Tíminn - 10.12.1982, Page 1
Helgarpakkinn fylgir blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Föstudagur 10. desember 1982
282. tölublað - 66. árgangur
Erlent
yfirlit:
Leikarinn
Reagan
— bls. 7
E.T..
— bls. 27
Dagur
í lifi
— bls. 10
Nektar
myndir
— bls. 2
Dekkri horfur í efnahagsmálum en þjóðhagsspá gerir ráð fyrir:
HÆTTA A AD VERÐBÓLG-
AN STEFNI Nl) í 80%
— sagði Ólafur Davfðsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar,,
á ráðstefnu um þróun efnahagsmála
■ „Ég tel nú verulega hættu á því að
við séum að fara upp á nýtt verðbólgu-
stig. Frá niiðjum síðasta áratug hefur
hún verið á bilinu 40-50% en nú er
hætta á að hún stefni í 60-80%“, sagði
Olafur Davíðsson, forstj. Þjóðhags-
stofnunar m.a. á ráðstefnu sem haldin
var í gær um þróun efnahagsmála 1983.
Ólafur kvað horfur á næsta ári nú
enn dekkri en gert hafi verið ráð fyrir
í þjóðhagsáætlun. Ljóst sé að draga
verði úr þjóðarútgjöldum a.m.k. næstu
tvö árin, sem feli í sér enn frekari
samdrátt þjóðartekna. „Það verður að
draga saman seglin sem víðast ef
árangur á að nást. Því mun fylgja
almenn skerðing lífskjara, enda búum
við nú við lífskjör sent eru talsvert
umfram það sem við getum staðið
undir af eigin rammleik, a.m.k. við
núverandi ástæður", sagði Ólafur.
Jafnvel þótt ytri skilyrði yrðu hagstæð-
ari en nú lítur út fyrir kvað Ólafur
brýnt að það yrði notað til að draga
frekar úr viöskiptahalla, en ekki strax
tekið til aukinna útgjalda.
Ólafur kom inn á það sent stundum
sé sagt að ekki megi fórna fullri
atvinnu í baráttunni við verðbólguna.
„Það er hins vegar næsta öruggt að við
vaxandi verðbólgu verður sífellt erfið-
ara að halda nægri atvinnu í landinu.
Með vaxandi verðbólgu endar þetta
með verðbólgu og atvinnuleysi“, sagði
Ólafur. Raunar kvað hann þetta þó
dæmi fyrst og fremst snúast unt
■ í gærdag var þroskaheftum börnum boðið til sérstakrar forsýningar á kvikmyndinni „The Extra-Terrestrial“ en hafnar
voru sýningar á henni í gær. Jafnframt þessu var vel smurt ofaná verð frumsýningarmiða, og gengur ágóði sýningarinnar
til málefna þroskaheftra. Myndin var tekin í gær þcgar börnin mættu til sýningarinar. Tímamynd: Róbert
Hart deilt um álviðræður á Alþingi:
Arangur en
EKKI ARÓÐUR
í viðræðum við Alusuisse — Sjá bls. 5
erlendar lántökur eða atvinnuleysi.
„Það er óhugsandi að halda uppi at-
vinnu í landinu til lengri tíma með
erlendum lánum. Afleiðinginaf breytt-
um aðstæðum verður því ekki umflúin.
„Mörgum þykir það sem ég hef sagt
sennilega örgustu hrakspár. Það er
vonandi að svo sé. En við höfum bara
ekki efni á því núna að lifa í voninni
og ekki lifum við jú á voninni", sagði
Ólafur.
-HEI
Forsætisráðherra
um nýju vidhorfin
f álmálinu:
LEITfl
NYRRA
LEIÐAI
v
■ „í álmálinu er það
meginatriði eins og fyrr,
að ta sem fyrst verulega
hækkun á rafmagnsverð-
inu,“ sagði dr. Gunnar
Thoroddsen forsætisráð-
herra er blaðamaður
Tímans spurði hann álits
á stöðu mála í svokölluðum
álviðræðum, nú eftir að
Guðmundur G. Þórarins-
son, fulltrúi Framsóknar-
flokksins hefur sagt sig úr
álviðræðunefndinni og lýst
allri ábyrgð á hendur iðn-
aðarráðherra.
Forsætisráðherra sagði
jafnframt: „Eftir það sem
nú hefur gerst, þá verðum
við að leita nýrra leiða
hvernig á að standa að
þessum samningum og það
verður aðalverkefni okkar
næstu daga.“ -AB