd í þetta að til okkar
kont hlaupandi rauður hestur, einhvers
staðar ncðan af völlunum, og furstinn
spurði hvernig við hefðum getað
skipulagt þetta líka, því nógu vel væri
heimsóknin skipulögð. Karólína
prinscssa á sjálf íslcnska hesta, sem hún
heldur mikið upp á, og mcnn höfðu orð
á að hesturinn hcfði verið að heim-
sækja hana sérstaklega. Hann þáði
brauð af henni og vildi greinilega vera
með í sclskapinu.
Þegar borðið hafði verið tekið upp var
ekið að Gullfossi. Þar var þokkalegt
veður og fossinn er alltaf jafn tignarlegur
og hér gafst nýtt færi á að dást að
íslensku landslagi. Að því loknu var
snúið við í skyndi því áætlunin var ströng
og við urðum að miða við brottför
skipsins, sem átti að vera klukkan sex.
Samt var dvöldin hjá Geysi nokkru
lengri en ráð hafði verið fyrir gert. Við
ætluðum að hafa þar hálftíma stopp, en
það varð öllu lengra. Nú var mikið tekið
af myndum og kvikmyndum af hinum
og þessum hveraaugum. Strokkur gaus
nokkrum sinnum og unga fólkio hafði
mikið gaman af þeim viðburðum. Ég
veit ekki hvort þau hafa séð-slíkt fyrr
þótt það kunni að vera, ef til vill í
Yellow Stone Park.
Frá Geysi var svo ekið rakleitt til
Reykjavíkur að nýju. Þar stigu gestirnir1
um borð í skip sitt Mermoz og leiðir
skildu.
Þetta var eins og áður segir mjög
ánægjulcg heimsókn og allt fór fram eins
og best varð á kosið," sagði dr. Sturla
Friðriksson.
■ Hinir tignu gcstir við komuna til Reykjavíkur. Lengst til vinstri er skipstjórinn á skipi þeirra, Mermoz. Þá stcndur
nxst Karólína prinsessa, Grace Kelly, Albert prins og loks Rainier fursti. Tímamynd Ari
■ Komið til móttöku hjá forseta íslands að Bessastöðum á laugardagskvöldið.
Tímamynd Ella
11
.eikfangahúsið
kólavörðustig 10. sími 14806'
©St. Jósefsspítali
Landakoti
Starfsfólk: nokkrar stööur lausar f.o.m. 1. okt. á
barnaheimili spítalans, (aldur barna 1-3 ára).
Hjúkrunarfræðingar: lausar stöður á barna-
deild, gjörgæslu, skuröstofu, lyflækninga- og
handlækningadeildum.
Fastar næturvaktir koma til greina.
Sjúkraliðar: Lausar stööur á barnadeild,
lyflækninga- og handlækningadeildum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
19600 kl. 11-12 og 1-15.
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í
eftirfarandi:
RARIK-82036. Distribution Transformers 100-
800 kVA.
Opnunardagur: Þriðjudagur 14. september
1982 kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík fyrir
opnunartíma, og veröa þau opnuð aö viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík,
frá og meö mánudeginum 16. ágúst 1982 og
kosta kr. 50.- hvert eintak.
Reykjavík 12. ágúst 1982
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Ifl Borgarspítalinn
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stööur hjúkrunarfræöinga á eftirtöld-
um deildum í haust:
Hjúkrunar- og endurhæfingadeildir:
Grensás
Heilsuverndarstöð
Hafnarbúöir
Hvítaband.
Lyflækningadeildir:
A-6
A-7
E-6
Geðdeild
A-2
Gjörgæsludeild: Staða aðstoðardeildarstjóra.
Vaktir og vinnutími eftir samkomulagi.
Sjúkraliðar
Lausar eru stöður sjúkraliða á flestum deildum
spítalans.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra. Sími 81200.
Reykjavík 12. ágúst 1982.
Borgarspítalinn
A Bflbeltin
jfg hafa bjargað UXERDAB
*'ÍAV$
ilasala«Bilaleiea
U630
19514
Greiðari
leið meö VISA
greiöslukorti
go-jo sápan leysir upp
alls kynsóhreinindi
go-jo er fljótandi sápa
í þægilegum skammtara
go-jo inniheldur
handáburð.
BENSÍNSTÖÐVAR
SKELJUNGS
Stór hópur íslendinga þekkir nú
af eigin reynslu kosti VISA
greiðslukortanna. Þau má nota
erlendis til greiðslu á ferðakostn-
aði, svo sem fargjöldum, uppi-
haldi o.fl.
VISA greiðslukort eru þau al-
gengustu sinnar tegundar í heim-
inum og njóta mikils trausts.
Upplýsingablað með reglum um
notkun liggurframmi í næstu af-
greiðslu bankans.
Kynnið ykkur gjaldeyrisþjónustu Landsbankans.
LANDSBANKINN
Baitki allra landsmanna