Fréttablaðið - 31.01.2009, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 31. janúar 2009 11
Áhættumatsnámskeið
fyrir vinnustaði
Samkvæmt nýlegri reglugerð (920/2006) skal gera skrifl ega
áætlun um öryggi og heilbrigði á öllum vinnustöðum.
Áhættumat starfa er hluti af slíkri áætlun.
Vinnueftirlitið heldur námskeið þar sem kennd er aðferð til
nota við gerð áhættumats.
Námskeiðið er ætlað atvinnurekendum, öryggisnefndum,
ráðgjöfum, eftirlitsaðilum og öðrum sem áhuga hafa á að
fræðast um gerð áhættumats.
Næstu námskeið í Reykjavík verða 10. febrúar,
17. mars, 21. apríl og 12. maí nk.
Staður: Ökuskólinn í Mjódd, Þarabakka 3, Rvík.
kl. 13:00 - 17:00
Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins: www.vinnueftirlit.is
Skráning í síma 550 4600 (skiptiborð Vinnueftirlitsins)
eða á netfangið vala@ver.is
www.ferdamalastofa. is
Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Starf forstöðumanns markaðs- og
samskiptasviðs Ferðamálastofu
Ferðamálastofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns
markaðs- og samskiptasviðs
Markaðs- og samskiptasvið annast allt kynningar- og markaðsstarf Ferðamálastofu bæði innan-
lands og utan og heyrir forstöðumaður þess beint undir Ferðamálastjóra.
Um er að ræða 100% stöðu og eru laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Meðal helstu verkefna
- Ábyrgð á starfsemi markaðs- og samskiptasviðs
- Stefnumótun á sviði markaðssetningar ferðaþjónustu
- Umsjón með gerð og eftirfylgni markaðsáætlunar
- Ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd markaðsáætlunar
- Samvinna við aðra aðila sem vinna að markaðssetningu íslenskrar vöru og þjónustu
- Samskipti við hagsmunaaðila innanlands og utan
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi s.s á sviði ferðamála, viðskipta og markaðsfræða
- Framhaldsnám í markaðsfræðum æskilegt
- Reynsla af alþjóðlegu markaðsstarfi
- Þekking og reynsla af ferðaþjónustu og markaðssetningu hennar æskileg
- Reynsla á sviði stjórnunar, stefnumótunar og áætlanagerðar
- Þekking og starfsreynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumálakunnátta æskileg
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Sveigjanleiki og áhugi á að takast á við ný viðfangsefni
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Um er að ræða spennandi starf í þágu vaxandi atvinnugreinar. Ferðamálastofa hefur nýverið farið gegnum stefnu-
mótunar- og endurskipulagningarferli og hyggst mæta nýjum viðfangsefnum með frumkvæði, fagmennsku og
lipurð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri (olof@icetourist.is), en
upplýsingar um starfsemi Ferðamálastofu er að finna á www.ferdamalastofa.is.
Umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2009 og er óskað eftir því að viðkomandi einstaklingur geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil skulu berast með tölvupósti til ferðamálastjóra (olof@icetourist.is) eða á skrif-
stofu Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík og vera merktar starfinu. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Útboð
Verksýn ehf. f.h. Húsfélagsins Krummahólum 2
í Reykjavík, óskar eftir tilboði í verkið
“Krummahólar 2, viðhaldsframkvæmdir”
Helstu magntölur eru:
> Endurnýjun glugga 130 stk.
> Endurnýjun svalahurða 30 stk.
> Endurnýjun opnanlegra gluggahlera 12 stk.
> Klæðning veggfl ata 329 m²
> Málun svalagólfa 181 m²
Útboðsgögn verða afhent hjá Verksýn ehf. Síðumúla 1
í Reykjavík, frá og með mánudeginum 2. febrúar 2009
gegn 5.000.- kr. óafturkræfu gjaldi. Einnig má fá gögnin
send í tölvupósti án endurgjalds.
Tilboði merktu “Krummahólar 2, viðhaldsframkvæmdir”
skal skila til Verksýnar ehf. Síðumúla 1 fyrir kl. 14.00 fi m-
mtudaginn 12. febrúar n.k. og verða tilboð þá opnuð að
viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Verksýn ehf.
Síðumúla 1
108 Reykjavík
www.verksyn.is
STYRKUR TIL
M.Sc. NÁMS Í LÍFTÆKNI
Háskólinn á Akureyri auglýsir eftir meistaranema í verkefnið
„Ljósóháðar sambýlisbakteríur strandfléttna“.
Um verkefnið:
Verkefnið snýst um sameindalíffræðilegar grunn-
rannsóknir á sambýlisörverum strandfléttna. Einnig
verður hugað að hagnýtingarmöguleikum þessarra
óvenjulegu lífvera. Verkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði
Rannís og er gert ráð fyrir að meistaranema sé veittur
fullur framfærslustyrkur í 18 mánuði.
Hæfnikröfur:
Óskað er eftir áhugasömum og dugandi einstaklingi
með B.Sc.-gráðu í sameindalíffræði, örverufræði,
lífefnafræði eða skyldum greinum.
Nánari upplýsingar um verkefni og framfærslustyrk
veitir Oddur Vilhelmsson, oddurv@unak.is
Umsækjendur sendi bréf og ferilskrá fyrir 1. mars n.k. í
tölvupósti eða bréfleiðis til:
Oddur Vilhelmsson
Háskólinn á Akureyri
Borgum við Norðurslóð
600 Akureyri
Sími.: 460 8514
Fax: 460 8999
Tölvupóstfang: oddurv@unak.is
www.unak.is