Tíminn - 03.09.1982, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1982
Mótettukór
stofnadur vid
Hallgrímskirkju
Reykjavík: í byrjun september
verður stofnaður nýr kór við Hail-
grímskirkju í Reykjavík, „Mótettu-
kór Hallgrímskirkju". Stærð hans er
miðuð við 30-40 manns á aldrinum
16-40 ára, sem hafa það hlutverk að
flytja kirkjulegar mótettur (Schiitz,
Byrd, Bach, nútímatónskáld t.d.) og
kantötur í guðsþjónustum, auk
reglubundins tónleikahalds á ýmsum
tímum kirkjuársins. Miðað verður
við eina fasta æfingu á viku
(æfingartími verður ákveðinn í
samráði við kórfélaga), auk radd-
æfinga og aukaæfinga eftir verkefn-
um. Smáverkefni bíður kórsins strax
5. september, er fluttar verða 2 Bach-
kantötur fyrir Bariton og hljómsveit,
en kórinn syngur lokakóralinn í
annarri kantötunni. Tónleikarnir 5.
september eru til fjáröflunar fyrir
orgeljóð kirkjunnar, með þátttöku
þýsks einsöngvara, Andreas Sch-
midt, og íslenskra hljóðfæraleikara.
Söngstjóri hins nýja mótettukórs
er nýskipaður orgelleikari Hall-
grímskirkju, Hörður Áskelsson.
Þeir sem kynnu að hafa áhuga fyrir
starfi í kórnum eru beðnir að hafa
samband við söngstjórann í síma
32219. Raddprófun fer fram í
Hallgrímskirkju n.k. föstudag kl.
16-19 og laugardag kl 11-13.30 eða
eftir samkomulagi. Kunnátta í
nótnalestri er æskileg, án þess þó að
vera skilyrði. ,
Hin tignarlega HaUgrímskirkja á Skólavörðuholti og nánasta umhverfi.
í bakgrunni sjáum við m.a. útivistarsvæðið Miklatún. Mynd Ari.
Rúmlega
10.000
með
Arnarflugi
■ í áætlunarflugi Arnarflugs innan-
lands flugu alls rösklega 10 þús.
farþegar fyrstu 6 mánuði ársins, sem
er um 600 færri farþegar en á sama
tíma í fyrra. En Arnarflug hefur
áætlun til 12 staða í innanlandsflugi.
Meðal sætanýting var 61,9% sem er
um 1% betri nýting en í fyrra á sama
tíma.
Fyrsta opna
Igolfmótið á
jnýjum velli
á Saudár-
Ikróki
Sauðárkrókur: Volvo-open, golfmót
verður haldið á Hlíðarendavelli við
Sauðarárkrók næstkomandi laugardag,
4. september, og hefst klukkan 10 fyrir
hádegi. Spilaðar verða 18 holur með og
án forgjafar.
Petta er fyrsta opna golfmótið sem
haldið er á nýjum golfvelli á Sauðár-
króki, sem tekinn var í notkun s.l. vor.
Völlurinn er níu holu völlur í fjöl-
breyttu og fögru landslagi.
Volvo-umboðið á íslandi gefur öll
verðlaun á þessu fyrsta opna golfmóti á
Hlíðarendavelli.
Nýr leik-
skóli
tekinn í
notkun í
Hvera-
Hveragerði: Nýr Leikskóli verður
opnaður í 1 'eragerði á morgun,
laugardag. 4. sept. við sérstaka
athöfn, enda er slíkt eðlilega
töluverður viðburður í ekki stærra
sveitarfélagi. Athöfnin hefst með
helgistund kl. 14.00. Þá flytja ávörp
oddvitinn í Hveragerði og forstöðu-
kona hins nýja leikskóla ásamt
fleirum. Allir Hvergerðingar eru
velkomnir að líta á hinn nýja skóla.
Leikskólinn er byggður og rekinn
af Hveragerðishreppi, og leysir af j
annan minni leikskóla sem rekinn
hefur verið við mikil þrengsli. Hinn
nýi leikskóli á að rúma 40 börn.
Yfirlitssýning á verkum Bertels Thorvaldsens:
OPNAR A KIARVALS-
STÖWIM SfDDEGIS
■ í dag verður opnuð yfirlitssýning á
verkum myndhöggvarans Bertels Thor-
valdsens að Kjarvalsstöðum. Sýningin
kemur frá Thorvaldsenssafni í Kaup-
mannahöfn. Þetta er í fyrsta sinn í 134
ára sögu Thorvaldsenssafns sem staðið
er fyrir sýningu á verkum hans á erlendri
grundu, og jafnframt í fyrsta sinn sem
haldin er sýning á verkum hans hér á
landi.
Bertel Thorvaldsen var einn frægastur
listamaður Evrópu um sína daga. Hann
var sem kunnugt er íslenskur í
föðurættina, sonur Gottskálks Þorvalds-
sonar tréskurðarmanns, en móðir hans
var dönsk, og hann var fæddur og
uppalinn í Danmörku. Thorvaldsen
fæddist 1770 og nam dráttlist og
höggmyndalist fyrst í Damörku og síðar
í Rómaborg, þar sem hann settist að og
bjó lengst af ævinnar. Hann varð fyrir
miklum áhrifum af fomrómverskri list
og var einn helsti fmmkvöðull nýklas-
sisku listastefnunnar. Thorvaldsen flutt-
ist aftur heim til Kaupmannahafnar
1838, eftir 40 ára dvöl í Róm, og þar lést
hann 1844, fjórum árum áður en safn
hans þar var opnað. Á safninu em um
860 verk eftir Thorvaldsen, en mikill
fjöldi verka hans, bæði höggmyndir og
teikningar, er dreifður víða um lönd. Af
verkum hans hér á landi er t.d.
skírnarfonturinn í Dómkirkjunni, sem
Thorvaldsen „gaf ættjörð sinni“ eins og
segir í áletmn á fontinum frá 1827, enda
fór hann aldrei í grafgötur um uppmna
sinn. Til íslands kom hann þó aldrei. Þá
er og að geta sjálfsmyndar Thorvald-
sens, sem Kaupmannahafnarborg gaf til
íslands 1874 til minningar um þúsund
ára byggð landsins. Styttan var upphaf-
lega afhjúpuð með viðhöfn á Austurvelli
á afmælisdegi Thorvaldsens 19. nóvem-
ber 1875, en 1931 var hún flutt yfir í
Hljómskálagarðinn. í tilefni sýningar-
innar á Kjarvalsstöðum hefur styttan
verið flutt þangað og prýðir nú
hellulagðan garð Kjarvalsstaða. Tvö
önnur verk eru á sýningunni eftir
Thorvaldsen, annað úr eigu Þjóðminja-
safnsins, og er það brjóstmynd af Jóni
Eiríkssyni konferenzráði, en hitt er
marmaramynd af Ganymedesi, sem
Listasafn íslands á. Öll önnur verk, 75
talsins koma frá Kaupmannahöfn, og er
sýningarsvæðinu á Kjarvalsstöðum skipt
í herbergi er líkjast sölum Thorvaldsens-
safns í smækkaðri mynd.
Margir hafa lagt hönd á plóginn
þannig að sýning þessi gæti orðið að
veruleika og þeim viðburði sem efni
standa til. Hugmyndina átti sendiherra
Dana á íslandi Janus Paludan, sem er
mikill aðdáandi Thorvaldsens, en af
hálfu Thorvaldsenssafns hefur frú Dy-
veke Helsted forstöðumaður safnsins og
Sören Sass arkitekt, ásamt safnvörðun-
um Evu Henchen, Bjarne Jörnes og
Sören Rasmussen unnið við skipulagn-
ingu og uppsetningu sýningarinnar. Af
íslcndinga hálfu hafa unnið Júlíana
Gottskálksdóttir listfræðingur og Stefán
Halldórsson ásamt Þóru Kristjánsdóttur
listráðunaut Kjarvalsstaða svo og fjöldi
íslenskra iðnaðarmanna frá Sambandi
ísl. samvinnufélaga. Sérstakir verndarar
'f I . • " •'■
WmSí?
sýningarinnar eru hennar hátign Ingiríð-
ur drottning og dr. Kristján Eldjárn
fyrrverandi forseti íslands, sem skrifar í
veglegt rit, sem Thorvaldsenssafn hefur
gefið út í tilefni sýningarinnar.
Sýningin á Kjarvalsstöðum verður
opnuð í dag kl. 17:00 með viðhöfn. Við
það tækifæri flytja ávörp Einar Há-
konarson stjórnarformaður Kjarvals-
staða og Bent Nebelong stjómarfor-
maður Thorvaldsenssafns og borgar-
stjóri í Kaupmannahöfn, en síðan mun
forseti Islands Vigdís Finnbogadóttir
opna sýninguna.
Sýningin verður á Kjarvaldsstöðum í
tvo mánuði, eða til októberloka. Hún
verður opin daglega frá kl. 14-22, og er
ókeypis aðgangur.
■ Síðasta hönd lögð á uppsetningu symngannnar.
Tímamynd G,E