Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 4

Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 4
4 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR VEÐURSPÁ Alicante Bassel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° 3° 1° 1° 3° 2° 5° 1° 1° 17° 6° 15° 0° 15° -4° 6° 16° -1° Á MORGUN Hæg breytileg átt en hvassara SA-lands. MÁNUDAGUR Áfram hægur vindur og él á stöku stað. -1 -2 -3 -2 -3 0 -1 2 1 2 6 7 10 6 8 8 11 7 9 4 -6 9 -2 -4 -4 -5 0 -2 0 -4 -4 -2 ÁFRAM KALT Hæðasvæði yfi r landinu veldur köldu, björtu og stilltu veðri næstu daga. Í dag verður þó fremur þung- búið og horfur á snjókomu eða élj- um. Hins vegar létt- ir til með kvöldinu og horfur eru á fínu vetrarveðri fram í nýja vinnuviku. Soffía Sveinsdóttir Veður- fréttamaður Í grein um íslenska texta í Eurovision láðist að nefna lag Hallgríms Óskars- sonar, Undir regnbogann, sem er komið í úrslit og er sungið á íslensku. LEIÐRÉTTING STJÓRNMÁL „Ef verðandi sjávarút- vegsráðherra ætlar sér að draga til baka þá ákvörðun núverandi ráðherra að heimila hvalveiðar næstu fimm árin má hann búa sig undir að verja sig gegn vantrausts- tillögu í þinginu,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Kári segir hvalveiðar njóta mikils stuðnings í þinginu. „Það liggur fyrir að sjálfstæðis- menn, framsóknarmenn, frjáls- lyndir og ákveðnir þingmenn Samfylkingar, sérstaklega á Vest- urlandi, eru hlynntir hvalveiðum. Ef verðandi ráðherra ætlar sér að koma í veg fyrir að hér skapist á þriðja hundrað störf og veruleg- ar útflutningstekjur, þá er viðbú- ið að ég, Einar eða einhver annar sjálfstæðismaður leggi fram van- trauststillögu til að láta stuðnings- menn hvalveiða standa frammi fyrir gerðum hlut. Miðað við þann stuðning sem hvalveiðar njóta í þinginu verður hægara sagt en gert fyrir viðkomandi að verjast því vantrausti.“ Sigurður segir atburði gær- dagsins í stjórnarmyndunarvið- ræðum hafa fyllt sig miklum efa- semdum um að minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna verði mynduð. „Það er greinilegt að það logar allt stafnanna á milli hjá þessum flokkum. Svo virðist sem minnihlutastjórnarflokkarnir reyni að halda efnisatriðum sam- komlagsins frá framsóknarmönn- um. Ég er allt annað en bjartsýnn á framhaldið,“ segir Sigurður Kári Kristjánsson. - kg Sjálfstæðismenn hyggjast bregðast við verði lagt bann við hvalveiðum: Vantrauststillaga er líkleg Það er greini- legt að það logar allt stafnanna á milli hjá þessum flokkum. SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS STJÓRNMÁL „Við höfum unnið þetta allt á grundvelli þessi tilboðs sem Framsókn setti fram um að veita þessari stjórn hlutleysi og verja hana falli. Við og forsetinn göngum auðvitað út frá því að það standi,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna. Til stóð að kynna nýja ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna í gær. Af því varð ekki þar sem þing- flokkur framsóknarmanna vill fara betur yfir þá áætlun sem tilvonandi stjórnarflokkar kynntu þeim í gær. Steingrímur kveður þó ekkert því til fyrirstöðu að kynna nýja ríkis- stjórn í dag. „Við höfum allan tímann sagt að við ætluðum að klára þetta fyrir helgi. Framsóknarmenn vissu það og vinnutakturinn er allur búinn að vera sá, þannig að við erum til- búin innan þeirra tímamarka sem þessari vinnu voru sett. Það er allt frágengið af okkar hálfu sem við teljum að þurfi en auðvitað erum til- búin að bíða og sjá hvað Framsókn er að bauka með,“ ítrekar Stein- grímur. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist í gær vilja áætlun sem setti ekki landið á hausinn fyrir kosning- ar í vor. Steingrímur segir fjarri öllu lagi að áætlanir tilvonandi rík- isstjórnar feli slíkt í sér. Ekki sé hvikað frá þeim útgjaldaviðmiðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Það eru engar aðstæður á Íslandi í dag til annars en að sýna ýtrustu ráðdeild og ábyrgð,“ segir hann. Framsóknarmenn undruðust að frétta fyrst í fjölmiðlum að kynna ætti nýja ríkisstjórn á Austurvelli í gær. Steingrímur hafnar því að framsóknarmenn hafi ekki fengið að fylgjast nógu vel með gangi mála. Athugasemdir þeirra lúti fyrst og fremst að útfærslu á ein- stökum framkvæmdaatriðum. Þeir hafi ekki gert teljandi athugasemdir við sjálfa samstarfsyfirlýsinguna. „Við erum búin að bjóða þeim alla okkar sérfræðinga til að vinna með þeirra mönnum og bjóða þeim að sjálfsögðu upp á áframhaldandi aðild að vinnunni,“ segir Steingrím- ur og bætir því að öllum góðum tillögum framsóknarmanna um útfærslur og verklag verði tekið fagnandi. „En við erum náttúrlega með það í bakgögnum okkar.“ Tilvonandi ríkisstjórn ætlar að breyta yfirstjórn Seðlabankans. Nöfn ýmissa manna sem stýra eiga bankanum hafa verið nefnd en Steingrímur segir slíkar getgátur ótímabærar. „Það er reiknað með að lögunum um Seðlabankann verði breytt og að á grundvelli þeirra verði auglýst eftir nýjum faglegum seðlabankastjóra. Það er því ekkert búið að úthluta því embætti,“ segir hann. Framsóknarmenn vilja að kosið verði til Alþingis 25. apríl. „Það mun ekki stranda á því,“ svarar Steingrímur aðspurður um þá dag- setningu. Ekki náðist í fulltrúa Samfylking- ar í stjórnarmyndunarviðræðunum í gærkvöldi. gar@frettabladid.is Við forsetinn göngum út frá að tilboð Framsóknar standi Steingrímur J. Sigfússon segir allt klappað og klárt fyrir nýja ríkisstjórn en að tilvonandi stjórnarflokkar gefi Framsóknarflokknum, sem býðst til að verja stjórnina falli, svigrúm til að meta fyrirliggjandi áætlun. STJÓRNARMYNDUNARVIÐRÆÐUR Forystumenn úr Vinstri grænum og Samfylkingu hafa í vikunni rætt stjórnarsáttmála og skiptingu verka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Atburðir dagsins gefa kannski til kynna að íslenskir stjórnmálamenn kunni ekki alveg að starfa í minni- hlutastjórn og verja slíka stjórn falli,“ segir Einar Mar Þórðarson stjórn- málafræðingur um atburðarás gær- dagsins í stjórnarmyndunarviðræð- um Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar. Einar segir greinilegt að Framsókn- arflokkurinn sé að misskilja hlutverk sitt að vissu leyti. „Í raun og veru bauð Framsókn fram stuðning sinn við þessa minnihlutastjórn til þess að verja hana falli. Með því var flokk- urinn ekki að gefa út að hann skyldi samþykkja allt sem stjórnin byði upp á. Þess vegna er ég dálítið hissa á því að Framsókn setji fram ein- hver skilyrði fyrir lífi stjórnarinnar svona á síðustu metrunum. Fram- sókn getur vel setið hjá þótt stjórn- in sé með frumvörp sem flokknum líkar ekki,“ segir Einar. Að sögn Einars sýndist honum sem þau þrjú atriði sem Framsókn- arflokkurinn lagði áherslu á í fyrstu, stjórnlagaþing, aukna aðstoð við heimilin í landinu og að kosningar yrðu haldnar sem fyrst, virtust hafa náð fram að ganga. „Ef þessi stjórn kemst á koppinn, sem hún hlýtur eiginlega að gera, þá virðist Fram- sókn ætla að blanda sér meira inn í málin en margir héldu. En þetta er allt frekar óljóst ennþá og erfitt að segja hvernig fer,“ segir Einar Mar Þórðarson. - kg Stjórnmálafræðingur segir Íslendinga ekki kunna að starfa í minnihlutastjórn: Framsókn misskilur hlutverk sitt EINAR MAR ÞÓRÐARSON STJÓRNMÁL Fullur hugur er innan VG til að draga ákvörðun fráfar- andi sjávarútvegsráðherra um að leyfa stórfelldar hvalveiðar til baka. Hins vegar þurfi að skoða hvort slík ákvörðun hefði í för með sér skaðabótaskyldu á hend- ur ríkinu. Þurfi stuðning meiri- hluta Alþingis til að breyta þessu, velti málið að auki á Framsókn og frjálslyndum, en Samfylking er andvíg auknum veiðum. Þingmenn Framsóknar styðja sjálfbærar hvalveiðar en telja málið í höndum næsta sjávarút- vegsráðherra. Kæmi fram tillaga um auknar hvalveiðar myndu þeir líklega allir styðja hana. - kóþ Hvalveiðar Íslendinga: Möguleiki á skaðabótamáli VINNUMARKAÐUR Nokkur hundruð starfsmenn hjá Reykjavíkurborg með fastlaunasamninga þurfa að taka á sig launalækkun. Stjórn- endur hafa tilkynnt þeim að yfir- vinna verði minnkuð úr 48 tímum og allt niður í 35. Hallur Páll Jónsson mann- auðsstjóri segir að stjórnend- urnir fari eftir þeim ramma að yfirvinna minnki og fast- launasamn- ingar lækki um 10 prósent. Stjórnendurnir hafi frjálsar hendur innan þessa ramma og starfsmennirnir geti ákveðið sjálfir hvenær nýi fast- launasamningurinn taki gildi, innan þriggja mánaða þó. Starfs- menn með laun undir 300 þúsund- um lækki ekki. Forystumenn stéttarfélaga hafa mótmælt því hvernig staðið er að breytingunum, starfsmönn- um sé stillt upp við vegg. Páll Halldórsson, varaformað- ur BHM, leggur áherslu á að starfsmenn fái umþóttunartíma og samstarf verði um lausnir á rekstrarvanda. - ghs Óánægðir borgarstarfsmenn: Launalækkun hjá borginni PÁLL HALLDÓRSSON Hjallastefna á Suðurgötu Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík gerir ekki athugasemdir við fyrirspurn um hvort breyta megi 400 fermetra íbúðarhúsi á Suðurgötu 14 í Reykjavík í skóla fyrir Hjallastefnuna. Byggingar- fulltrúi kveðst að sami skapi ekkert sjá málinu til fyrirstöðu berist ósk um byggingarleyfi. SKÓLAR GENGIÐ 30.01.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 181,2971 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 113,6 114,14 162,26 163,04 146,15 146,97 19,61 19,724 16,468 16,564 13,79 13,87 1,2687 1,2761 169,65 170,67 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.