Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 31

Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 31
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is MÍN AMSTERDAM 01 02 03 Hverfið sem kallast „Strætin 9“ sem er á milli Singel og Prinsengracht og markast af Raadhuisstraat til hægri og Leidsegracht til vinstri þegar gengið er frá Damtorgi. Þetta er blanda af íbúðarhverfi, bókabúðum, kaffihúsum, alls konar sérbúðum (t.d. Tannburstabúðin), tískuverslunum og verslunum með notaðan fatnað. Þarna er einnig „Pompadour“ í Huidenstraat 12, en þar fæst besta konfektið í borginni og gott að fá sér kaffi og með því eftir gönguferð um hverfið Hurenkind. Allir vita um stóru, frægu söfnin en færri um öll hin söfnin. Hér er t.d. „Tassen- museum Hendrijke“ á Herengracht 573 (fyrir aftan Rembrandtsplein) en þar má kynnast sögu handtöskunnar í 500 ár. Svo er „Brilmuseum“ eða Gleraugnasafnið, gleraugnasagan í 700 ár, í Gasthuismolensteeg 7, („Strætin 9“) og Túlipanasafnið á Prinsengracht 112. Í Hortus Botanicus (grasagarðinum) á Plantage Middenlaan 2a er gott að slaka á. Fiðrildahúsin eru stórmerki- leg. Í garðinum er líka kaffihús og hægt að eyða heilum degi þarna í ró og friði innan um framandi plöntur og fiðrildi. 04 05 06 Vondelpark, sem er rétt hjá Leidseplein, er einn af þessum friðsælu stöðum í borginni. Eftir góðan göngutúr um garðinn og kannski eftir að hafa faðmað nokkur tré er yndislegt að setjast á „Vertigo“, veitingastaðinn í miðjum garðinum sem er til húsa í gamla kvikmyndasafninu og heitir í höfuðið á samnefndri kvikmynd eftir Hitchcock. Þeir sem hafa áhuga á byggingalist ættu að fara í „Tuschinski“ en það er kvikmyndahús, byggt í jugendstíl, á Reguliersbreestraat rétt hjá Rembrandtsplein. „Begijnhof“ er ein af þessum friðsælu vinjum í miðri borginni; við Spui (farið í gegnum dyr frá torginu inn í garðinn). Gott að setjast þar niður. Opið frá kl. 8–17. 07 Góð gönguferð er alltafhressandi. Ég mæli með að ganga frá Waterlooplein meðfram ánni Amstel (sem Amster- dam er kennd við) að Magere Brug sem er ein af elstu hengibrúm í Amsterdam og er fyrsta brúin yfir ána. Þarna eru skipastigar í ánni, ein af hugvitsamlegum uppfinningum Hollendinga sem alltaf hafa þurft að 08 Á „Hotel American“ hjáLeidseplein er alltaf gott að koma, lesa blöðin, fá sér kaffibolla og láta sig dreyma. Þar trúlofaðist Mata Hari forðum daga og eflaust margir aðrir. Þarna voru þorrablót Íslendingafélagsins haldin og … ekki söguna meir. kljást við vatnið. Þegar gengið er yfir brúna tekur Kerkstraat við. Á horninu á Kerkstraat og Utrechtsestraat er „Cafe Krom“, ein af bestu krám í borginni þar sem menn leggja metnað sinn í að hafa bestu hollensku veigarnar á boðstólum. Á Utrechtsestraat 40 er plötu- og cd-búðin „Concerto“ með mjög gott úrval af tónlist. Beint framundan er svo Rembrandtsplein og blóma- markaðurinn. New King Zeedijk 115-117 (Nieuw Markt) Tel: 020-6252180 www.newking.nl/ Kínverskur staður rétt hjá Centraa Station. Mjög góður matur, mikill erill og best að panta ef stór hópur ætlar að borða saman. Verðið mjög gott. Veitingastaðir Panini Vijzelgracht 3-5 Tel: 020-6264939 www.resturantpanini.nl Mjög góður ítalskur matur. Fjöl- skyldurekinn og vinalegur staður. Góður vínlisti og ítalskir kokkar. Rólegur staður og hægt að hafa rómantík með ef vill. Verð mjög gott. Vinkels, Dylan Hotel Amsterdam Keizersgracht 384 Tel: 020-5302010 www.vinkels.com/ Lúxusstaður með kertaljósum og matseðil á franskri línu. Hægt er að skarta sínu fínasta pússi í þessu glæsilega hóteli. Góður vínlisti. Mjög dýrt en gott. Rainari Prinsengracht 252 Tel: 020-6249791 Alsírskur staður, agnarlítill með fáum borðum. Gott að fá sér hádegisverð en betra að panta borð fyrir kvöldverð. Fágaður en einfaldur matseðill, fiskur, kjöt og grænmetis- réttir, og kokkurinn kemur og spyr hvernig hver og einn vill fá matinn sinn eldaðan. Enginn bjór en ágætis vínlisti og gott verðlag. Söfn í Amsterdam – sem þið verðið að skoða Rijksmuseum – Ríkislistasafnið Stærsta listaverkasafn í Hollandi, fjársjóður af hollenskri myndlist. Van Gogh safnið Stærsta safn af verkum eftir Van Gogh, 200 málverk, 500 skissur o.fl. Amsterdams Historisch Museum – Sögusafn borgarinnar Eftirminnilegt ferðalag til fortíðarinnar. Stedelijk Museum – Borgarlistasafnið Gott safn af nútímalist. Heimskunn verk eftir t.d. Malevich, Picasso, Mondriaan, De Kooning and Rietveld. Hús Önnu Frank Ykkar bíður einstök og viðkvæmn- isleg upplifun í húsinu við Prinsen- gracht þar sem gyðingastúlkan Anna Frank hélt dagbók sína. Rembrandtssafnið Hús frá 17. öld þar sem hann bjó, hinn heimskunni málari Rembrandt van Rijn. Allt er nánast með sömu ummerkjum og þegar málarinn lifði og starfaði í húsinu. Flug og gisting í 3 nætur frá 75.900 kr. á mann í tvíbýli á Mövenpick Amsterdam**** Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar, gisting og morgunverður. Flug til Amsterdam gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta. Vildarklúbbur Reykjavík – Amsterdam frá 17.300 kr. Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum. Flogið er allt að 9 sinnum í viku til Amsterdam. Guðrún Þorkelsdóttir listamaður

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.