Tíminn - 12.10.1982, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1982
9
er ekki í öllum atriðum mikið um
klæðnað í atvinnuleikhúsunum í Reykja-
vík núna. Svo virðist sem leikhúsin séu
að ganga í gegnum sérstakt tímabil.
Ekki virðast þó allir á sömu línu, því
Sjónvarpið er að auglýsa eftir sauma-
konum um þessar mundir, í búninga-
saum.
Örðugt er að dæma inntak, eða gildi
nektarinnar í leikhúsi nema þá fyrir
aðgöngumiðasöluna. Og þótt við séum
hlynnt góðri sætanýtingu í flugi og
leikhúsum, þá eru það þó leikritin, sem
skipta öllu máli í leihúsinu.
Við förum í leikhúsið til að sjá þau -
flest a.m.k.
Danir uppgötvuðu það fyrir tuttugu
árum að hægt var að hátta fólk. f>ar fæst
nektin nú í sérbúðum. Ef til vill ættu
svona búðir að vera í Austurstræti, svo
að leikhúsin þyrftu ekki að sinna þessum
anga menningarinnar, sérstaklega, og
þau gætu þá hætt að leika með
kynfærunum.
Annars getur nekt á leiksviði verið í
senn virðuleg og listræn, og þarf því ekki
að útiloka hana af leiksviðinu. Miðasöl-
ur leikhúsanna eiga hinsvegar ekki að
annast um búningana. Það er mergurinn
málsins.
Og það skal tekið fram, að Skilnaður
er ekki gróft leikrit, eða klæmið. Á
þessu er aðeins haft orð, vegna
umræðunnar, sem skapast hefur um
þennan þátt leiklistarinnar á síðustu
vikum.
Jónas Guðmundsson
■ Kjartan Ragnarsson, leikari og leikritaskáld.
leikinn og útkoman verður fáguð sýning,
þar sem leikhúsgesturinn fær þó ekki
aðeins spurningar, heldur fyrst og fremst
svör.
. Það er gömul þumalputtaregla í leik-
húsi, að önnur sýning sé oft slæm. Þessi
var það ekki, heldur þvert á móti.
Nekt á leiksviði
Eins og vikið var að hér í upphafi, þá
Jónas
Guðmundsson
skrifar
■ Sinfóníuhljómsveit íslands.
full af drama, tilfinningum og fögrum
stefjum. Og Sinfóníuhljómsveitin fer
síbatnandi að því mér heyrist, sem stafar
af því að strengirnir eru að verða mjög
góðir. Nú er það greinilega bil, sem eitt
sinn var milli strengjanna og a.m.k.
sumra blásara, að lokast, eða lokað.
Þarna var margt fallegt að heyra til
einstakra manna — ég nefni aðeins Jón
Sigurbjörnsson flautuleikara, sem
blómstrar nú í seinni tíð, og nýliðann
Kjartan Óskarsson klarinettuleikara,
sem endaði Næturljóð Jónasar með
mjög erfiðri sóló.
10.10 Sigurður Steinþórsson
■ FUF-arar búast við miklu starfl á nýbyrjuðu starfsári.
Tímamynd Ella
„MIKILL BAR-
ÁTTUHUGUR
í FORYSTU
FÉLAGSINS”
— segir Jón Börkur Akason,
nýkjörinn formaður
FUF í Reykjavík
■ Aðalfundur Félags ungra Fram-
sóknarmanna í Reykjavík var hald-
inn að Rauðarárstíg 18 þann 29.
september sl. Formaður var kjörinn
Jón Börkur Akason verkstjóri. Með
honum í stjórnina voru kjörin þau:
Sigfús Bjarnason
varaformaður
Viggó Jörgensson
gjaldkeri,
Garðar Helgason ritari,
Sigurður Rúnar ívarsson
félagsskrárritari
Einar Harðarson
Rafn Einarsson
Sjöfn Finnbjörnsdóttir
Þorlákur Einarsson
Elín B. Jóhannesdóttir
vík. Þá benti formaður einnig á
mikilvægi þess að styrkja fram-
kvæmdastjórn Sambands ungra
Framsóknarmanna í baráttunni fyrir
betri kjörum ungs fólks, en þar bæri
að sjálfsögðu hæst húsnæðis- og
atvinnumál. Hann sagði að tekið yrði
mið af þeim ályktunum, sem sam-
þykktar voru á 19. þingi Sambands
ungra Framsóknarmanna að Húna-
völlum fyrr í haust, en Rcykjavík átti
um tuttugu fulltrúa á því fjölsótta og
velheppnaða þingi.
Á þessu þingi fengu Reykvíkingar
kosna þrjá fulltrúa í framkvæmda-
stjórnina.
Formaður sagði að lokum, að
baráttan sem framundan væri legðist
vel í sig, stjórn félagsins væri skipuð
harðduglegu og áhugasömu ungu
fólki, hann væri bjartsýnn og
hlakkaði til að fá að glíma við þau
fjölbreyttu verkefni, sem' þcssu
mikilvæga embætti fylgdi jafnan.
Til vara:
Egill Ólafsson vararitari
Kristján Andri Stefáns-
son varafélagsskrárritari
Guðrún Harðardóttir
Halldór Árnason
Þá voru einnig kjörnir fulltrúar og
varafulltrúar í Fulltrúaráð Fram-
sóknarfélaganna í Reykjavík og
endurskoðendur fyrir félagið. Hinn
nýkjörni formaður sagði í viðtali við
blaðamann Tímans, að mikill
baráttuhugur væri nú í forystu
félagsins. Hann sagði að hin ný-
kjörna stjórn myndi fyrst í stað
einbeita sér að því að treysta og efla
innra starf í félaginu og greinilega
væri kominn mikill hugur í menn
enda flokksþing fyrir dyrum og
Alþingiskosningar í nánd. Þó yrði að
sjálfsögðu hugað að baráttunni út á
við um leið meðal annars mcð því að
hafa reglulega viðtalstíma við tvo
eða fleiri stjórnarmeðlimi a.m.k.
einu sinni í viku og einnig með því
að endurvekja hina hefðbundnu
hádegisverðaríundi að Rauðarárstíg
18, en þeir fundir verða í hádeginu
á miðvikudögum. Hin nýkjörna
stjórn hefur þegar haldið tvo fundi,
og sagði' formaður, að á þeim
fundum hefði greinilega komið fram
mikill áhugi á öflugara samstarfi við
Framsóknarfélag Reykjavíkur og
Félag Framsóknarkvenna í Reykja-
■ Jón Börkur Ákason.