Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 30

Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 30
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is UPPLIFUN Í STOKKHÓLMI Gamla Stan með Bellman í æðum Elsti bæjarhlutinn, þröng stræti og andrúmsloft frá 17. og 18. öld, skemmtilegar smábúðir, gjafavöru- búðir, hver kráin annarri skemmtilegri og margir veitingastaðir. Skoðaðu Stóra torgið og kannski Nóbels- safnið. Tilvalið að setjast, eins og mörg önnur skáld hafa gert, inn á Grámunkinn og láta andann koma yfir sig. Vasasafnið Í 333 ár lá herskip Gústafs annars Adolfs á botninum í hafnarmynni Stokkhólmsborgar. Árið 1961 tókst mönnum svo að bjarga þessu stórkostlega skipi upp á land og hafa reist í kringum það safn sem hefur meira aðdráttarafl á gesti borgarinnar en nokkurt annað safn í Stokkhólmi. Gefið ykkur góðan tíma. Einstaklega skemmtilegt, líka fyrir börnin. Skansen Byggðasafn fyrir alla Svíþjóð og dýragarður með „sænskum“ dýrum. Gaman að fara með börnin þangað. Heimsókn á Skansen er dagsferð og skemmtileg upplifun fyrir fyrir unga sem aldna. Strandvägen Hann tengir saman miðborgina og er ein skemmtilegasta gönguleiðin í borginni. Við Strandvägen er hægt að vippa sér um borð í bát og sigla út á einhverja af 24.000 eyjunum í Skerjagarðinum. Kulturhuset við Sergelstorg Það er nauðsynlegt að skoða. Farið á milli hæða og margra menningar- heima á örstuttum tíma. Drottningholm Hér var áður sumarhöll Svíakónga en sænsku konungshjónin hafa búið hér allt árið síðan 1981. Bygging hallarinnar hófst 1662. Í dag er svæðið friðað og á heimsminjaskrá UNESCO. Sleppið ekki að skoða leikhúsið sem er óbreytt frá 1766. Flug og gisting í 2 nætur frá 49.900 kr. á mann í tvíbýli á Freys Hotel *** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Reykjavík – Stokkhólmur frá 14.900 kr. Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er daglega allt árið um kring. Upplifun rétt fyrir utan Stokkhólm sk . AUKINN HRAÐI og þægindi með netinnritun Viðskiptavinir Icelandair geta nú innritað sig í gegnum Netið allt að 22 klukkustundum fyrir áætlaða brottför. Í netinnritun velurðu sæti og prentar út þitt eigið brottfararspjald. Þá þarftu ekki að fara í gegnum hefðbundna innritun og sparar tíma. Það er því tími fyrir meiri morgunmat, meira kaffi, meiri vinnu eða einfald- lega aðeins meiri svefn. Nánari leiðbeiningar eru á www.icelandair.is NÝJAR REGLUR um komu til Bandaríkjanna Ef þú ert á leið til Bandaríkjanna skaltu hafa í huga að ferðamönnum er nú skylt að sækja um rafræna ferðaheimild. Það er á ábyrgð farþega að sækja um ESTA skráningu fyrir brottför og er æskilegt að sótt sé um ferðaheimild- ina á vefnum minnst þremur sólarhringum (72 klst.) fyrir brottför. Leyfið gildir í tvö ár en fyrir hverja ferð þarf að uppfæra ferðaupplýsing- ar. Nánari upplýsingar er að finna á www.icelandair.is og www.usa.is NÝIR ÁFANGA- STAÐIR í Noregi og Þýskalandi Tveir nýir áfangastaðir bætast við hjá Icelandair með sumaráætlun félagsins. Um er að ræða borgina Düsseldorf í hjarta Þýskalands við bakka Rínar en borgin er miðstöð viðskipta, menningar og tísku. Í Noregi bætist við nýr áfangastaður: Stavanger. Borgin er oft kölluð „olíuhöfuðborg“ Noregs en það gefur kannski ekki rétta mynd af borginni sem er fögur norðurlanda- borg með mjóum strætum milli hvítra húsa. Í næsta nágrenni er síðan ægifögur náttúra Noregs. ÍSLENSKT EFNI FYRIR BÖRNIN Í nýju afþreyingarkerfi um borð í flugvélum Icelandair er lögð áhersla á vandað barnaefni. Meðal þess sem Icelandair býður börnunum upp á er sagan um Litlu lirfuna ljótu og Latibær og er hægt að velja um íslensku eða ensku sem tungumál. Allir þekkja Latabæ og Litla lirfan ljóta eftir Gunnar Karlsson hefur hrúgað að sér verðlaunum á síðustu misserum. Auk þess er fjöldi Verslaðu YFIR ATLANTS- HAFINU Saga Shop er ein af vinsælustu verslunum lands- ins og alveg örugglega sú sem fer víðast. Sífellt fleiri hafa líka nýtt sér netverslun Saga Shop, www.sagashop.is, til að kaupa vörur sem fólk fær síðan afhentar þegar það flýgur með Icelandair eða biður vini eða fjölskyldu um að taka með sér. „Áfangastaðurinn er aldrei staður heldur ný sýn á heiminn.“ Eitthvað á þessa leið útleggjast orð ameríska rithöfundarins Henry Miller. Það eru örugglega margir sammála þessum orðum skáldsins; flest höfum við þessa reynslu af því að koma til annarra landa. Ferðalög eru meira en ferð milli staða. Upplifunin er í mörgum tilfellum bæði ástæða og grundvöllur ferðalaga. Við höfum þörf fyrir að skipta um umhverfi reglulega. Ekki til þess að flýja hversdagsleikann heima heldur miklu frekar til að bæta við reynslu okkar og þekkingu. Tæknin hefur gert okkur kleift að skrásetja ferðalög okkar betur og betur. Heilu myndasöfnin byggjast upp með minningum okkar frá stöðum víðs vegar um heiminn. Við tökum myndir af börnunum okkar á Times Square í New York, á Gamla Stan í Stokkhólmi og í mörgum albúmum leynast eflaust þó nokkrar myndir af pörum á bökkum Signu. Allt er þetta skrásett. Þeir eru eflaust færri sem skrásetja heimkomuna á sama hátt. Við könnumst samt við tilfinninguna að koma heim, finna hressandi andvara/gust/rok þegar stigið er út úr Leifsstöð, sjá Reykjanesfjallgarðinn sem er á einhvern hátt alltaf jafn exótískur og frelsandi. Á síðustu árum hafa ferðavenjur Íslendinga breyst. Ferðalög hafa orðið stærri hluti af lífi okkar. Við hjá Icelandair teljum að ferðalög séu komin á þann stall hjá íslensku þjóðinni að þau séu mikilvægur hluti af menntun og menningu okkar. Ferðalög gera okkur á einhvern hátt stærri. Þau kynna okkur fyrir nýjum siðum og nýjum viðhorfum sem aftur veita okkur nýja sýn á okkar eigið land. „Áfangastaðurinn er aldrei staður heldur ný sýn á heiminn.“ Við erum sammála Henry Miller og höldum áfram að bjóða upp á góða þjónustu og þægindi fyrir viðskiptavini okkar. Flugferðin er hluti af ferðalag- inu og við viljum gera hana sem ánægjulegasta. Næstu vikurnar geta lesendur Fréttablaðsins gengið að umfjöllun um ferðalög og tilboð Icelandair vísri í laugardagsútgáfu blaðsins. Sjáumst um borð. Tími til að ferðast annarra barnaþátta en með ensku tali. Flug til Stokkhólms gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta. Vildarklúbbur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.