Tíminn - 27.08.1982, Qupperneq 13

Tíminn - 27.08.1982, Qupperneq 13
■ Hér eru þeir í kröppum dansj Jóhannes BárðarsonVíkingi og Ami Amþórsson Fram. Tímamynd: ARI Er Víkingur ad missa flugid? ■ Á síðustu mínútum leiks Fram og Víkings í gærkvöldi virtist manni á leik liðanna, að þau sættu sig við jafntefli. Staðan var 1-1 og tíminn að fjara út. En hálfiri mínútu fyrir leikslok tók Valdima: Stefánsson aukaspymu frá hægri á miðjum vallarhelmingi Víkings og sendi háa sendingu inn á Halldór Arason sem skallaði knöttinn í bláhornið. Ögmundur hafði hendur á knettinum, en þó ekki til að koma í veg fyrir mark. Og þar með komust Framarar upp úr botnsæti 1. deildar og fögnuður þeirra var eðlilega mikill. Annars var leikurinn í gærkvöldi ekki sérlega skemmtilegur á að horfa, en þó komu augnablik sem héldu hita á áhorfendum. í fyrri hálfleiknum skiptust liðin á um að sækja. Lið Víkings var h.eldur aðgangsharðara er það nálgaðist mark- ið. Fyrsta færið átti Stefán Halldórsson er hann skallaði yfir þverslá Fram- marksins eftir sendingu frá Ómari Torfasyni. Þá átti Heimir skot á markið af löngu færi en það fór framhjá. Á 28. mínútu sendi Árni Arnþórsson sendingu á Halldór Arason, sem skallaði á markið en Ögmundur Kristinsson varði vel. 7 mínútum síðar átti Magnús Þorvaldsson fast skot á mark Fram af löngu færi, en hitti ekki á rammann. Á 38. mínútu kepptust Heimir og Guðmundur Frammarkvöður um knött- inn og hafði sá síðarnefndi betur og hinumegin áttust þeir Viðar Þorkelsson og Ögmundur við. Ekkert skorað í fyrri hálfleik og frekar fátt sem gladdi augað. En strax á 2. mínútu síðari hálfleiks áttu Víkingar nokkur tækifæri til að gera út um leikinn en án árangurs. Á 14. mínútu kom svo fyrsta mark leiksins. Ómar Torfason lék upp hægri kantinn og sendi góða sendingu út í teiginn á Gunnar Gunnarsson sem sendi fasta kollspyrnu í bláhorn - Fram- marksins og Guðmundur kom engum vörnum við. Ekki liðu nema 5 mínútur þar til Fram jafnaði. Þeir fengu að því er virtist frekar ódýra aukaspymu rétt fyrir utan vítateig Víkings og Guðmundur Torfa- son afgreiddi knöttinn snyrtilega í bláhornið hægra meginn. Algjörlega óverjandi fyrir Ögmund. Mjög glæsilegt mark. Eftir þetta fengu áhorfendur það á tilfinninguna, að bæði liðin sættu sig ágætlega við jafnteflið. Reyndar skor- uðu Víkingar mark, sem Eysteinn Guðmundsson dæmdi af. Hann taldi að Ómar Torfason á miðjunni og Sverrir Herbertsson skapaði sér færi í sókninni, en honum voru mislagðir fætur við að nýta þau til marka. í Framliðinu var Guðmunriur góður í markinu og Marteinn lék vel í vörninni. Valdimar Stefánsson gerði marga góða hluti á miðjunni og kringum hann myndaðist oft skemmtilegt spil. Fram- línan hjá Fram var ósköp dauf. Þó sýndi Guðmundur Torfason á stundum tilþrif. Leikinn dæmdi Eysteinn Guðmundsson og oft fannst mér dómar hans orka tvímælis, en það bitnaði þá nokkuð jafnt á liðunum. Tveir menn fengu að líta gul spjöld. Árni Arnþórsson leit það fyrir brot á Víkingi og Stefán Halldórsson fékk það fyrir að andmæla dómi. Sh ÍBV í toppbaráttuna d ■ Lið ÍBK tapaði í gær, en þeir hyggjast án efa sigra í úrslitaleiknum í bikarnum á sunnudag. ■ Vestmannaeyingar virðast ekkcrt á þeim buxunum að gefa eftir í baráttunni í 1. deildinni í knattspymu. Þeir léku í gærkvöldi gegn Keflvíkingum í Keflavík og sigruðu með einu marki 1-0. Það virðast einhvers konar álög á Keflavíkurliðinu að fá á sig mörk af ódýrari gerðinni og það var upp á teningnum í gær. Á 9. mínútu leiksins varð misskilningur milli Rúnars Georgs- sonar og Þorsteins markvarðar, sem leiddi til þess að Sigurlás komst að knettinum og skoraði og það mark reyndist vera sigurmarkið í þessum leik. Eftir það sóttu Keflvíkingar mun meira, en þeim gekk illa að skapa sér afgerandi færi. Þó má nefna að Einar Ásbjörn Ólafsson átti hörkuskot að marki Eyjamanna, en Páll Pálmason varði glæsilega. Og það var raunin með öll skot sem Keflvíkingar áttu á markið. Páll var alltaf réttur maður á réttum stað. Keflvíkingar sóttu eins og fyrr segir látlaust og í síðari hálfleik þurfti Þorsteinn Bjarnason markvörður þeirra ekki að verja eitt einasta skot. Slík var pressan, enda sóttu heimamenn þá undan allhvössum vindi. Bestu menn Keflvíkinga í gær voru Rúnar Georgsson þrátt fýrir óhappið í sambandi við markið, þá var Einar Ásbjörn mjög virkur og eins Sigurður Björgvinsson þrátt fyrir meiðsli. í Vestmannaeyjaliðinu stóðu þeir Páll Pálmason og Valþór Sigþórsson einna helst uppúr í tiltölulega jöfnu liði. Keflavíkurliðið hefur marga menn á sjúkralista og eru þó nokkrir þeirra manna „vafasamir“ í bikarúrslitaleikinn á sunnudaginn. En vonandi verða þeir sem allra flestir í leikhæfu ástandi. ME/sh Úrslit í 3. deild ■ Úrslitakeppni 3. deildar verður fram haldið nú um helgina. í Garðinum leikur Víðir gegn KS og á Sauðárkróki leikur Tindastóll gegn liði Selfyssinga. Báðir þessir leikir hefjast Idukkan 14.00. Staða Víðis er best i úrslitakeppninni, en líklegt er, að hörð keppni verði mUli KS og Tindastóls um hitt sætið í 2. deUd sem losnar. Bæði lið hafa nú 3 stig í úrslitakeppninni, þannig að reikna má með hörðum og spennandi leikjnm. Þess má geta að Siglfirðing- ar eru án sins aðalmarkaskorara Óla Agnarssonar, sem meiddist Ula í upphafi leiks gegn Selfyssingum um sí ðustu hclgi og verður M keppni um tíma. Valsdagur ■ Á morgun laugardag halda Vals- menn sinn árlega Vatsdag á svæði félagsins við Hlíðarenda. Margt og mikið verður um að vera og keppt í knattspymu, körfuknattleik og frjáls afnot af badmintonsal, þar sem aUir ættu að geta fengið að spreyta sig. Þá verður keppt í knattleikni mUU meistara, 2. og 3. flokks í knatt- spyrou. Valskonur munn hafa kaffisölu í félagsheimUinu og eru aUir Vals- menn og aðrir áhugamenn boðnir velkomnir. Dagskráin hefst klukkan 13.30 og henni lýkur um klukkan 17.00. Úrslit h)á konum ■ Á morgun laugardag fer fram á Akureyri urslitaleikurinn í 2. deUd kvenna í knattspyrou. Leikurinn verður milli liðs ÍCA og Víðis úr Garði og hefst klukkan' 14.00. Af Brian Little ■ Brian Little fyrrverandi leikmað- ur með Aston Villa í ensku knattspyrnunni varð að hætta knatt- spymuiðkunum á síðasta kcppnis- tímabili vegna meíðsla. Hann hefur því ekkert getað komið nálægt knattspymunni í tæpt ár, þar til hann var fyrir skömmu ráðinn þjálfari unglingaliðs Aston ViUa. „Hann sagðist hafa saknað knatt- spyrnunnar síðasta árið. Hann hafi að visu haldið sambandi við félag sitt, en það væri ekki eins ánægulegt og að vera virkur þátttakandi í starfinu.“ Þeir urdu að selja hann ■ Stuðningsmenn Manchester City era óhressir yfir því, að félagið skyldi selja Trevor Francis til Ítalíu. Þeir álíta að hann hafi verið liðinu mjög mikilvægur og átt mikinn þátt í aukinni velgengni þess. John Bond framkvæmdastjóri var heldur ekki hrifinn af þeirri ráðstöfun að selja hann til Sampadoria, en staðreyndin í málinu var sú, að hefði félagið ekki selt Francis, hefði það átt yfir höfði sér gjaldþrot. Og það tók þann kostinn af tveimur slæmum. Meira um Motherwell ■ Sérfræðingar enska knattspymu- tímaritsins SHOOT spá í upphafi keppnlstímabilsins í hvert verði gengi skosku liðanna í vetur. Þar er meðal annars minnst á MotherweU, lið það scm Jóhannes Eðvaldsson samdi nýlega við. Sagt er, að líkast tU verði þetta erfitt keppnistímabU fyrir MotherweU, einkum þó ril að byrja með. En þeír segja að Jock WaUace frnmkvæmdastjóri þeirra sé maður metnaðargjaro, og stefni áreiðanlega að skammlausri stöðu liðsins í lok keppnistimabUsins. Það kann að vera að liður í þvi séu kaup félagsins á Jóhannesi...

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.