Fréttablaðið - 03.02.2009, Qupperneq 8
8 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
1. Hvert er kjörorð tannvernd-
arvikunnar 2008?
2. Hvað heitir nýr dómsmála-
ráðherra?
3. Hvar var hraðbanka stolið
í heilu lagi aðfaranótt sunnu-
dags?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 26
STJÓRNMÁL Þingmenn Sjálfstæðis-
flokks ætla að hefja þingsetu sína
í stjórnarandstöðu á morgun með
því að leggja fram tvö frumvörp
sem eiga að bæta stöðu heimil-
anna, um skuldaaðlögun og úttekt
á séreignarsparnaði. Frumvörpin
voru bæði unnin meðan flokkurinn
sat í ríkisstjórn.
„Við leggjum mikla áherslu á að
þessi mál komi fram núna,“ segir
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnarkreppan hafi þegar tafið
þessi mikilvægu mál of mikið.
„Ég vona að það sé einlægur vilji
hjá núverandi stjórnarflokkum til
að ljúka málum sem skipta heim-
ilin í landinu mjög miklu máli,“
sagði Arnbjörg. Hér sé komið
tækifæri fyrir stjórnvöld að styðja
þessi frumvörp og sjá til þess að
þau hafi skjótan framgang.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, segir algert samkomulag hafa
verið milli Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar um þessi mál.
Frumvarp Björns Bjarnason-
ar, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra, var afgreitt úr ríkisstjórn
og þingflokki Sjálfstæðisflokks í
janúar og hefur beðið afgreiðslu
þingflokks Samfylkingar á þriðju
viku, segir Björn.
Verði frumvarpið að lögum mun
það einfalda málsmeðferð þegar
einstaklingur óskar eftir nauð-
arsamningum við kröfuhafa. Það
ætti enn fremur að gera skuldur-
um aukna möguleika á að sleppa
við að fara í gjaldþrot.
„Grundvallarbreytingin felst
í því að auðvelda fólki að ganga
til samninga,“ segir Björn. Mál-
inu verði endanlega lokið með því
að greiða ákveðinn hluta skulda, í
stað þess að fara í gjaldþrot sem
fyrnist á ákveðnum tíma.
Frumvarp Árna M. Mathiesen,
fyrrverandi fjármálaráðherra, átti
að leggja fyrir ríkisstjórn í síðustu
viku. Það mun heimila fólki að nota
séreignarsparnað til að greiða upp
skuldir, segir Árni.
Hann segir ekki ljóst hvaða
áhrif frumvarpið muni hafa á líf-
eyrissjóðina. Yngri aldurshóparn-
ir skuldi meira en þeir eldri, en
eigi um leið minni séreignasparn-
að. Þar sem fjármunirnir fari í að
greiða upp skuldir megi líta svo á
að verið sé að færa þá úr einni teg-
und sparnaðar í aðra.
Stærstu lífeyrissjóðirnir gætu
komið út nokkurn veginn á sléttu,
noti fólk sparnaðinn til að greiða
upp lífeyrissjóðslán, segir Árni.
Minni sjóðir geti þurft að grípa
til aðgerða leysi margir til sín sér-
eignarsparnað sinn.
Erfitt er að meta hversu margir
munu nýta sér þennan möguleika,
segir Árni. Á að giska þriðjung-
ur af séreignarsparnaði lands-
manna verði tekinn út og nýttur til
greiðslu skulda, verði frumvarpið
að lögum.
Ný stjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna hefur þegar boðað
frumvarp sem opna mun fyrir sér-
eignarsparnað fyrir sjóðsfélaga í
kröggum. Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra sagði í Kastljósi
Ríkissjónvarpsins í gær að frum-
varp Björns um skuldaaðlögun sé
ekki nægilega vel unnið, og gildis-
svið þess sé of þröngt.
brjann@frettabladid.is
Skiptir miklu
fyrir heimilin
Sjálfstæðismenn ætla að leggja fram frumvörp sem
unnin voru þegar flokkurinn var í ríkisstjórn. Tæki-
færi fyrir ný stjórnvöld til að styðja aðgerðir í þágu
heimilanna segir þingflokksformaður flokksins.
FRUMVÖRP Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hófu setu sína í stjórnarandstöðu á því að
kynna frumvörp sem þeir hyggjast leggja fram á þingi á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Pantaðu ráðgjöf á landsbanki.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000.
F J Á R M Á L H E I M I L I S I N S
STÖÐUMAT | HEIMILISBÓKHALD | RÁÐGJÖF
• Greiðslujöfnun
• Lengja lánstíma
• Skuldbreyta vanskilum
• Fresta afborgunum vegna
sölutregðu
• Fresta greiðslu afborgana
og vaxta
VIÐ FÖRUM MEÐ ÞÉR YFIR MÖGULEG ÚRRÆÐI
DÓMSMÁL Athafnamaðurinn Þor-
steinn Kragh, sem ákærður er
fyrir aðild að einu umfangsmesta
fíkniefnasmygli Íslandssögunn-
ar, hefur krafist frávísunar máls-
ins. Helgi Jóhannesson Lögmaður
hans segir að lögregla hafi ítrekað
brotið á rétti Þorsteins við rann-
sókn málsins með því að láta sér
ekki í té gögn tengd málinu innan
tilskilins frests. Það hafi gerst 156
sinnum.
Málið snýst um 190 kíló af hassi
sem aldraður Hollendingur flutti
til landsins í húsbíl með Norrænu
í júní síðastliðnum. Þorsteinn var
handtekinn nokkrum mánuðum
síðar grunaður um aðild að mál-
inu.
Hann sat í gæsluvarðhaldi mán-
uðum saman.
Sigríður Elsa Kjartansdóttir,
saksóknari hjá ríkissaksóknara,
fellst ekki á rök Helga og segir að
meint brot lögreglu, sem lögregla
hefur raunar ekki andmælt, nægi
ekki til frávísunar málsins. Hún
segir að Þorsteinn gæti mögulega
sótt rétt sinn vegna þeirra eftir
öðrum leiðum.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri
á höfuðborgarsvæðinu, sagðist
ekki þekkja til málsins og vildi
ekki tjá sig um það.
Málið um frávísunarkröfuna
verður flutt fyrir dómi í dag og
er ákvörðunar að vænta fljótlega
í kjölfarið. - sh
Sakar lögreglu um að brjóta á rétti sínum 156 sinnum:
Þorsteinn Kragh
krefst frávísunar
GRIKKLAND, AP Óeirðalögreglan í
Grikklandi beitti táragasi til að
stöðva bændur sem hugðust aka
dráttarvélum sínum inn í Aþenu. Að
minnsta kosti tveir hlutu meiðsli,
þar á meðal einn þingmaður
PASOK, sem er stjórnarandstöðu-
flokkur sósíalista.
Bændurnir hafa í hálfan mánuð
mótmælt lágu afurðaverði og krefj-
ast fjárstuðnings frá ríkinu. Bænd-
urnir hafa notað dráttarvélar til
þess að loka bæði landamærum og
þjóðvegum til að vekja athygli á
málstað sínum.
Í gær komu um þúsund manns
með ferjum frá eyjunni Krít til
Piraeus-hafnar skammt frá Aþenu
með tugi dráttarvéla, vörubifreiða
og annarra landbúnaðartækja, sem
meiningin var að aka inn í borgina
alla leið að landbúnaðarráðuneyt-
inu.
Stjórnvöld ákváðu hins vegar að
einungis fótgangandi fólki yrði leyft
að taka þátt í mótmælunum.
„Við lítum á ráðuneytið sem
heimkynni allra bænda og dyrnar
standa alltaf opnar,“ sagði Michal-
is Papadopoulos aðstoðarlandbún-
aðarráðherra.
Hópur bænda reyndi að aka drátt-
arvélum í gegnum raðir lögreglunn-
ar, sem hafði stillt sér upp við höfn-
ina. Lögreglan beitti þá táragasi til
að hindra för bændanna. - gb
Bændur í Grikklandi hafa í hálfan mánuð efnt til mótmæla af ýmsu tagi:
Táragas stöðvar dráttarvélar
KARTÖFLUM KASTAÐ Í LÖGREGLU
Bændurnir í Aþenu gripu sumir til þess
ráðs að kasta kartöflum í lögregluþjóna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ég vona að það sé ein-
lægur vilji hjá núverandi
stjórnarflokkum til að ljúka mál-
um sem skipta heimilin í landinu
mjög miklu máli.
ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR
ÞINGFLOKKSFORMAÐUR SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS
SAMGÖNGUR Icelandair tekur 800
krónur fyrir að láta farþega fá
teppi og kodda í flugi, alveg sama
hversu langt flugið er eða hvort
það er til Evrópulands eða Banda-
ríkjanna. Farþegar kaupa því
teppið og koddann og geta tekið
hvort tveggja með sér að flugi
loknu. Farþegar geta líka komið
með teppi og kodda að heiman.
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, segir að
með nýjum sætum í lok október
hafi þjónustunni um borð verið
breytt. Nú sé maturinn seldur, einn-
ig teppi og hálskragi eða koddi og
það sé gert í hagræðingarskyni.
- ghs
Breytt þjónusta Icelandair:
Selur kodda og
teppi í flugi
TRYGGINGAR Hafnarstjórn Fjalla-
byggðar hefur lýst megnri
óánægju með þá ákvörðun
Viðlagatryggingar Íslands að
hafna kröfu sveitarfélagsins
um greiðslu tveggja milljóna
króna bóta vegna tjóns sem varð
í Ólafsfjarðarhöfn í október síð-
astliðnum af völdum öldugangs.
Sama dag varð einnig tjón á
höfninni í Siglufirði vegna hárr-
ar sjávarstöðu.
Þar samþykkti Viðlagatrygg-
ing að greiða Fjallabyggð rúm-
lega milljón.
„Þá er eftir að draga frá
sjálfsábyrgð, þannig að þátt-
taka viðlagatryggingar er lítil
sem engin,“ segir í bókun hafn-
arstjórnar sem vill fund með
framkvæmdastjóra Viðlaga-
tryggingar til að ræða málin.
- gar
Óánægja í Fjallabyggð:
Tjón á höfnum
fæst ekki bætt
VEISTU SVARIÐ?