Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 41
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Þegar þessi klausa kemur fyrir
sjónir almennings er Bjarni Jóns-
son ugglaust að melta frumsýningu
Leikfélags Reykjavíkur frá því í
gærkveldi á verkinu Rústað eftir
Söruh Kane. Eftir henni beið hann
spenntur þegar haft var samband
við hann fyrir helgi til að forvitn-
ast um fyrirætlanir hans. „Þetta
er áhugavert verk og það er mjög
tímabært að fá að sjá leikrit eftir
Söruh Kane,“ sagði hann og bætti
við í svolítið kaldhæðnum tón:
„Það sannast á henni að erlendir
höfundar þurfa helst að deyja til
að vera settir upp hér.“
Ekki lætur Bjarni þar við sitja
því hann ætlar líka í leikhús annað
kvöld. „Já, þetta er smá leikhús-
helgi hjá mér eins og oft áður,“
segir hann hlæjandi. „Ég ætla á
sýningu suður í Grindavík sem
heitir 21 manns saknað og fjall-
ar um ævi séra Odds Gíslason-
ar, eins mesta braskmennis síns
tíma. Grindvíska atvinnuleikhúsið,
skammstafað GRAL, setur verkið
á svið og bak við það eru stórhuga
Suðurnesjamenn í leikhúsbrans-
anum sem eru komnir á heima-
vígstöðvarnar að búa til leikhús
sem er frábært mál. Ég hlakka til
að sjá þetta. Það er bráðnauðsyn-
legt að búa til atvinnugrundvöll
fyrir listamenn annars staðar en
bara í Reykjavík.“
Það eru sem sagt tveir stórir
viðburðir hjá Bjarna þessa helgi
en hvað skyldi hann ætla að gera
á milli leiksýninga?
„Ég veit það ekki,“ svarar hann
hugsi. „Það er svo þreytandi að
vera Íslendingur þessa dagana að
mann langar mest að sofa.“
Ekki líst blaðamanni á þá stefnu
svo hann spyr Bjarna hvort hann
sé ekki skíðamaður.
„Jú, mér finnst gaman að fara
á skíði og hafði einmitt hugsað
mér að fara einhvern næstu daga.
Kannski maður skelli sér á sunnu-
daginn og taki konuna með. Hver
veit nema ungviðið láti til leiðast
líka?“ gun@frettabladid.is
Smá leikhúshelgi hjá
mér eins og svo oft áður
Það var að vonum að leikskáldið Bjarni Jónsson stefndi í leikhús um helgina. En að hann ætlaði að verja
þar tveimur kvöldum af þremur, án þess að vera í vinnunni, var meira en búist var við.
„Mér finnst gaman að fara á skíði, kannski maður skelli sér á sunnudaginn,“ segir leikskáldið Bjarni Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEIMSPEKIKAFFIHÚS verður haldið á Bláu
könnunni í Hafnarstræti á Akureyri á morgun klukkan
11.00 fyrir hádegi. Ólafur Páll Jónsson heimspekingur
mun fjalla um lýðræði og mannréttindi.
Rope Yoga Eiðistorgi
Nýir tímar! 16:40 - 18:20
Þriðjudag og fimmtudag
Uppl síma: 895 9016 - so@hive.is
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti húsgögn
ÚTSÖLULOK 20-80% AFSLáTTUR
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16