Fréttablaðið - 31.01.2009, Side 50
31. janúar 2009 LAUGARDAGUR10
Starfsfólk óskast
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum auglýsir eftir vönu
starfsfólki í snyrtingu og pökkun í frystihúsi félagsins.
Upplýsingar gefur Þór Í. Vilhjálmsson, starfsmannastjóri í
síma 488 8010 eða 897 9615.
Snyrtifræðingur óskast á nýstandsetta og vel
staðsetta snyrtistofu á höfuðborgarsvæðinu.
Vinnutími eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafi ð
störf sem fyrst. Aðeins metnaðarfull og dugleg manneskja
kemur til greina. Á sama stað er laus aðstaða fyrir nagla-
fræðing, nuddara og fótaaðgerðafræðing.
Áhugasamir sendi inn umsókn á netfangið:
snyrtistofan@gmail.com
Starf organista í Skálholti
Laust er til umsóknar starf organista í Skálholti. Starfi ð er
samstarfsverkefni Skálholtsstaðar og kirkjusókna í Skálholts-
prestakalli. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni:
Organisti í Skálholti annast orgelleik og kórstjórn vegna
helgihalds Skálholtsstaðar og sókna Skálholtsprestakalls. Auk
þess er þess vænst að organisti hafi frumkvæði að samstarfi og
samþættingu annars tónlistarstarfs í Skálholti og sé reiðubúinn
að annast ákveðin sérverkefni sem tengjast starfi Skálholtsskóla.
Menntunar - og hæfniskröfur:
Áskilin er formleg menntun á sviði kirkjutónlistar, svo sem kant-
orspróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða sambærileg menntun.
Um launakjör fer eftir kjarasamningi FÍO/Organistadeildar FÍH og
launanefndar Þjóðkirkjunnar frá 16. apríl 2008.
Umsóknarfrestur er til 5. mars 2009 og skulu umsækjendur
fyrir þann tíma senda umsóknir sínar ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil til Skálholtsstaðar 801 Selfoss.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri í síma 486 8870
Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í síma 486 8972/899 1787
Kristinn Ólason rektor í síma 486 8870
Egill Hallgrímsson sóknarprestur í síma 486 8860
Skaftárhreppur auglýsir laust til umsóknar starf skipu-
lags- og byggingarfulltrúa / umsjónarmanns tæknimála
hjá sveitarfélaginu.
Um er að ræða nýtt, fjölbreytt starf sem verður mótað nánar
þegar starfi ð hefst.
Helstu verkefni:
• Skipulags- og byggingarfulltrúi Skaftárhrepps
• Umsjón og eftirlit með fasteignum sveitarfélagsins
• Öryggis- og eldvarnaeftirlit
• Umsjón með verklegum framkvæmdum á vegum
sveitarfélagsins
• Umsjón með sorphirðu, vega-/umferðamálum og
veitumálum
• Vinna við stefnumótun, framkvæmda- og kostnaðar-
áætlanagerð í ofantöldum málafl okkum
Hæfniskröfur:
Við erum að leita að áhugasömum einstaklingi með
háskólamenntum og starfsreynslu á sviði byggingarverk-
fræði / byggingartæknifræði, eða með hliðstæða menntun
og reynslu sem uppfyllir skilyrði 48. og 49. greinar skipulags
og byggingarlaga.
Umsóknir sendist skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 15,
880 Kirkjubæjarklaustri.
Umsóknarfrestur er til 20. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veita oddviti eða sveitarstjóri í síma
487 4840 milli kl 10 og 12 virka daga.
Auglýsingasími
– Mest lesið