Tíminn - 27.08.1982, Side 5

Tíminn - 27.08.1982, Side 5
FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 1982 5 fréttir Sum fyrirtæki greiða allt að 20% „mætingabónus” til starfsfólks „HEILSUFARID SNAR- LAGAST HJA FÓLKINU” — segir Helgi Vilhjálmsson, iðnrekandi ÍHafnarfirði ■ „Þessi svokallaði „mætingabónus" hefur verið hér hjá okkur í mörg ár og ég held að hann tíðkist hjá ýmsum fyrirtækjum. A.m.k. lærði ég þetta af öðrum, enda eru allir að reyna að finna einhver ráð til að bjarga sér varðandi lélegar mætingar í vinnu. Það vita allir að þessi algengu eins dags veikindi - oft á mánudögum - eru tóm uppgerð," sagði Helgi Vilhjálmsson, iðnrekandi í Hafnarfirði. En Tíminn hafði frétt af þessum „mætingabónus" greiðslum hjá honum og fleiri fyrirtækjum, sem borga fólki allt upp í 20% kaupauka fyrir að mæta á réttum tíma í vinnu. Ekki er þrátt fyrir allt ætlast til að fólk sé alfullkomið, þar sem því líðst að tilkynna um einn veikindadag og auk þess að mæta einu sinni of seint í hverjum mánuði án þess að ,'mssa rétt sinn til greiðslu á „mætingabónusnum“. „Já, heilsufarið hefur snarlagast hjá fólkinu. Þetta hefur komið þannig út að það mætir alla daga nema að um raunveruleg veikindi sé að ræða. Enda er það töluverð uppbót að fá yfir 1.400 krónum meira í laun'a hverjum mánuði (um 20% eftir árs starf eða meir) bara með því að mæta til þeirrar vinnu sem fólk er ráðið til, ekki síst í ljósi þess að fólk er kannski að fara í verkföll til að ná sér í 3% kauphækkun. Já, það er engin spurning að þetta borgar sig fyrir báða aðila. Einstaka nýbyrjaðir hafa ætlað að halda sömu vitleysunni áfram, en eru venjulega fljótir að sjá að sér þegar mismunurinn í launaumslögunum kemur í ljós um mánaðamót." Og Helgi hefur tekið upp fleiri nýmæli í sínu fyrirtæki. „Hér vinnum við bara 4 daga vinnuviku, þ.e. frá 8.00 á morgnana til 18.30 á kvöidin, en föstudagurinn er alger frídagur sem fólk hefur til að útrétta. Áður þurfti fólk sífelit að vera að fá frí úr vinnu, því allar stofnanir sem fólk þarf að leita til eru lokaðar eftir kl. 16.00 til 17.00 á daginn. Nú eru slík frí alveg úr sögunni. Auðvitað fékk ég á mig í byrjun að ég væri að svindla á fólkinu, en það kann þessu vel og vill ekki skipta aftur. Og þessu verður aldrei breytt aftur meðan ég á þetta fyrirtæki," sagði Helgi. - HEI Stjórn Blada- mannafélags íslands: Þakkar Friðjóni „Meinilla við að kalla þetta „mætingabónus” — „Viðurkenning á þvf að fólk geti ekki mætt á réttum tfma til vinnu nema gegn sérstakri umbun”, segir formaður Iðju ■ „Mér er meinilla við að kalla þetta „mætingabónus", því það er hreinlega viðurkenning á því að fólk getur ekki mætt á réttum tíma í sína vinnu nema gegn einhverri sérstakri umbun. Við gerum samninga fyrir fólk þar sem það er ma. skuldbundið til að mæta í vinnu á réttum tíma. Geri fólk það ekki er fólk að brjóta samningana, en atvinnurek- andi á ekki að þurfa að borga því sérstaklega fyrir að halda þá,“ sagði Bjami Jakobsson, formaður Iðju félags verksmiðjufólks, er Tíminn spurði hvort verkalýðsfélögin fari kannski að taka „mætingabónus" inn í samninga. Bjami kvaðst vita að menn væm í vandræðum með hvað starfsfólk mætir illa og einnig sagði hann vitað að mikið væri um tilkynnta veikindadaga. „Þetta á við almennt í þjóðfélaginu." Ekki kvað hann sér kunnugt um nema tvö fyrirtæki sem greiði þennan svokallaða mætingabónus, en af hvomgu þeirra fyrirtækja hafði Tíminn haft spumir af. Enda þurfa atvinnurekendur að sjálf- sögðu ekki að semja um það við verkalýðsfélag hvort þeir borga starfs- fólki sínu launauppbætur. „Hins vegarhef ég heldur aldrei getað fengið það út hvernig þetta orð „mætingabónus" er til komið. „Bónus“ ! þýðir einfaldlega „tímamæld ákvæðis- vinna“. Þama hlýtur því að vera um að ræða tímamælingu á því hve fólk erfljótt að mæta á réttum tíma í sína vinnu. Mér finnst þetta því tóm endemis vitleysa," sagði Bjami. - HEI ■ Móðir Basilia, ein af stofnendum Maríusystrareglunnar. Maríusystur á íslandi ■ Tvær Maríusystur frá Noregi, sem tilheyra kirkjudeild mótmælenda, munu dvelja hér á landi dagana 1.-13. september n.k. Systrasamfélag þetta, Maríusystur, á rætur sínar að rekja til vakningar í Biblíuhópum á meðal unglinga á tímum loftárásanna á Darmstadt í Vestur- Þýskalandi árið 1944, þegar fjöldi fólks lét lífið. Maríusystur reka m.a. eigin prent- smiðju og bókaútgáfu, og einnig hafa þær verið með eigin útvarpsdagskrár, þar sem kristilegar bækur em sjaldséðar. Víðtæk ferðalög einkenna starfsemi systranna. Þær heimsækja söfnuði og kirkjur, sem óska eftir samkomum, helgarsamvemm, kyrrðardögum með Biblíutímum, þar sem sýndar em skuggamyndir, og kvikmyndir sem boða fagnaðarerindið. Maríusystumar Phanuela og Juliana munu heimsækja mörg kristileg félög og söfnuði hér á landi. Einnig verða helgarsamvemr á Löngumýri 3.-5. september, og í Skálholti 10.-12. september, þar sem þær munu uppörva trúaða. _ SVJ B í gær opnaði danski sendiherrann á ísiandi, J.A.W. Paludan, stóra postu- línssýningu á Kjarvalsstöðum. Það er danska fyrirtækið Bing & Gröndahl sem sýnir sjaldgæfa postuh'nsmuni, m.a. með sérstökum tengslum við ísland, sérunnin listaverk eftir nútíma listamenn, verð- mætt safn platta og merka muni, sem nú eru í framleiðslu, m.a. eftir íslenska hstamanninn Rúnu. Forseti íslands var viðstaddur opnun- ina, og skoðaði sýninguna í fylgd danska sendiherrans. Að þvi loknu var Vigdísi Finnbogadóttur færð að gjöf vegleg stytta af móður með tvö böm sín á brjósti. Myndimar sem hér fylgja með vora teknar við athöfnina. Tímamyndir: G.E. samvinnu — „Oft skort á við svipaðar adstædur, að blaða- og fréttamönnum væri gert kleift að gegna skyldum sínum” B Stjóm Blaðamannafélags íslands óskar að koma á framfæri þökkum og stuðningi við Friðjón Guðröðarson, sýslumann og lögreglustjóra á Höfn í Hornafirði, vegna góðrar samvinnu hans við starfsmenn fjölmiðla er fylgdust með hörmungaratburðunum í Öræfum fyrr í þessum mánuði. Stjórnin er þess | fullviss, að hún talar fyrir munn meginþorra íslenskra atvinnublaða- i manna er hún lýsir yfir stuðningi við starfsaðferðir sýslumanns gagnvart fjöl- ! miðlum og við miðlun upplýsinga til landsmanna af þeim atburðum er þama áttu sér stað, - atburðum er öll þjóðin fylgdist með af óhug. Það var skylda fjölmiðla þessa daga, sem endranær, að gefa sem gleggstar upplýsingar af framgangi málsins. Oft hefur mjög skort á við svipaðar aðstæður, að blaða- og fréttamönnum væri gert kleift að gegna þeim skyldum sínum. Friðjón Guðröð- arson sýslumaður á þakkir skildar fyrir að veita dygga aðstoð við það. Samþykkt á stjómarfúndi 26. ágúst 1982 Aðalfundur Menningar- samtaka Norðlendinga B Nýstofnuð Menningarsamtök Norð- lendinga halda sinn fyrsta aðalfund dagana 4.-5. september n.k. í Gagn- fræðaskólanum á Húsavík. í tengslum við aðalfundinn verður efnt til samsýn- ingar norðlenskra myndlistarmanna og ráðstefnu um listir og skipulag lista- starfsemi á Norðurlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem haldin er sérstök samsýning myndlistarmanna á Norðurlandi. Á sýningunni, sem verður haldin í Safnahúsi Þingeyinga, verða sýnd verk eftir yfir 20 listamenn, 2-4 verk frá hverjum. Þama gefst því í fyrsta skipti kostur að sjá úrval þeirrar norðlensku myndlistar sem unnin er um þessar mundir. í tengslum við fundinn verður einnig haldin ráðstefna um listir og skipulag listastarfsemi á Norðurlandi. Hún verð- ur í tvennu lagi. Fyrri hluti hennar er helgaður sam- skiptum fjölmiðla og listamanna, og hinn síðari skipulagi listastarfseminnar á Norðurlandi, sem er eitt af meginhlut- j verkum Menningarsamtaka Norðlend- I inga.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.