Tíminn - 16.12.1982, Síða 22
FIMMTUDAGUR 16. DESEMBER 1982
^flokksstarf
Aukakjördæmisþing í
Reykjaneskjördæmi
Framboð - Skoðanakönnun
Aukakjördæmisþing Kjördæmissambands framsóknarmanna í
Reykjaneskjördæmi veröur haldið sunnudaginn 9. janúar n.k. i Festi
Grindavík. Þangað eru boðaðir allir aðal- og varafulltrúar á siðasta
kjördæmisþingi - tvöföld fulltrúatala
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi haldið 28.
nóv. s.l. í Hafnarfirði ákvað að fram færi skoðanakönnun um val
frambjóðenda til næstu alþingiskosnmga.
Framboðsnefnd flokksins hefur ákveðið að framboðsfrestur verði til
31. desember n.k. Hér með er auglýst eftir framboðum. Framboðum
skal komið til einhvers úr framboðsnefndinni sem eru:
Grimur Runólfsson, Kópavogi, sími 40576, formaður
Ágúst B. Karlsson, Hafnarfirði, sími 52907
Hilmar Pétursson, Keflavík, sími 92-1477
Óskar Þórmundsson, Njarðvík, sími 92-3917
Pétur Bjarnason, Mosfellssveit, sími 66684
og munu þeir veita allar nánari upplýsingar.
Laust embætti
sem forseti íslands
veitir
Prófessorsembætti í bergfræöi við jaröfræöiskor
verkfræði-og raunvísindadeildar Háskóla íslands
er laus til umsóknar. Prófessornum er einkum
ætlaö að starfa á sviöi jarðefnafræði og efna-
varmafræöi. Umsóknarfrestur er til 7. janúar
1983.
Laun samkvæmt launakerfi sarfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni
rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa
unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil
sinn og störf. Með umsókninni skulu send eintök
af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjanda,
prentuðum og óprentuðum. Umsóknir skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
7. desember 1982.
Laus staða
Dósentsstaða i tölvunarfræði við stærðfræðiskor verkfræði-og
raunvísindadeildar Háskóla íslands er laus til umsóknar Dósentinum
er einkum ætlað að starfa að fræðilegum þáttum tölvunarfræði, t.d.
á sviði forritunarmála, gagnasafna eða kerfisforritunar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjanda,
ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir 15. mars
1983.
Menntamálaráðneytið,
7. desember 1982.
Styrkir til háskólanáms og vísinda-
iegs sérnáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa Islendingi til háskólanáms
í Svíþjóð námsárið 1983-84. Styrkfjárhæð er 2.770 s.kr. á mánuði
í 8 mánuði. - Jafnframt bjóða sænsk stjórnvöld fram fjóra styrki
handa Islendingum til vísindalegs sérnáms í Svíþjóð á háskólaárinu
1983-84. Styrkirnir eru ætlaðir til 8 mánaða dvalar, en skipting í styrki
til skemmri tíma kemur einnig til greina. Styrkfjárhæð er 2.770 s.kr.
á mánuði. - Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 15.
janúar n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
10. desember 1982
Styrkir til háskólanáms í Noregi
Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslenskum stúdent eða
kandídat til háskólanáms í Noregi háskólaárið 1983-84. Styrkurinn
nemur 2.600 n.kr. á mánuði í 9 mánuði. - Umsóknum um styrk
þennan skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6,101
Reykjavík, fyrir 15. janúar n.k. - Sérstök umsóknareyðublöð og
nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
10. desember 1982.
Frá Happdrætti Framsóknarflokks-
ins
Óðum líður að næstu alþingiskosningum, sem óhjákvæmilega munu
kosta mikil fjárútlát, umfram annan reksturskostnað flokksins og
kjördæmissambandanna. Verður því að leggja mikla áherslu á
þýðingu happdrættisins.
Dregið verður 23. desember n.k. og drætti ekki frestað. Eru þeir, sem
fengið hafa heimsenda miða vinsamlega beðnir að gera skil sem
fyrst. Greiða má samkvæmt meðfylgjandi gíróseðli í næstu
peningastofnun eða á pósthúsi. Einnig á Skrifstofu Framsóknarflokks-
ins, Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Skoðanakönnun í
Vestfjarðarkjördæmi
Kjördæmisráð Framsóknarmanna á Vestfjörðum haldið að Núpi s.l.
haust samþykkti að fram skyldi fara skoðanakönnun um val
frambjóðenda til næstu alþingiskosninga.
Skoðanakönnumn verður opin öllum þeim er undirrita stuðningsyfir-
lýsingu við stefnu Framsóknarflokksins og fer skoðanakönnunin fram
í byrjun janúar.
Auk tilnefningar frambjóðenda frá einstökum framsóknarfélögum er
öllum flokksbundnum Framsóknarmönnum heimilt að bjóða sig fram
enda fylgi meðmæli 10-15 flokksbundinna Framsóknarmanna.
Framboð þurfa að berast til formanns kjörstjórnar Kristins Jónssonar
Brautarholti 13 (safirði í síðasta lagi 18. des. n.k.
Stofnfundur FUF íVestmannaeyjum
verður haldinn laugardaginn 18. des. n.k. kl. 16.00 i Gestgjafanum.
Á stofnfundinum mæta Finnur Ingólfsson, formaður SUF og
Ásmundur Jónsson, gjaldkeri SUF. Ungir og áhugasamir fram
sóknarmenn eru hvattir til að mæta á stofnfundinn.
Undirbuningnefndin
Bingó
Félag ungra framsóknarmanna heldur bingó n.k. sunnudag kl. 14.30
að Hótel Heklu Rauðarárstig 18.
Húsið opnað kl. 13.00
Kaffiveitingar. FUF Reykjavík
Jólaalmanök SUF
Dregið hefur verið i jólaalmanökum SUF
1. des. nr. 9731 5. des. nr. 299
2. des. rir. 7795 6. des. nr. 5013
3-des. nr. 7585 7. des. nr. 4717
4. des. nr. 8446 8. des. nr. 1229
9. des. nr. 3004
10 des. nr. 2278.
11. des. nr. 1459
12. des. nr. 2206
13. des. nr. 7624
14. des. nr. 8850
15. des nr. 6834
16. des. nr. 7224
Prófkjör
Prófkjör Framsóknarmanna í Reykjavík vegna komandi alþingiskosn-
inga verður haldið sunnudaginn 9. janúar 1983.
Skila þarf framboðum til prófkjörsins á skrifstofu Framsóknarflokksins
að Rauðarárstíg 18, Reykjavík, fyrir kl. 18.00 mánudaginn 27.
desember 1982. Kjörgengir eru allir flokksbundnir Framsóknarmenn,
sem fullnægja skilyrðum um kjörgengi til Alþingis. Framboði skal
fylgja skriflegt samþykki frambjóðandans, svo og meðmæli 5-10
flokksbundinna Framsóknarmanna.
Athygli er vakin á því, að kjörnefnd hefur heimild til að bæta nöfnum
á prófkjörslistann að framboðsfresti liðnum.
Kjörnefnd
Jólafundur F.F.K.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur sinn árlega jólafund 16.
desember kl. 20.30 að Rauðarárstíg 18, kjallara.
Dagskrá: Steinunn Finnbogadóttir les Ijóö.
Bergþóra Árnadóttir söngkona kemur í heimsókn.
Sigrún Sturludóttir les sögu í tilefni árs aldraðra.
Munið jólapakkana Stjórnin.
Vegna skoðanakönnunar
í Norðurlandskjördæmi vestra
Stjórn kjördæmissambands framsóknarmanna Norðurlandskjör-
dæmis vestra ákvað á fundi sínum á Blönduósi 12. des. að fram fari
skoðanakönnun um 5 efstu sæti framboðslistans í kjördæminu við
næstu alþingiskosningar og verður kosningin bindandi fyrir 3 efstu
sætin.
Skoðanakönnunin fer fram á auka kjördæmisþingi með tvöfaldan
fjölda fulltrúa (aðal og varafulltrúar) sem haldið verður í Miðgarði 15.
jan. 1983 og hefst kl. 10 f.h. Öllum framsóknarmönnum er heimilt að
bjóða sig fram við skoðanakönnunina og skal fylgja hverju framboði
stuðningsyfirlýsing 15 framsóknarmanna. Framboð þurfa að berast
formanni kjördæmisstjórnar Guttormi Óskarssyni Skagfirðingabraut
25 Sauðárkróki fyrir 5. janúar n.k.
Stjórn Kjördæmissambandsins
Kvikmyndir
Sími 78900
Salur 1
Ein af jólamyndum
1982
Litii lávarðurinn
(Little Lord Fauntleroy)
hittir litla meistarann (Ricky
Schroder). Þetta er hreint frábær
jólamynd fyrir alla fjölskylduna.
Myndin er byggð eftir sögu Fran-
ces Burnett og hefur komið út í
íslenskri þýðingu. Samband litla
og stóra meistarans er með ólík-
indum.
Aðalhlutv: Alec Guinness, Ricky
Schroder og Eric Porter. Leik-
stjóri: Jack Cold.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Salur 2
Átthyrningurinn
Það er erfitt að berjast við hinar
frægu NINJA sveitir en Chuck
Norris er ekki af baki dottinn, og
sýnir enn einu sinni hvað I honum
býr.
AðalhluNerk: Chuck Norris, Lee
Van Cleef.
Endursýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Salur 3
Maðurinnsem barns'
andlitið
Hörkuspennandi amerísk-ítölsk
mynd með T rinity-bræðrum. Ter-
ence Hlll er klár með byssuna og
spilamennskuna, en Bud
Spencer veit hvernig hann á að
nota hnefana.
Aðalhlutv: Terence Hill, Bud
Spencer og Frank Wolff.
Bönnuð innan 12 ára. ^
Sýndkl. 5,7.05, 9.10 og 11.15.
Salur 4
SNÁKURINN
(Venom)
Vertorn er ein spenna Irá upphafi
til enda, tekin í London og leikstýrð
af Piers Haggard. Þetta er mynd
fyrir þá sem unna góðum spenn-
umyndum. Mynd sem skilur mikið
eftir.
Myndin er tekin í Dolby og sýnd
í 4 rása sterio.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11.
Bönnuð börnum Innan 16 ára.
Salur 5
Being There
Sýnd kl. 9
(10. sýnlngarmánuður)