Tíminn - 27.08.1982, Blaðsíða 1
„Helgarpakkirm” fylgir Tímanum í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 27. ágúst 1982
193. tbl. - 66. árgangur
Erlent yfirlit:
í Líbanon
— bls. 7
Samvinnuhreyfingin rausnarleg á afmælisári sínu:
— GRUNNVÖRU-afslátturinn orðinn 2.5 milljónir eftir fyrstu
sex mánuði ársins
■ „Samkvæmt könnun er gerð var
eftir fyrstu sex mánuði þessa afmælis-
árs Samvinnuhreyfingarinnar kom í
ljós að afslátturinn sem samvinnu-
félögin höfðu þá veitt landsmönnum af
þessum svonefndu GRUNNVÖRUM
nam samtals 2.477.837 krónum. Hver
heildarupphæð þessarar afmælisgjafar
Samvinnuhreyfingarinnar verður þeg-
ar sölu þessara vara lýkur í nóvember
er ekki gott að spá nákvæmlega en
líklegt má telja að upphæðin verði 5-6
milljónir króna,“ sagði Hjalti Pálsson,
framkvæmdastjóri Innflutningsdeildar
Sambandsins í samtali í gær.
„Hér er vissulega um verulegan
afslátt að ræða sem væntanlega hefur
komið mörgum til góða í ódýrari
nauðsynjum, ekki síst bammörgu
heimilunum, því grunnvörumar sam-
anstanda af almennum neysluvömm
sem öll heimili kaupa meira eða minna
af,“ sagði Hjalti.
Gmnnvömmar em margs konar
almennar matvömr frá Innflutnings-
deild Sambandsins og hafa verið til
sölu á sama verði í öllum matvömversl-
unum samvinnumanna frá áramótum.
Að sögn Hjalta náðist þessi lækkun
vömverðsins með því að allir lögðust
á eitt: Skipadeildin gaf afslátt af fragt,
Samvinnutryggingar af iðgjöldum,
Innflutningsdeildin afslátt af heildsölu-
verði og Kaupfélögin af smásöluverði.
-HEI
■ Það var ekkert lítið stuð á Stuðmönnum í gærkvöldi þegar þeir héldu útitónleika í porti Austurbæjarskólans.
limamynd AKl
— segir Jón G. Sólnes, sem er ábyrgðarmaður ritsins
■ „Hvað Nonni greyið Sólnes gengur
lengi laus, er eftir að vita,“ sagði Jón
G. Sólnes, fyrrverandi alþingismaður,
í samtali við Tímann í gær, en hann
var fyrr um daginn í yfirheyrslu hjá
rannsóknarlögreglunni vegna útgáfu
símaskrár á Akureyri, sem Póstur og
sími hefur kært og telur ólöglega.
Ungir sjálfstæðismenn á Akureyri
tóku sig til fyrir nokkru og hófu efnis-
og auglýsingasöfnun í upplýsingarit
um Akureyri. í þessu riti er m.a.
símaskrá fyrir Akureyri, sem Póstur
og sími telur sig hafa einkarétt til
útgáfu á. Ritið var gefið út í 5000
eintökum og borið í hús í gær ókeypis.
Póstur og sími byggir kæm sína á því
að gmnur leiki á að símaskráin sé tékin
beint upp úr þeirri símaskrá sem
stofnunin gefur út.
Jón G. Sólnes tók að sér að vera
ábyrgðarmaður útgáfunnar. „Ein-
hvem veginn reiknaðist það þannig út
að ég hefði ekkert annað að gera en
að vera í tukthúsinu. Auðvitað er
öllum Ijóst að það er verið að brjóta
lög og reglugerð. En svo vantar í
helv... skrána þegar hún kom út, hver
útgefandinn sé. Það er Vörður, félag
ungra sjálfstæðismanna sem gefur
þetta út, en þetta er ekki gróðrabrall
hjá Jóni G. Sólnes," sagði Jón að
lokum.
SV/Sjó.
Fjör hjá
fertugum
— bls. 27
Dagur
íllfi
- bls. 10
Hjarta-
læknir-
inn síungi
— bls. 2
„ÖLLUM UÖST AÐ VER-
IÐ ER AS BRIÓTA LÖG”
GEFUR NEYTENDUM 5-6
MILUÓNIR f AFSUfn