Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.02.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 03.02.2009, Qupperneq 2
2 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR FASTEIGNIR „Þetta er ekkert annað en uppgjöf hjá mbl.is. Þessi gjald- taka á eftir að lenda á neytendum og fólkið mun fljótlega uppgötva að í raun er fátt að sækja inn á fasteignavef mbl.is eftir þessar breytingar,“ segir Grétar Jónas- son, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. Frá og með 1. febrúar rukkar mbl.is hverja fasteignasölu um 20.000 krónur á mánuði fyrir að hafa eignalista sinn á fasteigna- vefnum, en skráning var ókeyp- is áður. Félag fasteignasala rekur leit- arvefinn fasteign.is, þar sem skráningar fasteigna eru gjald- frjálsar. Grétar segir mikinn fjölda fasteignasala hafa ákveðið að hætta viðskiptum við mbl.is í kjölfar gjaldtökunnar. „Við vild- um alls ekki eggja félagsmenn okkar til neins, fasteignasalarn- ir tóku þessa ákvörðun sjálfir. Nú er fasteign.is orðinn stærsti vef- urinn. Staðan hefur gjörbreyst,“ segir Grétar. Gylfi Þór Þorsteinsson, auglýs- ingastjóri Morgunblaðsins, segir rangt að skráningar hafi hríð- fallið í kjölfar breytinganna. „Í dag (í gær) byrjuðum við að loka á fasteignasölur sem ekki höfðu gengið frá skráningum og menn voru fljótir að bregðast við. Ég er ekki með nákvæmar tölur en ég held að við höfum meirihlutann af starfandi fasteignasölum inni hjá okkur. Einstaka fasteignasölur, aðal- lega þær minni, ætla ekki að vera með en þær stærstu halda áfram. Fólk vill auglýsa þar sem flestir skoða,“ segir Gylfi. - kg SAMFÉLAGSMÁL Spánverjarnir Enric Huguet og Fabio Teixido, sem búa saman í miðbæ Reykjavíkur, segj- ast spara stórar fúlgur á því að ná sér í mat úr ruslagámum einu sinni í viku. „Það er alveg nóg að hafa og sumt er ekki einu sinni komið fram yfir síðasta söludag,“ segir Enric. „Annað er útrunnið en samt alveg í besta lagi.“ „Við verðum samt sem áður að fara einstaka sinnum út í búð. Til dæmis til að kaupa mjólkurvörur og ef okkar langar í eitthvað sér- stakt í matinn sem ekki hefur feng- ist í gámunum.“ Þeir segjast fara að nóttu til því þá sé meira næði. „Við vitum held- ur ekki hvort einhverjir myndu fetta fingur út í þetta ef þeir sæju til okkar,“ segir Fabio. Þeir vilja þó ekki gefa upp hvert þeir fara nema að þetta eru gámar hjá matvöru- verslunum í Reykjavík. „Við vissum af fólki sem gerði þetta á Spáni en okkur hugnað- ist það ekki þar því það var fátt um fína drætti en hér er nóg að hafa eins og sést,“ segir Enric og sýnir blaðamanni afrakstur síð- ustu ferðar. „Síðan heyrðum við af löndum okkar sem gámagrömsuðu hér með þessum fína árangri svo við ákváðum að slá til og höfum nú gert þetta í nokkra mánuði.“ Þeir segjast verða vel varir við að þeir séu ekki einir um kolann því gámagrams færist í aukana hér á landi. Einn af ókostunum við gáma- grams ið er þó að oft verður matar- æðið afar fábreytt til dæmis þegar mikið fæst af einni ákveðinni vöru sem neyta verður hið fyrsta áður en hún verður óæt. En fylgir einhver hugsjón þess- ari iðju þeirra? „Já, það má segja það,“ svarar Enric ákveðinn. „Hún hljóðar svona: „Maður hendir ekki mat.“ Þeir bjóða síðan upp á brauð með reyktri ítalskri skinku sem reyndar er komin fram yfir síðasta söludag. Blaðamaður hafði aldrei bragðað skinku af þessari tegund og er því ekki viss hvort hún eigi að bragðast eins og hún gerði. En engum varð meint af. jse@frettabladid.is Við vildum alls ekki eggja félagsmenn okkar til neins, fasteignasalarnir tóku þessa ákvörðun sjálfir. GRÉTAR JÓNASSON FRAMKVÆMDASTJÓRI FÉLAGS FASTEIGNASALA Finna góss í gámum Fólk stundar það að taka mat úr ruslagámum stórmarkaðanna. Tveir menn sem búa í miðbænum eru afar ánægðir með afrakstur síðustu ferða í gámana. Hólmfríður, er Lýðheilsustöð að sýna tennurnar? „Við erum frekar að minna á hvern- ig á að halda tönnunum heilum og hreinum svo við getum sýnt tennurnar.“ Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Lýðheilsustöð, fer fyrir tannverndar- vikunni 2009. Sérstök áhersla er lögð á tannþráðinn undir kjörorðinu „Taktu upp þráðinn!“ HVAÐ ER GÁMAGRAMS? Gámagrams er þekkt fyrirbæri víða um heim. Sumir líta á það sem tómstundagaman sem gefur þó eitthvað í aðra hönd en hjá öðrum skipar það mikilvægari sess. Oft er það tengt hugsjón um að nóg sé af mat í heiminum fyrir alla þó að margir svelti. Meðan svo er sé það ekki réttlætanlegt að láta mat fara til spillis. Oft vilja þeir, sem þetta stunda, taka sem minnstan þátt í neyslusamfélaginu. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að þetta sé stundað hér á landi bæði af hug- sjón en einnig af neyð. ÚR SÍÐUSTU GÁMAFERÐ 2 pakkar af soðnum kartöflum 7 skinkubréf 17 pakkar af þurrskinku 10 bréf með völdu áleggi 1 beikonbréf 9 stykki af reyktum laxi 6 stykki af graflaxi 1 poki með tacos 2 pakkar af burritos, mexíkósku brauði 3 pylsupakkar 5 pakkar með pasta fyrir lasanja 4 stykki af smurosti 2 grillostar 1 brauðostur 3 box af baunasalati 15 pakkar af fiskibollum 1 Pepsi Max-dós 1 dós af maísbaunum 1 samlokugrill 2 kíló af sykri 5 lítrar af appelsínudjúsi 4 flöskur af pilsner 10 pokar af karföfluflögum 1 hvítlauksbrauð 5 langlokubrauð 1 brauðhleifur 3 súkkulaðihorn 12 pakkar með vínarbrauð 5 pokar með möffinskökum ÁNÆGÐIR MEÐ SÍÐUSTU „GÁMAFERГ Fabio og Enric líða ekki skort en grípa góss úr gámum. Sumt er ekki komið fram yfir síðasta söludag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN STJÓRNMÁL Geir H. Haarde, for- maður Sjálfstæðisflokksins, gekkst í gær undir speglunar- aðgerð á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam í Hollandi. Í aðgerð- inni var fjarlægt illkynja mein úr vélinda Geirs. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að aðgerðin hafi heppnast vel að mati lækna og Geir sé væntanleg- ur heim til starfa síðar í vikunni. Enn fremur kemur fram í til- kynningunni að ráðgert sé að Geir fari utan í framhaldsmeð- ferð eftir um það bil tvo mánuði. - kg Geir H. Haarde: Aðgerðin heppnaðist vel FORMAÐUR Speglunaraðgerð á Geir H. Haarde í Amsterdam heppnaðist vel, segir í tilkynningu Sjálfstæðisflokksins. JAPAN, AP Gos hófst í gær í eld- fjallinu Asama skammt frá Tókíó í Japan. Þykkur reykur stóð upp úr fjallinu og fingerð aska féll á götur borgarinnar. Engar fréttir hafa borist af manntjóni. Ekkert meiri háttar tjón varð síðast þegar þetta fjall gaus, sem var í ágúst síðastliðn- um. Stjórnvöldum í Tókíó barst hins vegar fjöldi símhringinga í gær frá íbúum sem spurðu um þetta „dularfulla hvíta ryk“ sem sest hafði á götur og garða. Töluverð sprengihljóð heyrðust einnig þegar gosið hófst snemma í gærmorgun. - gb Eldgos í Japan: Öskufall vekur undrun í Tókíó LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm- tugsaldri hlaut annars stigs brunasár á fæti þegar hann steig ofan í sjóðheitan hver norðan við Hveragerði um helgina. Jarðveg- ur gaf sig undan honum svo hann sökk til hnés í hverinn. Það varð honum til happs að hann var í stígvélum. Maðurinn gekk brenndur einn síns liðs til byggða í 45 mínútur og kældi brunasárin reglulega með snjó. Hann leitaði sér síðan lækn- ishjálpar. Hverasvæðið norðan Hvera- gerðis myndaðist í Suðurlands- skjálftanum síðasta sumar. Lög- regla biður fólk að varast það. - sh Gekk skaðbrenndur til byggða: Kældi bruna- sárin með snjó HVERASVÆÐIÐ Hverasvæðið norðan Hveragerðis myndaðist í Suðurlands- skjálftanum síðasta sumar. Formaður Félags fasteignasala segir fasteignavef mbl.is tapa á gjaldtöku: Segir stöðuna gjörbreytta FASTEIGNAVEFUR MBL Rukkar nú fast- eignasölur fyrir skráningu eigna. STJÓRNMÁL Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir ekki koma til greina að koma á skóla- gjöldum í Háskóla Íslands til að bæta fjárhagsstöðu Háskóla Íslands sem fær nú minna á fjár- lögum, minna styrktarfé en meiri nemendaaðsókn. En hvað vill hún þá gera? „Það þarf að fara vel yfir þetta, við vitum að við verðum að lifa spart en við verðum einnig að líta á möguleikana sem við höfum. Við erum til dæmis með úrvals- fólk og það er nauðsynlegt að halda í það. Annars er þetta stjórn sem hefur ekki mikið rými til aðgerða þar sem hún verður einungis fram að kosningum þannig að ég held að fólk bíði ekki eftir neinum stór- vægilegum breytingum í þessari stjórnartíð.“ En hverju mun hún reyna að ná fram á þessum stutta tíma? „Ég mun fyrst horfa á Lánasjóðinn og hvort það sé einhver möguleiki á að endurskoða lögin um hann og fyrirkomulag hans án þess að það þýði beinlínis útgjaldaaukningu.“ Katrín átti 33 ára afmæli dag- inn sem stjórnin var kynnt og er hún yngsti ráðherra hennar. „Það er mjög skrítin tilfinning að vera allt í einu yfir þeim málaflokki þar sem allir þeir eru sem kenndu mér það sem ég kann,“ segir. „Nú verð ég að hugsa hvernig ég get þjónað þessum málaflokki sem best.“ - jse Nýr menntamálaráðherra athugar hvort hægt verði að gera breytingar á LÍN: Skólagjöld koma ekki til greina KATRÍN JAKOBSDÓTTIR Nýr mennta- málaráðherra mun athuga hvort hægt verði að gera breytingar á lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna en tíminn er naumur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ALASKA, AP Íbúar Anchorage, höf- uðborgar Alaska í Bandaríkjun- um, birgðu sig upp af hlífðargler- augum og grímum í gær vegna viðvörunar um eldgos í fjallinu Redoubt. Síðustu daga hafa vís- indamenn fylgst náið með jarð- skjálftum undir hinu 3.110 metra háa Redoubt-fjall, sem er í rúm- lega 160 kílómetra fjarlægð frá höfuðborg ríkisins. Phil Robinson, eigandi bygg- ingavöruverslunar í Anchorage, sagði við AP-fréttastofuna að allar líkur væru á því að lagerinn af gleraugum og grímum myndu klárast vegna ótta íbúa við ösku- fall sem gæti fylgt gosinu. - kg Búist við eldgosi í Alaska: Hlífðargler- augu rokseljast LÖGREGLUMÁL Þrír menn sem brot- ist höfðu inn í íbúð við Furugrund í Kópavogi á fimmta tímanum í gær gengu í skrokk á húsráðanda. Maðurinn var ekki heima þegar brotist var inn en kom að þjófun- um þar sem þeir voru að athafna sig, að sögn lögreglu. Mennirnir flúðu af vettvangi en voru handteknir í gærkvöldi. Þeir voru í annarlegu ástandi og verða yfirheyrðir í dag. - bj Kom að innbrotsþjófum: Börðu eiganda íbúðarinnar SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.