Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 13
LAUGARDAGUR 31. janúar 2009 13 UMRÆÐAN Hjörleifur Jakobsson skrifar um bankahrunið Sem fyrrverandi stjórnarmanni í Kaupþingi blöskrar mér hin ósanngjarna umræða að undan- förnu um málefni bankans. Mark- visst hefur verið lekið óljósum og misvísandi upplýsingum til fjöl- miðla til að þyrla upp moldviðri og lævísar smjörklípur ganga ómeltar á milli fjölmiðla og almennings. Ég er hins vegar fullviss sem fyrr um að þegar að rykið sest og umrædd mál hafa verið rannsökuð ofan í kjölinn, muni hið sanna koma í ljós. Ég sakna hins vegar dýpri og upplýstari umræðu um ástæð- ur þess að við Íslendingar erum í svona slæmum málum og hvern- ig hinn raunverulegi kostnaður þjóðarinnar er til kominn. Slæm staða þjóðarinnar Að mínu mati eru það einkum fimm atriði sem valda því að staða okkar sem þjóðar er jafn slæm í dag og raun ber vitni: 1. Íslenska krónan, peninga- málastefna Seðlabankans og fram- kvæmd hennar undanfarin ár. Það virðist nú fallið í gleymskunnar dá að flestir hagfræðingar spáðu því að þessi stefna myndi óhjákvæmi- lega ein og sér leiða til kreppu á Íslandi og skerðingar lífskjara. Nú er auðvelt að kenna heimskreppu og hruni bankanna um öll okkar vandamál. Því miður er þetta ekki svona einfalt. Íslenskt hagkerfi var í stórkostlegum vandræðum fyrir vegna þess að þjóðin hafði búið við falskan kaupmátt árum saman og var búin að eyða langt um efni fram. Þetta á við um alla: ríki, sveitarfélög, fyrirtæki og almenning. Einstaklingar og fyrir- tæki voru í raun þvinguð til að taka erlend lán á sínar íslensku eignir með velþóknun Seðlabankans og síðan eru menn gagnrýndir fyrir að „fara á móti krónunni“ þegar þeir vilja frekar hafa lánin sín í íslensk- um krónum! 2. Íslensku bankarn- ar uxu of hratt og voru of stórir sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Stuðningur Seðlabankans við við- skiptabankana var lítill. Viðbrögð hans við stækkun bankanna var að stinga hausnum í sandinn og sama átti við þegar að kreppti. 3. Alþjóðlega fjármálakreppan, nú nefnd heimskreppa. Fróðlegt er að lesa skýrslu IMF um framtíðar- horfur einstakra landa. 4. Aðgerðarleysi Fjármálaeftir- litsins og viðskiptaráðuneytis við óábyrgri útþenslu Icesave á reikn- ing þjóðarinnar. 5. Aðferðafræðin við þjóðnýtingu Glitnis og setning neyðarlaganna. Sagan mun sýna að þessi nálgun var stórkostleg mistök og lykilat- riði í falli bankanna. Athyglisvert er að skoða hvernig seðlabanka- stjóri gjörsamlega vanmat stöð- una og áhrif aðgerða sinna eins og ágætlega er fjallað er um í Morg- unblaðinu og Fréttablaðinu sl. fimmtudag. Tap þjóðar og almennings Athyglisvert er að skoða hvert menn beina spjótum sínum í dag og hins vegar hverjir eru ábyrgir fyrir tapi þjóðar og almennings. Þar er lítil samsvörun. Hluthafar. Hluthafar bankanna hafa tapað öllu og hluthafar ann- arra fyrirtækja tapað miklu. Mikil lækkun hlutabréfa er því miður ekki séríslenskt fyrirbæri. Hlut- hafar eiga ekki að biðja um samúð. Þeir taka áhættu; tapa stundum en hagnast vonandi oftar. Viðskiptavinir bankanna. Útlit er fyrir að allar innistæður í Kaup- þingi fáist greiddar öfugt við inni- stæður þeirra sem lögðu sitt fé t.d. inn í dótturbanka annarra íslenskra banka. Einnig er áhugavert að skoða afkomu lífeyrissjóða í vörslu bankanna. Persónulega hef ég lagt minn viðbótarsparnað í Frjálsa 3 sem er varfærnasta sparnaðar- leiðin hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum sem er í rekstri Kaupþings. Þessi sparnaðarleið gaf viðskiptavinum sjóðsins 23,1% jákvæða ávöxtun fyrstu 11 mánuði 2008 meðan sam- bærilegir sjóðir annarra íslenskra banka gáfu verulega neikvæða ávöxtun. Þar munar tugmilljörðum í ávöxtun fyrir íslenska launþega. Ávöxtun peningamarkaðssjóða var einnig áberandi best hjá Kaupþingi þrátt fyrir sérstaka innspýtingu inn í sjóði Glitnis og Landsbankans með velþóknun ráðamanna. Þjóðin. Tjón þjóðarinnar er margvíslegt. ■ Eftir stendur stór erlend skuld vegna Icesave sem útlit er fyrir að þjóðin þurfi að greiða. Endan- legur reikningur er ókominn en ég er hræddur um að hann verði á bilinu 300-500 milljarðar króna. Þjóðin mun hins vegar ekki þurfa að borga eina einustu krónu vegna Kaupþing Edge. ■ Ónýtur gjaldmiðill. Erlendir fjárfestar eiga nú hundruð millj- arða króna á Íslandi sem þeir vilja losna við og kaupa evrur í staðinn. Þetta myndar tappa í gjaldeyriskerfinu sem er tilkominn vegna peningamálastefnunnar þegar fjármunir soguðust til Íslands vegna fárán- lega hárra vaxta í boði Seðlabanka og ríkisstjórn- ar. Þessi tappi verður ekki leystur nema með áfram- haldandi gjaldeyrishöftum eða að þjóðin noti lánið frá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum og auki þannig vaxtagjöld þjóðarinnar um tugi milljarða á ári. Lífeyrissjóðirnir gætu hugsanlega komið að lausn- inni með að selja hluta af erlendum eignum sínum í þessu skyni. ■ Tap Seðlabankans af lánum til íslenskra fjármálafyrirtækja verð- ur afgreitt með prentun peninga, tilheyrandi verð- bólgu og veikingu krón- unnar. Dæmi eru um að Seðlabankinn hafi lánað einstökum bönkum upp- hæðir sem nema þrettán- földu eigin fé viðkomandi banka! ■ Endurfjármögnun við- skiptabankanna krefst útgjalda en vonandi fær þjóðin þann kostnað endurgreidd- an síðar við sölu þeirra eða í formi arðgreiðslna. ■ Eitt stærsta tjónið er þó að mínu mati sá missir sem bankaumhverf- ið er fyrir allan þann mannauð sem þar starfaði og í þeim ráðgjafafyr- irtækjum sem þjónuðu þessum fyrirtækjum. Þau þekkingarstörf koma því miður ekki aftur í bráð. Fýsir fjölmiðla ekki að fjalla um framangreint? Þetta er það sem við þurfum að lifa við næstu árin. Eitt af því fyrsta sem ég lærði í stjórnun er það verklag að búta stór verkefni niður í smærri; þú gleyp- ir ekki fílinn í einum bita. Þannig er það líka með vandamál þjóðar- innar í dag. Ástæður vandans eru margþættar eins og hér hefur verið tæpt á. Full ástæða er til að rann- saka öll þau mál ofan í kjölinn. Ég fagna slíkri rannsókn og hef trú á að hluthafar og stjórnendur Kaup- þings komi sterkir frá þeim leik. Á sama hátt er uppbyggingin stórt verkefni þar sem mikilvægt er að leiðin sé rétt vörðuð. Höfundur sat í stjórn Kaupþings. Er rógur lævís flótti frá raunveruleikanum? HJÖRLEIFUR JAKOBSSON Kynntu þér úrræðin Starfsfólk Kaupþings aðstoðar þig við allt sem tengist fjármálum heimilisins og breyttum aðstæðum og leitar hentugra úrræða fyrir þig ef þarf. Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband í síma 444-7000 eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings. ÍS L E N S K A S IA .I S K A U 4 45 39 0 1/ 09 Fjármálaráðgjöf fyrir þig • Heimilisbókhald • Stöðumat • Netdreifing/útgjaldadreifing • Úrræði í greiðsluerfiðleikum • Sparnaðarleiðir • Lífeyris- og tryggingamál
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.