Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 11
LAUGARDAGUR 31. janúar 2009 11
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 70
312 -0,67% Velta: 191 milljónir
MESTA HÆKKUN
FØROYA BANKI 1,30%
ALFESCA 1,28%
MESTA LÆKKUN
EIMSKIPAFÉLAGIÐ 20,00%
BAKKAVÖR 3,63%
MAREL FOOD SYST. 1,23%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 3,95 +1,28% ... Atlantic
Airways 165,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 552,00 +0,00% ...
Bakkavör 1,86 -3,63% ... Eik Banki 91,50 +0,00 ... Eimskipafélagið
1,00 -20,00% ... Føroya Banki 116,50 +1,30% ... Icelandair Group
13,41 +0,00% ... Marel Food Systems 64,40 -1,23% ... SPRON 1,90
+0,00% ... Straumur-Burðarás 1,68 -1,18% ... Össur 95,20 -0,42%
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR:
Ákvörðun um stýrivexti hér á
landi snýst ekki lengur um aðhald
við innlenda eftirspurn, að sögn
Arnórs Sighvatssonar, aðalhag-
fræðings Seðlabanka Íslands.
Arnór kynnti sérfræðingum
greiningardeilda og fjölmiðlum
verðbólguspá bankans eftir að til-
kynnt var um óbreytta stýrivexti
á fimmtudag.
„Framundan er gríðarlegur
samdráttur og um leið ljóst að
tengslin á milli stýrivaxtanna og
gengisins hafa breyst verulega
vegna hafta á fjármagnshreyf-
ingar og skilaskildunnar og má
því spyrja hvers vegna þurfi að
halda stýrivöxtum svo háum.“
Arnór segir að gjaldeyrishöftin
eigi að afnema í áföngum á þessu
ári og næsta og af því þurfi stýri-
vextir nú að taka mið. „Ekki er
fyllilega ljóst enn hvernig stað-
ið verður að því að losa þessi höft
eða hversu hratt það verður gert,“
segir hann, en bætir um leið við að
það sé meðal þess sem farið verði
yfir með sendinefnd AGS eftir
mánaðamótin. - óká
Höft hafa áhrif
á stýrivextina
Í SEÐLABANKANUM Arnór Sighvatsson,
aðalhagfræðingur Seðlabankans, kynnir
verðbólguspá Seðlabankans. Ekki varð
af reglubundnum kynningarfundi banka-
stjórnar Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Mikill sársauki fylgir því að koma fram
fyrir þjóðina og segja að þessir fjármun-
ir hafi tapast,“ segir Gylfi Sigfússon, for-
stjóri Eimskips.
Fyrirtækið tapaði 648 milljónum evra á
síðasta ári. Það jafngildir 96 milljörðum
króna og slær FL Group (nú Stoðum) niður
í annað sæti yfir verstu afkomu íslensks
fyrirtækis á einu ári. FL Group tapaði 67
milljörðum króna í hittiðfyrra.
Til samanburðar nam tap Eimskipa-
félagsins 9,1 milljón evra árið á undan.
Tap af áframhaldandi starfsemi nam 182
milljónum evra í fyrra samanborið við
12,8 milljóna hagnað árið á undan. Þá
námu tekjurnar 718,9 milljónum evra,
sem er 5,6 prósenta aukning milli ára.
Þar af nemur tapið á fjórða ársfjórðungi
einum, 489 milljónum evra, 72 milljörðum
króna. Afkomutölur Eimskips einkennast
af viðamikilli uppstokk-
un í fyrra. Eignarhlut-
ur í breska dótturfélag-
inu Innovate, sem nú er
gjaldþrota, var afskrif-
aður úr bókum Eim-
skips um mitt síðasta ár
ásamt eignarhlut í kan-
adísku frystigeymslu-
samstæðunni Atlas Ver-
sacold, sem hefur verið í söluferli síðan í
fyrra. Í ofanálag féllu ábyrgðir á félag-
ið vegna bresku ferðaskrifstofunnar XL
Leisure.
Fjárfestar hafa sýnt Atlas mikinn áhuga
og reiknar Gylfi með að sjá tilboð í næstu
viku. Stefnan er sett á að ljúka söluferli í
lok mars og fara að því loknu í uppgjör
á skuldasöfnun liðinna ára og ganga til
samninga við lánadrottna. Áætlað er að
endurskipulagningu ljúki í lok maí.
Gylfi segir nýtt og sterkara félag koma
undan breytingunum, með stuðningi
núverandi lánadrottna og nýjum hluthöf-
um, sem einbeiti sér að skipaflutningum,
rekstri sem hafi skilað félaginu mestu
fram til þessa. - jab
GYLFI SIGFÚSSON
Mettap hjá óskabarni þjóðarinnar
AFKOMA EIMSKIPS*
Liðir Hagnaður/-tap
2008 2007
Tekjur 718,9 680,3
Gjöld -662,8 -619,0
Afskriftir -38,8 -29,7
Virðisrýrnun eigna -100,6 00,0
Fjármagnsliðir -93,9 -21,4
Hagnaður/-tap f. skatt -177,3 10,3
Hagnaður/-tap -648,4 -9,1
* í MILLJÓNUM EVRA
Krónan styrktist um 0,5 prósent í
gær og endaði vísitala hennar í 194
stigum. Hún hefur nú styrkst um
13,8 prósent á hálfum mánuði.
Talsverður munur er þó sem
fyrr á skráningu á gjaldeyrismark-
aði hér og hjá Evrópska seðlabank-
anum. Bandaríkjadalur er skráð-
ur hér á tæpar 113,9 krónur en hjá
evrópska bankanum á 225 krónur.
Þá stendur evran í 146 krónum hér
en 288,5 krónum úti. Munurinn
nemur 97 prósentum, sem er svip-
að og á öðrum gjaldmiðlum.
Ástæðan fyrir muninum skýr-
ist af mjög litlum viðskiptum með
krónur á erlendum gjaldeyrismörk-
uðum og höftunum hér. Munurinn
hverfur væntanlega þegar krónan
flýtur á ný, samkvæmt upplýsing-
um frá gjaldeyrisborði Glitnis. - jab
Gengi krónu
styrkist ennþá
PENINGARNIR TALDIR Íslenska krónan
er talsvert ódýrari á gjaldeyrismörkuðum
í Evrópu en hér heima.
Starfsfólk Landsbankans býður fram krafta sína í breyttu landslagi. Við
ríkjandi aðstæður getur verið brýnt að endurskipuleggja fjármálin. Teljir þú
þig þurfa á ráðgjöf að halda viljum við bjóða fram aðstoð okkar. Við förum
með þér yfir möguleg úrræði.
Markmiðið er að öðlast skýra yfirsýn yfir fjárreiður heimilisins og treysta
fótfestuna.
F J Á R M Á L H E I M I L I S I N S
• Greiðslujöfnun
• Lengja lánstíma
• Skuldbreyta vanskilum
• Fresta afborgunum vegna
sölutregðu
• Fresta greiðslu afborgana
og vaxta
LAUSNIR SEM GÆTU HENTAÐ ÞÉR
STÖÐUMAT | HE IMIL ISBÓKHALD | RÁÐGJÖF
Pantaðu ráðgjöf á landsbanki.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000.