Tíminn - 03.09.1982, Side 1
i
„Helgarpakkirm” fyfgir Tímanum í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAO
Föstudagur 3. september 1982
199. tbl. - 66. árgangur
LÍÚ ákveður að stöðva fiskiskipaflotann 10. september:
UTGERDARMENN TEUA FISK-
VERD HIRFA HÆKKA UM 40%
■ Fiskveiðifloti íslendinga stöðvast á miðnætti 10. september nk. hafi samningar milli Landsambands íslenskra útvegsmanna og stjórnvalda
um aðgerðir til að bæta rekstrarskilyrði útgerðarinnar ekki tekist fyrir þann tíma. 25 manna trúnaðarráð LÍÚ stendur að baki þessarar
ákvörðunár, en ákvörðunin er tekin í kjölfar óánægju útgerðarmanna með ný ákveðið fiskverð og aðgerðarleysi. stjórnvalda, eins og þeir
orða það, varðandi rekstrarskilyrði útgerðarinnar. Er þetta í fyrsta skipti sem trúnaðarmannaráðið beitir sérstakri stöðvunarheimild í
samþykktum samtakanna á þennan hátt.
Kristján Ragnarsson, framkvæmdar-
stjóri LÍÚ sagði í viðtali við Tímann að
loknum fundi trúnaðarráðsins, að algjör
samstaða hefði verið innan ráðsins um
þessa ákvörðun.
- Hér er um algjöra neyðarráðstöfun
að ræða og við áttum ekki annars
úrkosta. Menn geta ekki rekið útgerðina
lengur við þessi rekstrarskilyrði, sagði
Kristján Ragnarsson, og benti á að
fiskverð eitt hefði þurft að hækka um
a.m.k. 40% til að tryggja viðunandi
rekstur.
Steingrímur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra sagði í samtali við
Tímann að hann gæti lítið sagt um þessa
ályktun trúnaðarráðsins annað en það
að hann og forsætisráðherra myndu hitta
viðræðunefnd LÍÚ að máli um hádegis-
bilið í dag og þar yrði þeim væntanlega
kynntar tillögur sambandsins til úrbóta.
- Mér er alveg ljóst að staða
útgerðarinnar er ákaflega slæm, sagði
Steingrímur Hermannsson, en benti
jafnframt á að því væri það þeim mun
óskiljanlegra að Kristján Kagnarsson,
formaður LÍÚ hefði hafnað 'þeirri 20%
hækkun fiskverðs sem fulltrúum
seljenda var boðin við síðustu fiskverðs-
ákvörðun.
- ESE
.
'
sÆimt
■ ■>:
.
f ,'•• ’í;
íi ii il li
il ll li ll
il li il li
í spegli
Tímans:
Svartur
sauður
- bls. 2
Stéttar-
sambands-
þingid
- bls. 8—9
Fótaað-
gerðir
- bls. 14
in
II!
: m
iiiiii :i
H II íl tl
IIIIII!
II II II I!
ii IIIIII
II II I! II
! II
III
H
»n n ii
n n it ii
i? n
II tð II 13
ii ii it jr
11 H 111!
Iðnaðarráðherra
undirbýr ad-
gerðir:
Einhiiða
hækkun
á raforku
tii ísal?
■ „Ef ekld verður orðið við sanngimis-
kröfum okkar islendinga hvað varðar
breytingar á samningi okkar við Alusuisse
þá hljótum við að grípa til okkar eigin ráða
sem fólgin era í fullveldisrétti okkar. Við
hljótum þá að íhuga einhliða breytingar,
bæði á raforkuverði og fyrírkomulagi
skattgreiðslna, eins og gert var i landhelgis-
málinu á sínum tíma.“
Þetta sagði Hjörleifur Guttormsson,
iðnaðarráðherra, á fundi með blaðamönn-
um í gær þegar hann kynnti niðurstöður
tveggja starfshópa sem kannað hafa tvo
þætti viðskipta íslenskra stjórnvalda og
Alusuisse vegna álverksmiðjunnar í
Straumsvík. Þessir tveir þættir eru raforku-
verð og hins vegar skattgreiðslur íslenska
álfélagsins með tilliti til þess, hvernig
æskilegt sé að haga þeim málum f
framtíðinni.
Meginniðurstaða starfshópsins sem
kannaði röksemdir fyrir hækkun raforku-
verðs til ÍSAL er sú að gjörbreyttar
, forsendur frá því raforkusamn-
ingurinn var gerður árið 1966 og endur-
skoðaður árið 1975 réttlæti kröfur um að
■ raforkuverðið hækki úr 6.45 millj í 15-20
millj og verði það framvegis að fullu
verðtryggt.
Niðurstaða starfshópsins sem athugaði
skattlagningu ISAL er sú að henni sé
verulega áfátt, og telur hann heppilegra í
framtíðinni að ÍSAL greiði árlega fastan
verðtryggðan skatt að viðbættu fram-
leiðslugjaldi eða veltuskatti, sem sé óháð
bókfærðum hagnaði fyritækisins. - Kás
■ I gær cfndi Landhelgisgæslan «g Slvsavarnarlclag íslands
til björgunarsýningar við Tjörnina í Rcvkjavík í tilefni af
fjársöfnun þcirri sem hcfst í dag a vegtim Hjálparstnfnunai
kirkjunnar til styrktar hjtirgunar - og hjálparsv citum við kuup
á fjarskiptahúnaði. TF-RAN þvrla Gæslunnar varpaði m.a.
niður gúmmihát, sem hlásinn var upp, «g sýnt var hvcrnig
mönnum cr slakað niður öðrum til hjálpar og síðan hífðir um
borð í þyrluna al'tur. Tímamynd: Röhcrt