Tíminn - 26.11.1982, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 26. NÓVEMBER 1982
SINDY
Póstsendum.
ÆT W
LEIKFANGAVERZLUNIN JOJO
AUSTURSTRÆTI 8 - SÍM113707
WFj Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Asparfelli 12, sími 74544
Óskum eftir fósturheimilum fyrir börn 8-12 ára.
Helst á Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Um er að ræða fóstur til lengri tíma.
Nánari upplýsingar á Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar, Aspar-
felli 12 sími 74544.
BilaleiganÁS
CAR RENTAL
29090
ma^roa 323
DAIHATSU
REYKJANESBRAUT 12 REYKJAVIK
Kvöldsimi: 82063
fréttir
Mötmæll Ibúa T núgrennl ÞjórsðrgAtu 9 sem brann sl. sunnudagskvöld:
„Allt tekið til greina sem
var á rökum reist”
— Mglr T athugasemd frð EldvamareftiiiitJ Reykjavlkurborgar
nærri öðrum húsum, hvort í því séu
geymd hættuleg efni, hvað slökkvilið er
lengi á staðinn og hvernig séu möguleik-
ar á vatnsöflun til slökkvistarfs. Húsið
Þjórsárgata 9 var járnklætt timburhús.
Slík hús skulu standa a.m.k. 4 metra frá
lóðamörkum, en steinhús mega vera 3
metra frá mörkum. Því á bil milli
Þjórsárgötu 9 og aðliggjandi húsa að
vera þetta:
Að Þjórsárgötu 7, sem er steinhús, 7
metrar, að Fossagötu 8, sem er steinhús,
7 metrar, að Fossagötu 10, sem er
járnvarið timburhús, 8 metrar, og að
Þjórsárgötu 11, sem er járnvarið timbur-
hús, 8 metrar.
■ S.l. þriðjudag birtir dagblaðið Tím-
inn þrjár fréttagreinar um bruna, sem
varð aðfaranótt s.l. mánudags að Þjórs-
árgötu 9.
Fyrirsagnir og uppsetning þessara
frétta er með þeim hætti, að ekki verður
hjá komist að leiðrétta þær og þá einkum
vegna þess að blaðamaðurinn, sem
vinnur þessar fréttir sýnir ekki þann
sjálfsagða heiðarleika í starfi sínu, að
leita skýringa hjá þeim, sem hann
gagnrýnir. Með því að lesa í samhengi
bréf Páls Braga Kristjónssonar til borg-
arstjóra og álit eldvarnaeftirlits og
byggingarfulltrúa, sem birtast hér
orðrétt, má sjá, að hlustað var á
kvartanir Páls Braga og allt tekið til
greina, sem var á rökum reist.
Bréf Páls Braga Kristjónssonar
Bréf eldvarnaeftiriits og byggingarfull-
trúa.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
hr. Davíð Oddsson,
Borgarskrifstofumar,
Pósthússtræti,
101 Reykjavík
V/verksmiðjuhúss við Þjórsárgötu
■ Við Þjórsárgötu stendur stórt, en
ekki að sama skapi myndarlegt hús, eða
öllu heldur merkilegur samsetningur
kumbaldaafýmsumgerðum. Óskapnað-
ur þessi stendur í raun ekki einungis við
götuna heldur skagar langt útí hana.
Þar til síðastliðið haust var í óskapnað-
inum rekin Sápugerðin Mjöll.
Höfðu íbúar götunnar, og a.m.k.
næstliggjandi götu einnig, Fossgötu, af
þessari starfsemi mikinn ama og ómæld
leiðindi, sérstaklega vegna mikils subb-
ugangs utanhúss. Var þar hættuástand
einnig fyrir börn.
Þegjandi samkomulag íbúa var þó að
láta kyrrt liggja þar sem verksmiðjan var
rekin af að öðru leyti góðum nágranna,
Einari Sæmundssyni, sem býr við Reykj-
avíkurveg.
Þegar vitað var, að Sápugerðin Mjöll
var að flytja starfsemi sína í nýtt húsnæði
á Ártúnshöfða, samglöddumst við ná-
grannar Einari, vini okkar, og fjölskyldu
hans, að loksins skyldi framleiðsla
hreinlætisvarningsins numin á brott úr
sóðaskapnum.
Ekki gladdi það síður hjörtu okkar,
að nú mundi umhverfi okkar taka
stakkaskiptum í það horf, sem við
ötullega vinnum að, hver við sitt hús.
En raunin varð nú önnur. Núna eru í
„húseigninni“ a.m.k. tvö frístundabif-
reiðaverkstæði, umgangur og hvaði úr
hófi, sérstaklega á kvöldin og helgum
dögum. Sóðaskapur er með endemum
og ástand kofasamsetningarinnar veru-
lega slæmt, hættulegt í stórviðrum og
ófagurt að öllu leyti.
Ohug hefur slegið hér að fólki, m.a.
vegna meintrar eldhættu.
Leitað hefur verið til ýmissa borgar-
stofnana, en enginn virðist geta svarað
einu eða neinu.
Hér er í mörgum húsum eldra fólk,
sérstaklega aðliggjandi þessu umfjall-
aða.
Þetta fólk og við hin erum ráðþrota.
Þessvegna skrifa ég þessar línur í von
um, að þú getir látið rannsaka málið og
hreinsa til.
Með von um undirtektir og upplýsing-
ar um, hvað gert verði.
Vinsamlegast
Páll Bragi Kristjónsson,
Fossagata 8,
Reykjavík.
Hr. slökkviliðsstjóri
Rúnar Bjamason,
Slökkvistöðinni,
Reykjavík.
Á fundi borgarráðs í gær var lagt fram
bréf Páls Kristjónssonar frá 11. þ.m.
varðandi verksmiðjuhús við Þjórsár-
götu.
Borgarráð samþykkti að vísu framan-
greindu erindi til umsagnar slökkviliðs-
stjóra og byggingarfulltrúa og fylgir það
hjálagt í ljósriti.
Davíð Oddsson
Varðar: Beiðni borgarráðs um athug-
un á verksmiðjuhúsi á lóðinni nr. 9 við
Þjórsárgötu vegna meintrar hættu af
húsinu.
Við undirritaðir höfum þ. 23. þ.m.
athugað aðstæður við iðnaðarhús á
lóðinni nr. 9 við Þjórsárgötu hér í borg.
Húsið er byggt 1933 að fengnu
samþykki byggingaryfirvalda. Fjarlægð
þess að lóðamörkum og til nærliggjandi
húsa er vel innan þeirra marka, sem
reglugerðaákvæði segja til um í dag.
Viðhald hússins er lélegt, t.m. vantar
plötur á hluta á suðurgafl þess og sér þar
inn í vegggrind. Á lóðinni liggja vélar-
hlutar í óhirðu. Þá virðist olía, eða grútur,
hafa komist niður í jarðveg á norðurh-
luta lóðarinnar. í suðurhluta hússins,
sem stendur út í götuna, er verið að
sprautulakka bíla, en í norðurhluta mun
vera unnið að bifreiðaviðgerðum utan
almenns vinnutíma.
Við teljum enga sérstaka hættu fyrir
nágrennið stafa af húsinu og starfsemi,
sem í því er, nema hvað plötur geta
fokið og því valdið tjóni. Leggjum við
til, að eiganda verði gerð ljós sú skylda
sín að halda húsinu við og lóð þess
snyrtilegri, samanber gr. 2.5.21 í bygg-
ingarreglugerð. Þinglesinn eigandi húss-
ins er Mjöll h.f., Fosshálsi 3, en talinn
eigandi þess er Hreiðar Svavarsson,
veitingamaður, Smiðjuvegi 14, Kóp-
avogi.
Virðingarfyllst,
Ásmundur J. Jóhannsson, tæknifr.,
Eldvarnaeftirlit Reykjavíkurborgar
Gunngeir Pétursson
skrifstofustjóri byggingarfulltr.
■ Eins og sést á bréfi Páls Braga þá er
hann ekki viss um, að eldhætta stafi af
húsinu, hann segir: „Óhug hefur slegið
hér að fólki, m.a. vegna meintrar
eldhættu“.
Eldur getur kviknað allsstaðar þar
sem eldsneyti, hiti og súrefni eru fyrir
hendi. Til þess að koma í veg fyrir hættur
af íkviknun eru settar reglur þá m.a. um
fjarlægðir milli húsa. Þegar metið er,
hvort eitthvert ákveðið hús hafi í sér
fólgna sérstaka eldhættu fyrir umhverfi
sitt er metið m.a., hvort það standi of
Það þarf ekkert málband, ef maður er
á staðnum, til að sjá að fjarlægðir eru
nægar.
f húsinu voru ekki geymd hættuleg
efni. Slökkviliðið var komið á staðinn
eftir 4 mínútur frá því að því barst
tilkynningin um eldinn. Nægt vatn var
fyrir hendi við slökkvistarfið. Þannig að
mat okkar, að enginn sérstök hætta fyrir
nágrennið stafaði af húsinu var rétt,
jafnvel í vondu veðri.
Það að allt tiltækt slökkvilið var kallað
til á sér þá skýringu, að fyrirsjáanlegt
var að nokkurra klukkutíma starf var
framundan og því þurfti lið á stöðina til
að sinna hugsanlegum útköllum svo og
aukalið til aðstoðar á eldstaðnum. Þetta
er ástæðan fyrir útkalli aukaliðsins, ekki
að það hafi stafað sérstök hætta af
þessum eldi.
Hvar upptök eldsins voru í húsinu er
ekki staðfest, en það er ekki víst að þau
hafi verið í þeim hluta hússins, þar sem
bílaviðgerðirnar voru.
Eldvarnaeftirlit Reykjavíkurborgar,
Ásmundur J. Jóhannsson,
tæknifræðingur.
Hitablásarar
fyrir gas
09 olíu
Skeljungsbúðin
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125