Fréttablaðið - 31.01.2009, Page 58
● heimili&hönnun
1. Panna úr keramikhúðuðu stáli
fyrir allar gerðir af hellum. Þolir
hvað sem er og haldið hitnar ekki.
Fæst hjá Einari Farestveit og
kostar 18.900 krónur, en 30 pró-
senta afsláttur er af henni meðan
útsalan stendur, út næstu viku.
2. Þetta ílát getur bæði gagnast
sem pottur og panna. Það má fara
inn í ofn og er þeirri náttúru gætt
að ekkert festist á því þar sem
það er húðað fimmtán sinnum, ef
marka má umbúðirnar. Þetta er
létt ílát en á samt að þola hita vel
og fæst í Heimilistækjum að Suð-
urlandsbraut 26 á 6.495 krónur.
3. Pottur úr keramikhúðuðu
stáli með glerloki. Þolir ofn og
uppþvottavél. Hann er nikkelfrír
og höldin boltuð á svo þau hitna
ekki. Fæst hjá Einari Farestveit
í Borgartúni 28 og kostar 12.990
krónur mínus 30 prósent meðan
útsalan varir út næstu viku.
4. Þung og sterkleg grillpanna
með merki Iittala gefur sérstaka
áferð á matinn og útheimtir litla
feiti. Fæst í Kokku á Laugavegi
47 og kostar 19.800 krónur.
5. Þessi álpottur er léttur og
ætlaður til spaghetti- og pasta-
suðu. Honum fylgir líka pasta-
gaffall. Saman kosta þessi áhöld
3.995 krónur í Heimilistækjum
að Suðurlandsbraut 26.
Eldunaráhöld
endurnýjuð
● ROKK OG RÓL Rock-
ing Records eru plötustand-
ar eftir hönnuðinn Berglindi
Snorra. Með stöndunum, sem
eru undir áhrifum frá popp kúlt-
úr, gefst færi á að hafa plötusafnið til
sýnis á stofugólfinu. Annar stendur þá
beinn á meðan hinn
hallast, en þannig
er látið líta út
fyrir að þeir rokki
saman. Stefnt er
að því að stand-
arnir verði komnir í
verslanir í sumar.
hönnun
1
2
4
3
5
● Á KROSSGÖTUM Kross-
götur eða Crossing kall-
ast þessi hurðastopp-
ari eftir hönnuðinn Tinnu
Gunnarsdóttur. Hann hefur
fengist úr áli en fæst nú
líka úr járni í svörtu, hvítu
eða rauðu í Kraum á 9.900
krónur.
● Enn halda mótmælin áfram við Alþingishúsið og
trumbuslátturinn með. Þar sem búsáhöld eins
og pottar, pönnur og hlemmar hafa þar
óspart verið notuð sem ásláttarhljóðfæri og
til að skapa stemningu má reikna með að
eldunaráhöld heimilanna þurfi víða endurnýj-
unar við. Nú fer það eftir efnahag og smekk hvers og
eins hvernig potta og pönnur hann velur í sitt eldhús
en við litum inn í þrjár búðir og völdum þar nokkra
hluti af handahófi úr heilmiklu úrvali.
S ýningarsalur fyrirtækisins Brúnáss í Síðumúlanum tekur daglegum breytingum þessa dagana því nýjar
innréttingar streyma inn. Þær koma af trésmíðaverkstæð-
inu austur á Egilsstöðum sem er hátæknivinnustaður
og einn sá best búni á landinu til smíða á hvers konar
innréttingum.
Frumhönnun allra innréttinga í Brúnási er eftir Guð-
rúnu Margréti Ólafsdóttur og Oddgeir Þórðarson í Go
Form sem hafa unnið fyrir Brúnás frá 1989. Fleiri innan-
hússhönnuðir koma svo að því að sérsníða innréttingar
fyrir hvern og einn.
Baðherbergisskápurinn sem hér sést er með fræst-
um gripum á skúffum og borðplatan er kvartssteinn frá S.
Helgasyni.
Staðgreiðsluverð er 282.400 en einnig er hægt að fá
plastborðplötu í stað steinsins og þá fer verðið niður í
214.680 krónur. - gun
Hlynur, háglans og
steinborðplötur
Innrétting úr spónlögðum hlyni, sprautulökkuð með hvítum
háglans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
31. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR6