Fréttablaðið - 31.01.2009, Blaðsíða 61
Fjölskyldan 5
tíma
kkar
knuð eftir morgunhvíldina. Á myndinni eru
Tvíburakerra og laus stóll
En hvernig gengur svo venjuleg-
ur dagur fyrir sig? „Fyrstu tvo
daga vikunnar erum við heima hjá
Hugrúnu og Guðjóni, við erum enn
að finna út úr því hvernig best er
að haga miðvikudögunum en síð-
ustu tvo dagana erum við heima
hjá okkur,“ segir Sigurgeir. Svo
eru vaktaskipti hjá foreldrunum í
hádeginu. Til að gera gæsluna auð-
veldari fengu þau lánaða tvíbura-
kerru sem gerir þeim þá kleift að
fara út að labba með bæði börnin.
Barnastóll sem festa má á venjuleg-
an stól og nota við matargjafir geng-
ur svo á milli heimila.
Þau mæla algjörlega með þessu
fyrirkomulagi ef fólk hefur tök á
vegna vinnu, en hvað skyldi vera erf-
iðast? „Það er erfiðast að klæða þau
bæði í einu og koma þeim í svefn,“
segir Sigurgeir en bæði börnin sofa
enn tvo dúra á dag. „Svo virðist það
reyndar alltof oft vera þannig að
bæði kúka í einu með tilheyrandi
stressi,“ bætir Hugrún við.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/G
VA
Foreldrar eiga samanlagt rétt á níu
mánaða fæðingarorlofi og eftir að því
lýkur og áður en börn komast að á
leikskólum þarf að brúa bilið eftir
öðrum leiðum og kjósa flestir að leita
til dagmömmu eða smábarnaleik-
skóla ef það er í boði. Sumir njóta
góðra ættingja eða hafa sveigjanleg-
an vinnutíma og skiptast á að gæta
barnsins.
Dagvistun smábarna er mun dýrari
en leikskólavist, gjaldið fyrir heils-
dagsvistun er á bilinu 40.000 til um
það bil 60.000. Ef miðað er við að
heilsdagsvistun kosti um 50.000
þurfa foreldara að vinna sér inn um
70.000 til þess að greiða gjaldið. Það
getur því verið allt eins hagkvæmt, ef
fólk er ekki í fullu starfi, að hafa
barnið heima hafi fólk áhuga á því.
Við það bætist að Reykjavíkurborg
býður foreldrum 35.000 á mánuði þar
til börn verða tveggja ára
gömul ef foreldrar nýta
ekki aðra niðurgreidda
þjónustu. Önnur sveitarfé-
lög hafa boðið upp á svipaðan
kost ef annað foreldri velur að
vera heima.
Lista með upplýsingum um
dagmæður og aðra valkosti er að
finna á skrifstofum sveitarfélaga
og iðulega á vefsíðum þeirra líka.
DAGVISTUN SMÁBARNA