Tíminn - 17.08.1982, Qupperneq 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7-75-51 & 7 00-30
Varahlutir
Mikiö úrval
Ábyrgö á öllu
Sendum um allt land
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingafélag
labnel
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir
Armiíla 24
Sími 36510
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGUST 1982
■ Forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir tekur fyrstu skólfustunguna að hinni nýju sjúkrastöð SÁÁ. Henni á vinstri hönd stendur Björgúlfur Guðmundsson
formaður SÁÁ. Tímamynd GE
Samtök áhugafólks um áfengisvandamálid:
BYGQIfl NYJA SJIÍKRA-
STÖÐ VID GRAFARVOG
- forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir tók
fyrstu skóflustunguna að sjúkrastöðinni
■ Forseti Islands Vigdís Finn-
bogadóttir tók fyrstu skóflu-
stunguna að nýrri sjúkrastöð sem
SÁÁ mun byggja við Grafarvog
og fór athöfnin fram á lau^ardag.
Hin nýja sjúkrastöð SAÁ mun
verða 2000 fm. að stærð og
áætlaður byggingarkostnaður
nemur um 30 millj. kr.
Reykjavíkurborg úthlutaði
SÁÁ lóð undir stöðina í
nóvember á s.l. ári og var
vinnustofan Klöpp ráðin til að
annast hönnun en verkið síðan
boðið út í heild sinni og
samþykkt að taka tilboði
Vörðufells hf. sem skilar af sér
sjúkrastöðinni fullkláraðri 1.
okt. 1983.
Gert er ráð fyrir að nýja stöðin
geti annað 60 sjúklingum,
dvalartími þeirra er 7-10 dagar
en starfsmenn stöðvarinnar
verða 22.
SÁÁ starfrækir auk sjúkra-
stöðvar að Silungapolli, endur-
hæfingarheimili fyrir 30 manns
að Sogni, Ölfusi, endurhæfingar-
heimili fyrir 30 manns að
Staðarfelli, Dölum, fræðslu- og
leiðbeiningarstöð í samvinnu við
Áfengisvarnardeild Heilsu-
verndarstöðvar Reykjavíkur f
Síðumúla 3-5, Rvk., fræðslu í
skólum, fyrirtækjum og félög-
um, sem óska eftir því, útgáfu-
starfsemi s.s. tímarit og bæklinga
i kynningar - og fræðslufundi
í samvinnu við ÁHR í Síðumúla
3-5, R. fyrir alla þá sem áhuga
hafa, fræðslunámskeið o.fl.
- FRI
fréttir
Harður árekstur
tveggja bifreiða í
Kópavogi
■ Ökumenn tveggja bíla
voru fluttir á slysadeild
eftir haröan árekstur sem
varð á gatnamótum
Kársnesbrautar og Sæbóls-
vegar laust fyrir klukkan
17 í gær. Talsverðar
skemmdir urðu á bílunum
og mun annar þeirra hafa
verið fluttur af vettvangi
með kranabíl.
Ekki tókst að fá upp-
lýsingar um hversu alvar-
leg meiðsli ökumannanna
eru.
- Sjó.
Bíll stórskemmdist í
eldi
■ Fólksbifreið stór-
skemmdist þegar eldur
kom upp í henni þar sem
hún var kyrrstæð og mann-
laus við íbúðarhús við
Hjallabrekku í Kópavogi í
fyrrinótt. Þaö var laust
fyrir klukkan fimm að
slökkviliðið í Reykjavík
var kvatt að bifreiðinni og
varþáíhennimikilleldur.
Bifreiðinni var lagt fyrir
utan húsið um klukkan
átta á föstudagskvöldið.
Síðan þá var ekki vitað til
að nokkur maður hefði
komið í hana. Eldsupptök
eru ókunn.
- Sjó.
Blaðburðarbörn
óskast
Timai..
vantar
fólk til
blaðburðar
I cftirtalin
hverfi:
Kópavogur:|
Álfliólsveg, efri
Þverbrekku og
víðsvegar í Kópa-
vogi
Reykjavík:
Hjallar,
Tungur.
dropar
Súrefnis-
leysi sjálf-
stæðis-
manna
■ Menn hafa verið undrandi
hve stjórnarandstuðuhluti
Sjálfstæðisflokksins hefur ver-
ið slappur undanfarið, þótt
ýmis tækifæri hafi gefist til að
láta í sér heyra að undanfömu.
Nú hefur sú skýring verið gefin
að ástæðan sé fyrst og fremst
súrefnisskortur í þingflokks-
herbergi Sjálfstæðisflokksins.
Eftir að forsvarsmenn fiokks-
ins gerðu: sér grein fyrir þessu
hefur verið hafist handa við
endurbætur, og cr nú unnið
við það baki brotnu að koma
fyrir loftræstikerfi í her-
berginu. Að því verki loknu
vonast menn til að stjórnar-
andstaðan vakni til lífsins, þó
aðrir haldi því fram að heila-
skemmdir vegna súrefnis-
skortsins se'u orðnar það alvar-
legar að ekkcrt verði við þessu
gert.
Bollan í
Elliðavatni
■ Þá hefur nýjasta kvikmynd
Hrafns Gunnlaugssonar,
Okkar á milli ... verið
frumsýnd með pomp og prakt
og eins og gefur að skilja var
heljarmikið frumsýningar-
partý haldið eftir frum-
sýninguna. Hófst það í Óðali
að lokinni sýningu og var
boðið upp á þrumugóðan
kokteil eða bollu eins og sumir
kalla það. Frá Óðali var síðan
haldið að Elliðavatni í sumar-
bústað einn sem þar er og
partýinu haldið áfram.
Kokteillinn var að sjálfsögðu
fluttur þangað úr Óðali og
sögðu einhverjir gárungar í
hópnum, sem fylgdi á eftir
veigunum upp að Elliðavatni,
að sennilega hefði Hrafn aflað
sér þar efnis í næstu mynd sem
væntanlega kæmi þá til með að
heita „Bolian í Elliðavatni“.
Sakaði ekki
ad Davíð
var með
■ ....Þó Hrafn hafi boðið til
veislunnar i Óðal segir sagan
að það hafi verið sjálfur
Óðalsbóndinn, Jón Hjaltason,
sem borgaði „brúsann“, enda
fær veitingastaðurinn ókeypis
auglýsingu í títtnefndri kvik-
mynd, þar sem sum atriði
hennar eru tekin þarupp. Ekki
sakaði að meðal boðsgesta í
Óðali var Davíð Oddsson,
gamli félagi Hrafns úr Matt-
hildi, núverandi borgarstjóri,
en þessa dagana eru borgar-
yfirvold einmitt að taka af-
stöðu til þess hvort Óðals-
bóndanum verði heimilað að
tyggja bowlinghöll og
skemmtistað í Oskuhiíðinni.
Krummi ...
...telur að gullsmiðirnir ættu
að snúa sér um tíma að
lásasmíðinni...