Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 84

Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 84
 31. janúar 2009 LAUGARDAGUR44 folk@frettabladid.is Sölvi Óskarsson, eigandi tóbaksverslunarinnar Bjarkar, hefur höndlað með tóbak í hálfa öld. Hann merkir breyttar reyk- ingavenjur landsmanna í kreppunni. „Pípan sækir í sig veðrið. Og svo er miklu meira rúllað í dag en var fyrir nokkrum árum,“ segir Sölvi Óskarsson í tóbaksversluninni Björk. Sígarettur hafa snarhækkað í verði og nú í kreppunni líta reyk- ingamenn til þess. Sé miðað við að reykingamaður reyki pakka á dag þá kostar það hann á mánuði um tuttugu þúsund krónur miðað við að pakkinn kosti 700 krónur. Að sögn Sölva nota pípureykinga- menn um eitt bréf til eitt og hálft bréf á viku. Píputóbaksbréf kost- ar frá eitt þúsund upp í fimmt- án hundruð krónur. Miðað við að menn haldi sig við eitt bréf á viku má ná kostnaðinum niður í fjögur þúsund á mánuði þannig að þarna getur munað verulega. Sölvi segir reyndar erfitt að setja upp eitthvert reiknilíkan. Svo mismunandi séu reykingavenj- ur hvers um sig. „Svo rúlla menn miklu meira í dag en var fyrir nokkrum árum. Þetta kemur í bylgjum en Pólverjarnir sem hing- að komu reykja mikið. Þeir rúlluðu sínar sígarettur sjálfir. Einnig er svo með námsfólk sem hefur verið í Mið-Evrópu og jafnvel Bretlandi, það kemur með þessar venjur og sér sér hag í að rúlla sínar eigin sígarettur. Það verður ódýrara.“ Sjálfur reykir þessi þekktasti tóbaksölumaður landsins ekki. Hefur ekki gert í fjörutíu ár. „Ég varð að hætta þessu. Ég reykti í tíu ár. Frá sextán ára aldri. Lond- on Docks pakkinn af vindlum var búinn fyrir kvöldmat. Ef ég fór svo að horfa á fótboltaleik, spila bridge eða tefla þá fóru fjórir vindl- ar í viðbót að kvöldinu. Það gekk ekki,“ segir Sölvi. Hann sér ekk- ert athugavert við það að afgreiða aðra með tóbak aðspurður og spyr á móti hvort sá sem afgreiðir í apó- teki þurfi að nota öll þau lyf sem hann afgreiðir aðra með. Fyrir þremur árum vann Sölvi mál sem fór fyrir hæstarétt. Sölvi þarf ekki lengur að fela varning sinn. Hann segir það til marks um tvískinnung eins og til dæmis er í stórmörkuðum þar sem tóbakspakki má ekki sjást en við kassana er meðvitað raðað sælgæti til þess fallið að æra börnin. „Svo eru heilbrigðisyfirvöld að ærast vegna offitu landsmanna.“ Sölvi hefur nú selt pípur og varning tengdan neyslu tóbaks í tuttugu og fimm ár í Bankastræt- inu þar sem Björk er. Og er hafsjór af fróðleik um pípureykingar sem honum finnst merkilegar. Þannig er til dæmis ekki sama hvort menn reykja bogna pípu eða beina. Þeir þóttu ómarktækir ævintýramenn sem reyktu bogna pípu og var vísað til Edwards Heath fyrrum forsætisráðherra Bretlands með það, en hann sást aldrei nema með beina pípu. jakob@frettabladid.is Reykjarpípan sækir í sig veðrið SÖLVI ÓSKARSSON Ekki er sama hvort pípan er bogin eða bein segir Sölvi – sem sjálfur hefur ekki reykt í 40 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Fjögur þúsund manns sóttu þær tíu myndir sem voru sýndar á frönsku kvikmyndahátíðinni sem hefur nú lokið göngu sinni í Háskóla- bíói. Tvær myndir stóðu upp úr á hátíðinni, Skólabekkurinn og Ref- urinn og barnið eftir Luc Jaqu- et, því um 1.200 manns sáu hvora mynd. Þessar tvær myndir verða báðar sýndar áfram um helgina vegna fjölda áskorana. Myndirnar á hátíðinni voru allar á frönsku en í þetta skiptið kom ein frá Belgíu og ein frá Kanada. Dagskráin hefur greinilega fall- ið í góðan jarðveg og ljóst að hátíð- in hefur fest sig vel í sessi hér á landi. Sú franska vinsæl VELJUM ÍSLENSKT Fjármálaráðgjöf fyrir þig Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000 eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings. A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið > INNBROT HJÁ WINEHOUSE Brotist var inn á heimili söngkonunnar Amy Winehouse í London á dögunum og stolið þaðan munum að verðmæti um tveggja og hálfrar milljónar króna. Meðal þess sem hvarf var flatskjár og fimm gítarar. „Sumir af gíturunum voru ómetanlegir sé miðað við til- finningalegt gildi þeirra. Íbúðin er í slæmu ástandi. Hún hafði ný- lega verið þrifin til að undir- búa heimkomu hennar,“ sagði heimildarmaður. Idol-sigurvegarinn fyrrverandi Kelly Clarkson hefur sett nýtt met með því að stökkva hæst allra á bandaríska Billboard-vinsældarlistanum, eða upp um 96 sæti. Lag hennar, My Life Would Suck Without You, fór úr 97. sæti beint á toppinn eftir að það var keypt 280 þús- und sinnum í stafrænni útgáfu sína fyrstu viku á lista. Vegna árangursins hefur útgáfu- fyrirtæki hennar ákveðið að gefa plötu hennar, All I Ever Wanted, út viku fyrr en ella. Þetta nýjasta lag Clarkson er það fyrsta sem fer á toppinn í Bandaríkjunum síðan fyrsta smáskífulag hennar, A Moment Like This, kom út árið 2002. Clarkson setti met Emily Blunt og Jason Segel eiga nú í samningaviðræðum um að leika í ævintýramyndinni Gúlliver í Putalandi sem er byggð á sígildri sögu Jonathan Swift. Gaman- leikarinn Jack Black hefur þegar samþykkt að leika aðalhlutverkið og leikstjóri verður Rob Letterman sem hefur áður sent frá sér teikni- myndirnar Shark Tale og Monsters vs. Aliens. FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.