Tíminn - 30.12.1982, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR 3«. DESEMBER 1982
s
fréttir
Ágreiningur innan bæjarstjórnar Garðabæjar um hvort löglega
hafi verið að útboði vegna innréttinga f nýrri læknamiðstöð:
MISSIR GflRÐABÆR AF
FRAMLAGI RÍKISINS?
■ Agreiningur er uppkominn innan bæjarstjórnar Garðabæjar um það hvort staðið
hafi verið löglega að útboði á verki sem bæjarstjómin ætlar að láta vinna fyrir sig,
varðandi innréttingar á læknamiðstöð Garðabæjar. Eru fulltrúar minnihlutans, þ.e.
Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins þeirrar skoðunar að meirihiuti
bæjarstjórnarinnar, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, hafi ekki farið eftir reglugerð um
útboð, þegar þátttaka ríkissjóðs í kostnaði er annars vegar,, og hafa fuUtrúar
iminnihlutans, þeir HUmar Ingólfsson, fuUtrúi Alþýðubandalagsins og Einar G.
Þorsteinsson, fuUtrúi Framsóknarflokksins jafnvel bent á að svo gæti farið að
bæjarsjóður missti af framlagi ríkissjóðs vegna þess.
Tíminn hafði samband við Hilmar
Ingólfsson, og spurði hann nánar út í
það um hvað væri deilt: „Samkvæmt
lögum um opinberar framkvæmdir, þá
ber bæjarstjórn, ætli hún ekki að standa
ein að framkvæmdum að senda frum-
drög að framkvæmdatillögum til við-
komandi ráðuneytis. Ráðuneytið sendir
síðan til samstarfsnefndar um opinberar
framkvæmdir, samþykki ráðuneytið að
styðja viðkomandi beiðni. iÞetta hefur
einfaldlega ekki verið gert hér,“ sagði
Hilmar, „Þannig að svo gæti hæglega
farið að ríkissjóður neitaði að greiða
sinn hlut við þessar framkvæmdir, en
hlutur ríkisins í svona framkvæmdum er
80%.“ Okkur finnst það afskaplega
einkennilegt ef að sveitarfélag getur
ráðskast með fé ríkissjóðs eins og því
sýnist.“
Hilmar sagði jafnframt að forsaga
málsins væri sú að leitað hefði verið eftir
verðtilboðum í innréttingar læknamið-
stöðvarinnar, til tveggja verktaka, sem
búsettir væru í Garðabæ, en annar væri
með fyrirtæki sitt í Garðabæ og hinn í
Hafnarfirði. Var fjallað um verðtilboðin
í sumar, og að sögn Hilmars, þá hafnaði
bæjarráð báðum verðtilboðunum. Það
hefði síðan gerst á fundi bæjarstjórnar nú
í vetur, að meirihluti ráðsins hefði
samþykkt að taka tilboði annars aðilans,
Sverris Hallgrímssonar, varabæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, en
hann er með fyrirtæki sitt í Hafnarfirði.
Þessu sagði Hilmar að hann og Einar
hefðu mótmælt ákaft, og ekki talið
eðlileg vinnubrögð. Sagðist Hilmar hafa
bent á að það hlyti að skipta miklu máli
í þessu tilviki að verið væri að semja við
varafulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Garða-
bæ og það hlyti að hafa ráðið úrslitum,
þegar sjálfstæðismenn ákváðu að taka
tilboði því sem þeir höfðu áður hafnað.
Hilmar sagði jafnframt að krónulega séð
hefði varla verið nokkur munur á þessum
tilboðum, og því væri röksemd sjálf-
stæðismanna þess efnis að tilboð Sverris
væri hagkvæmara afar hæpin. Hann
sagðist enda hafa bent á að sá sem átti
tilboðið sem hafnað var, greiddi að-
stöðugjald í Garðabæ, en hinn ekki,
þannig að það tilboð sem hafnað var,
væri að því leytinu til hagstæðara fyrir
bæjarfélagið. Hilmar sagði að því hefðu
þeir fulltrúar minnihlutans talið eðlilegt
að smíði innréttinga í læknamiðstöðina
væri boðin út að nýju, en því hefði
meirihlutinn hafnað af öllum fullrúum
Sj álfstæðisflokksins.
„Vitnuðu í reglur ríkisins“
Tíminn snéri sér til forseta bæjar-
stjórnar Garðabæjar, Agnars Friðriks-
sonar og spurði um skýringar sjálfstæðis-
manna á því hvernig staðið hefði verið
að útboði í innréttingar læknamiðstöðv-
arinnar.
„Það er rétt, að fulltrúar minnihlutans
komu með bókun á bæjarstjórnarfundi
þar sem þeir vitnuðu í reglur ríkisins um
það hvernig staðið skyldi að útboði í
opinberum framkvæmdum. Nú, það
eina sem ég hef í rauninni um þetta mál
að segja, er að þegar ákveðið var í sumar
að leita til tveggja aðila um tilboð í
þessar innréttingar, þá var aldrei neinn
ágreiningur um það hvort skyldi til
þessara manna, en ekki einhverra ann-
arra, og fleiri. Agreiningurinn kom fyrst
í ljós, þegar búið var að ákveða að taka
tilboði annars aðilans."
Agnar var að því spurður hvort hann
hefði ekki tekið þátt í því að hafna
tilboði Sverris í sumar: „Báðum tilboð-
unum var hafnað á sínum tíma, og allir
voru sammála um það. Þeim var hafnað
á þeim grundvelli að báðir bjóðendur
komu með þau rök, að það væri líklegast
hægt að framkvæma þetta á ódýrari
máta heldur en útboðsgögn hefðu gert
ráð fyrir. Arkitekt, sem hafði hannað
innréttinguna var því falið að koma með
nýjar teikningar og á grundvelli þeirra
teikninga, var tekið tilboði þess sem
lægri var, en á sömu einingarverðum og
. gilt höfðu í upprunalega tilboðinu.
Þarna var því um það að ræða að efni
varð minna, en vinnuliðir og annað slíkt
var á sama einingarverði og bjóðandi
hafði boðið á sínum tíma.
Það var sem sagt aldrei ágreiningur
um það hvernig staðið var að útboðinu
og því finnst mér ekki rétt að segja í
dag, að hugsanlega muni ríkið ekki taka
þátt í þessu, af því að það var staðið
þannig að þessu. Hitt er svo allt annar
handleggur að menn geta verið ósam-
mála um það hvaða tilboði eigi að taka. “
Agnar var spurður hvað hann vildi
segja um þá röksemd Hilmars og Einars
að hagkvæmni tilboðanna yrði mjög
svipuð ef aðstöðugjöld fyrirtækisins í
Garðabæ væru reiknuð inn í dæmið: „Ég
hef ekkert um það að segja. Þetta er
vafalaust þeirra sjónarmið og það má
hugsanlega setja einhverjar reglur um
það að fyrirtæki sem eru starfrækt í
bænum, eigi að njóta einhvers forgangs
umfram önnur fyrirtæki, vegna þess að
þau greiða gjöld til bæjarins. Slíkar
reglur eru hins vegar ekki í gildi, og hafa
ekki verið í gildi. Við, eins og önnur
bæjarfélög höfum leitað til þeirra sem
verið hafa með lægst tilboð, og þá ekki
endilega horft í þetta.“
Agnar sagði að í þessari læknamiðstöð
yrði aðstaða fyrir tvo lækna, og auk þess
yrði hjúkrunar, og meinatæknaaðstaða,
ásamt heimilis og skólalækningum, svo
og mæðraeftirlit. Er stefnt að því að
hægt verði að taka miðstöðina í notkun
með vorinu.
-AB
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, í hlutverki Önnu
SUKKULAÐI
HANDA SILJU
— f rumsýnt á Litla leiksvidinu í kvöld
Konsertklúbb-
urinn:
Flautuleikur
Martial
Nardeau
í Norræna
húsinu
■ Mánudaginn 3. janúar n.k. efnir
Konsertklúbburinn til tónlcika í Norr-
æna húsinu og flytja þar Martial Nardc-
au flautuleikari og Snorri Sigfús Birgis-
son píanóleikarí verk eftir J.S. Bach,
Gabriel Fauré, Henrí Dutilleux og Serge
Prokofief.
Martial Nardeau, sem er fæddur 1957,
hóf flautunám 9 ára að aldri við
tónlistarskóla í heimaborg sinni, Bou-
logne í Norður-Frakklandi, og útskrifað-
ist þaðan 6 árum síðar. Hann stundaði
framhaldsnám í París í tvö ár og var
síðan við tónlistarskóla í Versölum þar
sem Roger Bourdin var aðalkennarí
hans og þaðan brautskráðist hann sem
cinleikari með frábærum vitnisburði
1976. Nardeau hefur komið fram á
fjölda tónleika sem einleikari og einnig
tekið þátt í kammertónleikum. Hann
starfar í vetur sem tónlistarkennarí í
Reykjavík, Kópavogi og Keflavik.
Aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn, en tónleikamir hefjast
kl.20.30.
■ Martial Nardeau flautuleikari.
■ Súkkulaði handa Silju, nútíma raun-
sæisleikrit eftir Nínu Björk Árnadóttur
verður frumsýnt á Litla sviðinu í Þjóðleik-
húskjallaranum í kvöld. Eins og greint
var frá í Tímanum á Þorláksmessu, þá
er hér um að ræða leikrit um mæðgurnar
Önnu og dóttur hennar Silju, lífsbaráttu
þeirra, vinahóp, vandamál unglingsirts
Silju o.fl. Er verkið ljóðrænt, enda Nína
Björk þekkt fyrir ljóð sín.
Það er María Kristjánsdóttir sem
leikstýrir sýningunni, Messíana Tómas-
dóttir gerir leikmynd og búninga, Egill
Ólafsson semur og flytur tónlistina og
lýsingu annast Sveinn Benediktsson.
Níu leikarar fara með hlutverk í
sýningunni og þeirra stærst er hlutverk
Þórunnar Magneu Magnúsdóttur, en
hún leikur önnu, sem er einstæð móðir
í Reykjavík. Bára Magnúsdóttir, ung
menntaskólastúlka leikur dótturina
Silju. Frumsýningin hefst kl. 20.30 í
kvöld og er uppselt á sýninguna.
Nýjar reglur
IATA um
merkingar
á farangri:
Farangur
sé
merktur
bæði utan
og innan
■ Flugleiðir vilja vekja athygli á
nýjum reglum Alþjóðasambands flug-
félaga (IATA) um merkingar á farangri
flugfarþega.
Þessar reglur taka gildi 1. janúar
1983. Samkvæmt þeim ber farþegum
að merkja aUan innritaðan farangur
með nafni og heimUisfangi bæði að
utan- og innanverðu. Utan á ferðatösk-
um og öðrum farangri þarf einnig að
koma fram dvalarstaður farþega á
áfangastað, tU dæmis hótel, eða annað
það heimUisfang sem viðkomandi bef-
ur meðan á dvöl stendur.
Tilgangurinn með þessum nýju regl-
um er sá að auðveldara verði að koma
öUum farangri tryggilega tU skUa og
flýta því að bafa upp á eigendum
óskUafarangurs.
Flugleiðum þykir rétt að undirstríka,
að þessar reglur gUda bæði um innan-
lands- og mUIUandsflug.
Ók á þrjá
kyrrstæða
bfla og stór-
skemmdi
■ Ökumaður, grunaður um ölvun
við akstur, ók bifreið sinni á þrjár,
kyrrstæðar bifreiðar á Þórsgötu i
fymnótt með þeim afleiðingum að
aUar bifreiðarnar fjórar eru stór-
skemmdar á eftir. Þurfti að fjarlægja
þær allar með aðstoð kranabíls eftir
áreksturínn. Ökumaður var fluttur á
slysadeUd.
Innanlands-
flug
Flugleiða
um
áramótin
■ Á gamlársdag munu Flugleiðir
fljúga tU Akureyrar (2 ferðir), Húsa-
víkur, Patreksfjarðar, Egilsstaða,
Sauðárkróks, ísaljarðar (2 ferðir),
Hafnar í Hornafirði og Vestmannaeyja
(2 ferðir). Innanlandsflugi Flugleiða
lýkur klukkan 16.25 á gamlársdag er
seinasta vél kcmur tU Rcykjavíkur.
Ekki er flogið innanlands á nýárs-
dag, en sunnudaginn 2. janúar verður
mikið annríki hjá Flugleiðum og
farnar margar aukaferðir. Samtals er
gert ráð fyrir 23 ferðum frá Reykjavík
þann dag.
Þá verða margar aukaferðir á mánu-
dag og þriðjudag.
Flugleiðavél kemur frá Luxemborg
síðdegis á gamlársdag og heldur áfram
til New York. Hún fer síðan frá New
York að kvöldí nýársdags og lendir í
Keflavík að morgni 2. janúar.
Ekkcrt Evrópuflug verður á gaml-
a'rsdag eða nýársdag, en 2. janúar fer
Flugleiðavél með skíðafólk beint tU
Innsbruck í Austurríki og áætlunarvét-
ar félagsins fara tU Oslóar, Stokkhólms
og London. Mánudaginn 3. janúar
verður farið samkvæmt áætlun tU
Glasgow og Kaupmannahafnar, en
auk þess verður aukaferð tU Kaup-
mannahafnar og önnur tU New York.
Fleiri aukaferðir verða í mUlUandaflug-
inu lýrstu dagana í janúar, en þær
síðustu verða tU Kaupmnnnahafnar og
Gautaborgar 9. janúar.